Morgunblaðið - 16.10.2004, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Da Vinci-lykillinn eftirBandaríkjamanninn DanBrown er líklega meðmest lesnu spennusögum
síðustu ára. Milljónir bóka hafa
selst í heimalandi Brown og viðtök-
urnar hafa ekki verið síðri annars
staðar, en hér á landi hefur hún
m.a. trónað á toppi metsölulista um
margra mánaða skeið. Da Vinci-
lykilinn hefur líka verið með heit-
ustu umræðuefnum jafnt í kaffi-
samsætum og kokteilboðum, sem
og á vinnustöðum. Og spurning-
arnar um hvar sannleikanum sleppi
og skáldskapurinn taki við skjóta
víða upp kollinum.
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
hefur nú ákveðið að hjálpa fólki að
leita svara við þessum spurningum
og verður haldið þriggja kvölda
námskeið í Grensáskirkju í nóv-
ember. Námskeiðið nefnist Saga
kirkjunnar og Da Vinci-lykillinn og
er sr. Þórhallur Heimisson prestur
við Hafnarfjarðarkirkju leiðbein-
andi, en hann kennir jafnframt
trúarbragðafræði við Kennarahá-
skóla Íslands.
Umdeild saga
„Það hefur verið mjög mikil eft-
irspurn eftir einhverri umfjöllun
um Da Vinci-lykillinn,“ segir Þór-
hallur og kveður margskonar
vangaveltur koma upp við lest-
urinn. „Prestum hefur borist fjöldi
fyrirspurna frá fólki sem er að spá í
hin og þessi atriði bókarinnar og
margir hafa leitað til fræðsludeildar
Biskupsstofu.“
Fjöldi bóka sem beint er gegn
Da Vinci-lyklinum hefur komið á
markað í Bandaríkjunum og trú-
félög og kirkjur þar í landi margar
hverjar keppst við að halda nám-
skeið þar sem lagt er upp með að
hrekja staðhæfingar Da Vinci-
lykilsins á trúarlegum forsendum.
Að sögn Þórhalls verður þó ekkert
slíkt upp á teningnum í Grens-
áskirkju.
„Menn eru oft svo fljótir að fara í
trúarvörn og í stað þess að ræða
sögulegar staðhæfingar bókarinnar
þá reiðast þeir bara og segjast ekki
trúa hinu eða þessu. Da Vinci-
lykillinn er verulega skemmtileg
bók sem margir hafa lesið og halda
áfram að ræða um og mér skilst,
svo dæmi séu tekin, að mikil eft-
irsókn sé nú á bókasöfnum eftir
upplýsingum um tímabilin sem þar
er fjallað um.“
Tekið á stóru spurningunum
Þar sem um leynilögreglusögu er
að ræða ákvað Þórhallur að byggja
námskeiðið upp með svipuðum
hætti. „Þetta verður eins konar
leynilögreglunámskeið þar sem tek-
ið verður á stóru spurningunum
sem fram koma í bókinni gagnvart
kirkjunni, kristinni trú og sögunni.
Við munum því fara í nokkurs kon-
ar leynilögregluferð aftur í tímann,
leita að sönnurgögnum og heim-
ildum í fortíðinni og skoða hvað fær
staðist í Da Vinci-lyklinum og hvað
ekki.“
Textar úr biblíunni verða þannig
skoðaðir sem og hlutar apókrýfu
bókanna og gnostísku ritanna, en til
að ljóstra ekki upp of miklu segist
Þórhallur ekki geta rætt niður-
stöður námskeiðsins ítarlega.
„Ég get þó sagt að við munum
kanna hvenær Nýja testamenntið
varð til, hverjir völdu textana og
hvernig. Þá tökum við einnig á
spurningum á borð við þær hvort
Jesús geti hafa verið giftur, hvort
hann hafi eignast börn og hvort það
myndi breyta einhverju fyrir
kristna trú ef svo væri. Staða
kvenna innan frumkirkjunnar verð-
ur líka skoðuð og þá sérstaklega
hlutverk Maríu Magdalenu. Hug-
myndina um að hún hafi verið
gleðikona er til að mynda ekki að
finna í biblíunni og því munum við
velta fyrir okkur hvaðan hún komi.“
Leynilegar riddarareglur hafa
ekki síður vakið forvitni lesenda.
„Því munum við líka velta fyrir
okkur hverjir voru Musteris-
riddararnir, Jóhannesarriddararnir
og Tevtónsku riddararnir, hug-
myndum um gralinn, hvenær hreyf-
ingarnar urðu til og hvort það geti
verið rétt að þær hafi varðveitt
leyndar upplýsingar sem kirkjan
vildi halda frá almenningi,“ segir
Þórhallur sem ætlar að fara í gegn-
um þessa margskiptu bók, eitt lag
af öðru og ljúka námskeiðinu með
forvitnilegum hugmyndum um lyk-
illinn að Da Vinci-lyklinum sem
hann að sjálfsögðu lætur ekki uppi í
viðtalinu.
NÁMSKEIÐ | Ráðið í Da Vinci-lykilinn hjá Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar
Stóru spurningarnar teknar
fyrir á leynilögreglunámskeiði
Morgunblaðið/Þorkell
Þórhallur Heimisson: Farið verður í eins konar leynilögregluferð aftur í
fortíðina og spurningar gagnvart kirkjunni og kristinni trú teknar fyrir.
Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci: Verkið kemur mikið við
sögu í bókinni eins og sumir lesendur kannast eflaust við.
Áhugasamir geta skráð sig hjá
Biskupsstofu eða á netslóðinni
www.kirkjan.is, en námskeiðið er öll-
um opið óháð trú.
annaei@mbl.is
Zeus - hei ldvers lun
Austurströnd 4
sími: 561 - 0100
BESTA VERÐIÐ?
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið