Morgunblaðið - 16.10.2004, Síða 26

Morgunblaðið - 16.10.2004, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG Góð gisting í Kaupmannahöfn Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu. Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgreiðslugjöld á flugvöllum.) Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og minibus, 9 manna og rútur með/ án bílstjóra Julefrokost Hótelgisting og julefrokost við allra hæfi í nóv. og des. Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk gsm símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.975 vikan Bílaleigubílar Sumarhús í DANMÖRKU www.fylkir.is sími 456-3745 Það er kveikt á kertum íborðsalnum, falleg skreyt-ing í haustlitunum prýðirmorgunverðarskápinn og bútasaumsdúkar í litatónum árstíð- arinnar eru á öllum borðum. Ég er komin á Hótel Freyju í Minni-Mástungu sem formlega verður opnað á næstu dögum. Þegar ég kom fyrst í Minni-Más- tungu fyrir þremur árum var Olga Andreasen búin að reisa tvo sum- arbústaði á jörðinni sem þau leigðu út. Hún er kona sem fer gjarnan ótroðnar slóðir og þegar hún fór að leigja út húsin þá skipti hún árinu upp í tímabil, bauð gestum upp á rómantíska daga, uppskerutímann, aðventuævintýri, sumarsælu og svo framvegis. Það gerði hún með stæl, skipti þá algjörlega út öllu í bústöð- unum og skreytti þá með tilliti til hvers þema. Rómantísku dagarnir slógu strax í gegn, enda er hún þá búin að setja satín á rúm fyrir gesti, falleg kerti í alla stjaka, hjörtu hér og þar og láta renna í heita pottinn fyrir pörin áður en þau renna í hlað. Dekrað við gesti Á sínum tíma trúði hún mér fyrir því að sig langaði að byggja hótel svo hún gæti tekið á móti sauma- klúbbum og haldið fyrir þá nám- skeið, t.d. í bútasaumi, og verið með ýmsar uppákomur og dekrað við þær á alla lund. Hún sá fyrir sér hvernig hún ætlaði að nostra við vinahópana sem kæmu og hún var með ótal plön fyrir fjölskyldur sem vildu koma til að njóta sveitalífsins. Og nú er draumurinn þeirra Olgu og eiginmannsins Finnboga Jó- hannssonar orðinn að veruleika, þau hafa reist á jörðinni sinni fal- legt hótel með tólf tveggja manna herbergjum. Sama hugmynd býr nú að baki hótelinu, Olga ætlar að skipta árinu upp og hún er ekki að mikla það fyrir sér að skipta um út- lit og andrúmsloft á nokkurra mán- aða fresti. En hvernig ætlar hún að taka á móti gestum hótelsins? „Við viljum að fólk komi til okkar í dekur. Það á að hafa það notalegt. Sumir kjósa að vera útaf fyrir sig og það virðum við auðvitað. Hinsvegar munum við dekra við alla á okkar hátt, bjóða upp á heimatilbúinn morgunverð, vera með kaffi og te á öllum her- bergjum, stór sjónvörp og notaleg rúm. Við ætlum svo að byrja með Amish daga í nóvember. Þá klæðist starfsfólkið fatnaði að hætti Amish-fólksins, boðið verður upp á Amish-matseðil og gestir geta svo notið kyrrðar og friðar.“ Skreytt á hrekkjavöku „Við verðum svo með hrekkjar- vöku í lok október og þá verður mikið húllumhæ hjá okkur og allt skreytt hátt og lágt í anda hennar. Í nóvember ætlum við að halda upp á þakkargjörðarhátíðina með kalkúni og tilheyrandi og vera með ýmsar tegundir af bökum. Aðventuævintýrið er í desember og þá tökum við fram jólaskrautið og komum öllum gestum okkar í jólaskap. Strax í janúar verður svo boðið upp á rómantískar nætur og satt best að segja hafa öll pör gott af því að komast að- eins í burtu og njóta tíma saman, bara tvö ein. Gestirnir okkar bæði á hótelinu og í bústöðunum ganga að uppábúnu rúmi í stórum og björtum her- bergjum. Hver veit nema við bjóðum líka upp á hjónahelgar og förum þá kannski í naflaskoðun, fáum sérfræðinga til að halda hug- leiðingar um hjónabandið og bjóð- um jafnvel upp á stutt og uppbyggj- andi námskeið fyrir pör.