Morgunblaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 25
DAGLEGT LÍF
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Seltjarnanesi s. 561 1680
Kringlukast
20% afsláttur
af völdum yfirhöfnum.
Sloggi
tilboð
Sloggi maxi
Þrjár í pakka
á aðeins
1.699 kr.
Útsölustaðir:
Hagkaup Smáralind
Hagkaup Skeifunni
Hagkaup Kringlunni
Hagkaup Spönginni
Hagkaup Garðabæ
Hagkaup Eiðistorgi
Hagkaup Akureyri
Nettó, Akureyri
Nettó, Mjódd
Nóatún Selfossi
Nóatún Kirkjubæjarkl.
Fjarðarkaup Hafnarfirði
Samkaup Keflavík
Samkaup Hafnarfirði
Samkaup Egilsstöðum
Úrval Hrísalundi Akureyri
Úrval Húsavík
Perla Akranesi
KB Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga,
Hvammstanga
KH Blönduósi
Skagfirðingabúð Sauðárkróki
Lækurinn Neskaupstað
Kaupfélag Steingrímsfjarðar,
Hólmavík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar,
Drangsnesi
Efnalaug Dóru, Höfn
Heimahornið, Stykkishólmi
Verslunin 66, Vestmannaeyjum
Apótek Siglufjarðar
Paloma Grindavík
Fatabúðin Ísafirði
Verslunin Rangá, Skipasundi 56
H-Sel, Laugarvatni
Þín verslun, Seljabraut Rvík
Plús markaðurinn, Hátúni 10b
INFLÚENSA kemur árlega hér á
landi eins og í öðrum löndum.
Hún er veirusýking og þekkt að
því að valda mannskæðum far-
öldrum á nokkurra áratuga fresti
en þekktastur þeirra er Spán-
arveikin (spænska veikin) sem
geisaði 1918-1919. Talið er að í
þessum faraldri hafi um 20 millj-
ónir manns látist í heiminum og
fleiri hundruð á Íslandi. Það sem
einkennir inflúensu umfram aðr-
ar veirusýkingar er að veiran
breytir sér reglulega þannig að
mótefni sem myndast hjá ein-
staklingum sem sýkjast duga ekki
til fullrar verndar þegar veiran
kemur aftur að ári.
Oftast er sýkingin í gangi hér á
landi á veturna og getur hafist í
október (eins og 2003) fram í apr-
íl/ maí. Venjulega tekur 2–3 mán-
uði fyrir sýkinguna að ganga yfir
og hennar verður síðan ekki vart
fyrr en að ári liðnu.
Í hvert skipti sem inflúensa
geisar sýkist stór hluti þjóð-
arinnar, einkum börn og ungling-
ar. Helstu einkenni sýkingarinnar
eru:
hár hiti sem byrjar skyndilega
höfuðverkur og beinverkir
hósti, hæsi, nefrennsli og háls-
særindi
kviðverkir og uppköst sem
einkum eru áberandi hjá börnum.
Venjulega gengur hitinn yfir á
3–5 dögum en slappleiki og hósti
geta staðið mun lengur. Yfirleitt
ná sjúklingar sér að fullu en
gamalt fólk og einstaklingar með
langvinna sjúkdóma geta veikst
alvarlega og jafnvel dáið.
Besta ráðið til að forðast inflú-
ensu er bólusetning á hverju
hausti (sjá vef Landlæknisemb-
ættisins http://www.landlaekn-
ir.is) og er virkni bólusetning-
arinnar um 60-90%.
Sóttvarnalæknir mælir með ár-
legri bólusetningu í september/
október hjá eftirtöldum hópum:
Öllum eldri en 60 ára
Börnum (eldri en 6 mánaða) og
fullorðnum með undirliggjandi
hjarta- og lungnasjúkdóma
(þ.á m. astma) og með veiklað
ónæmiskerfi og með langvinna
efnaskiptasjúkdóma (þ.á m. syk-
ursýki) og börnum og unglingum
sem taka aspirin að staðaldri
(vegna hættu á Reye-heilkenni)
Einstaklingum sem sýkt geta
aðra sem hætt er við að fá alvar-
lega inflúensusýkingu eins og
starfsfólki á sjúkrahúsum sem
annast sjúklinga, starfsfólki á
elli- og hjúkrunarheimilum og
heimilisfólki þar sem áhættuhóp-
ar dvelja
Á markaði eru lyf gegn veir-
unni sem eru árangursrík einkum
ef þau eru notuð á fyrstu tveimur
dögum veikindanna. Sjúklingum
með inflúensu er ráðlagt að halda
kyrru fyrir heima, hvíla sig vel
og drekka vöka ríkulega. Hita-
lækkandi lyf eru árangursrík til
að lækka hitann og lina óþægindi
en forðast ætti að neyta aspirin-
lyfja vegna hættu á svokölluðu
Reye-heilkenni. Reye-heilkenni er
sjaldgæfur en alvarlegur sjúk-
dómur í lifur og miðtaugakerfi
sem einkum hefur verið lýst hjá
einstaklingum með inflúensu og
hlaupabólu sem neyta aspirin-
lyfja.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið
Inflúensa er veirusýking
Sjúklingum með
inflúensu er ráðlagt
að halda kyrru fyrir
heima, hvíla sig vel
og drekka vökva.
Þórólfur Guðnason yfirlæknir.
IKEA biður viðskiptavini að skila
inn Färgglad-barnastól (vörunúm-
er 400.548.40) aftur til verslunar-
innar. Plasttapparnir á stólfót-
unum geta losnað af og haft í för
með sér köfnunarhættu fyrir börn.
Ekkert atvik eða slys hefur ver-
ið tilkynnt, segir í fréttatilkynn-
ingu.
IKEA inn-
kallar
Färgglad-
barnastól
NEYTENDUR
Fréttasíminn
904 1100