“ Litla búðin í sveitinni Í litlu húsi á jörðinni er nú búið að opna litla verslun sem heitir Draumakot Olgu. Þetta er sann- kallað Hans og Grétu hús. Búðin er persónuleg því þar hefur Olga kom- ið fyrir allskonar hlutum sem heill- að hafa hana og henni finnst fal- legir. „Í búðinni minni er ég bara með hluti sem mér finnst fallegir. Það er ekkert annað þema eða skipulag í búðinni. Ég sel bara fallega muni, ilmkerti, kransa, litla skrautmuni, bútasaumsefni og teppi, lítil postulínsbollastell, krúttlega bangsa og svo framvegis. Þarna er líka gamaldags brjóstsyk- ur og karamellur og svo má ekki gleyma öllu fallega jólaskrautinu sem ég ætla að vera með í búðinni fyrir jólin. Þá verður skemmtilegt að koma í búðina til mín.“ Olga er með hænur sem ganga frjálsar meðan veður leyfir og einn- ig stunda þau Olga og Finnbogi fjárbúskap. Gestir munu því fá egg úr hamingjusömum hænum með morgunkaffinu, heimabakaða brauðinu, sírópsvöfflunum og sult- unni sem ég bý alltaf til,“ segir Olga að lokum.  GISTING | Hótel Freyja í Minni-Mástungu verður formlega opnað á næstu dögum Kertaljós, krambúð og krúttlegheit Minni-Mástunga: Hótel Freyja og gula húsið hýsir Draumakot Olgu. Morgunblaðið/GRG Mæðgur: Olga Andreasen ásamt dóttur sinni, Guðbjörgu Finnbogadóttur. Amishdagar, róm- antískar nætur og hrekkjavaka er meðal þess sem gestum Hótels Freyju stendur til boða. Guðbjörg R. Guð- mundsdóttir dáðist að hugmyndafluginu, öllum bútasaumnum, ilmkert- um og sírópsvöfflum á glænýju hóteli á Suð- urlandi. Draumakot: Olga selur bara allskonar muni sem henni finnast fallegir í búðinni sinni. gudbjorg@mbl.is Hver vill ekki láta dekra við sig, satín á rúm- um, kertaljós í hverjum kima og búið að láta renna í pottinn? Skápurinn í borðstofu hótelsins.  Hótel Freyja Minni-Mástunga 801 Selfoss Sími: 4866074 eða 4866174 Tölvupóstfang: sirx@isl.is Vefslóð væntanleg: www.hotelfreyja.is Kínaferð Kínaklúbbur Unnar heldur í Kínaferð 13. maí á næsta ári sem er ár han- ans. Ferðinni er m.a. heitið til Xian, Sjanghæ og Peking og heimkoma er áætluð 3. júní. Ferðin byrjar í Xian þar sem Borgarmúrinn verður skoð- aður en hann var reistur á Ming- tímanum (1368-1644). Forn- minjasafn Xian verður einnig heim- sótt ásamt fleiri söfnum og stöðum. Í Suður-Kína verður Guilin skoðað en þar er gróðursæld mikil. Farið verður í skemmtisiglingu á ánni LI og síðan er förinni heitið til Sjanghæ og borgarlífið og ýmis söfn skoðuð. Í Suzhou eru höfuðstöðvar silkiframleiðslu Kína og eftir að hafa skoðað sig um þar verður farið til Peking og borgin og nágrenni skoð- að. Kínamúrinn verður meðal áfangastaða. Í Kína verður gist á fyrsta flokks hótelum og fullt fæði er innifalið ásamt fararstjórn. Þetta er tuttugasta hópferðin sem Unnur Guðjónsdóttir skipuleggur um Kína. Flogið verður í gegnum Stokkhólm og á heimleiðinni er vel hægt að gera nokkurra daga stopp í höf- uðborg Svíþjóðar. www.simnet.is/ kinaklubbur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.