Morgunblaðið - 16.10.2004, Side 40
40 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ármannía Þór-laug Kristjáns-
dóttir fæddist í
Framnesi í Grýtu-
bakkahreppi 27. júlí
1915. Hún lést í
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 8.
október síðastliðinn.
Hún var dóttir
hjónanna Kristínar
Jónasdóttur, f. 20.10.
1884, d. 1.10. 1924,
og Kristjáns Krist-
jánssonar, f. 24.9.
1887, d. 23.9. 1965.
Frá níu ára aldri átti
Ármannía heimili hjá Sigurlínu
Þórðardóttur, afasystur sinni, og
manni hennar Vilhjálmi Jónasi
Jónssyni. Systkini hennar eru:
Höskuldur Sigurjón, f. 5.7. 1912,
Guðný Þóra f. 21. 4. 1918, d. 25.2.
1965, og Steinunn Bjarný, f. 8.1.
1922.
Hinn 8. nóvember 1940 giftist
Ármannía Sigurbirni Björnssyni,
f. í Ólafsfirði 8.11. 1915, d. 14.11.
1992. Þau bjuggu allan sinn bú-
skap í Ólafsfirði. Foreldrar hans
voru Þorbjörg Björnsdóttir, f.
30.4. 1892, d. 10.4 1968, og Björn
Pálmi Sigurðsson, f. 12.6. 1890, d.
9.7. 1955. Börn Ármanníu og Sig-
urbjörns eru: 1) Kristín Björg, f.
30.9. 1940, maki Bjarni Jónsson f.
16.5. 1934, d. 22.1. 1995. Börn
þeirra eru Jón,
Helga og Sigur-
björn. 2) Óskar Þór,
f. 17.6. 1945, maki
Soffía Margrét Egg-
ertsdóttir f. 28.9.
1951. Synir þeirra
eru Ólafur Ármann,
Eggert Þór, Sigur-
björn Reginn og
Kristján Uni. 3)
Ásta, f. 30.9. 1946. 4)
Gunnar f. 9.1. 1949,
maki 1: Guðrún Sig-
urbjörnsdóttir, f.
23.5. 1948. Þeirra
börn eru Björn Ey-
þór, Viðar, Jóhanna og Inga Þóra.
Maki 2: Ingrid Waldow. 5) Sigur-
lína, f. 18.5. 1955, sambýlismaður
Hermann Guðmundsson, f. 10.6.
1942. Þeirra börn eru Ásta og
Hermann. Afkomendur Ármanníu
eru nú 28.
Ármannía stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri í þrjú
ár og lauk þaðan gagnfræðaprófi
árið 1936. Þau ár var hún í kaupa-
vinnu á sumrin. Eitt ár starfaði
hún á Fæðingarheimili Reykjavík-
ur og var einnig í síld á Siglufirði.
Eftir að hún giftist var hún hús-
móðir og starfaði við fiskvinnslu
og síldarsöltun.
Útför Ármanníu fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku hjartans amma mín. Ég
veit varla hvar ég á að byrja. Það
er af svo óendanlega mörgu að
taka. Yndislegar minningar alveg
frá því ég man eftir mér pínulítið
pons, t.d. þegar ég var búin að
brjóta fallegu rjúpustyttuna þína
(alveg óvart). Mamma bað mig um
að fara til þín og biðja þig fyr-
irgefningar. Jú, jú, ég hvarf um
stund og kom svo aftur og sagði:
„Ég er búin að fyrirgefa ömmu.“
Ég hafði farið til ömmu og sagt við
hana: „Amma, ég ætla einhvern
tíma að gefa þér fugl úr stáli sem
getur ekki brotnað.“ Þetta var mín
leið til að segja henni að ég hefði
brotið rjúpustyttuna. En amma
skildi mig og vissi betur enda var
hún skilningsrík og greind kona.
Oft var minnst á söguna um stál-
fuglinn og löngu seinna gaf ég
henni fugl úr málmi og skemmtum
við okkur oft yfir þessu atviki.
Sem barn dvaldi ég meira eða
minna hjá ömmu og afa á sumrin
og eru það dýrmætar minningar
sem ég á frá þeim tíma, og alla tíð
vorum við amma miklar vinkonur.
Amma var greind kona og vel
lesin, íslenskt mál var henni kært.
Hún var snillingur í að leysa
krossgátur, vísna- og myndagátur
og fékk oftsinnis verðlaun fyrir
þær.
Amma hafði mikið dálæti á
kveðskap Davíðs Stefánssonar og
eitt kvæði hans héldum við báðar
sérstaklega upp á, enda báðar
fæddar í ljónsmerkinu.
Í dýragarði mínum er gylta grá og feit
og glettin apadóttir, sem hrósar ættum
sínum,
og þar er eiturslanga, og þar er hind og geit,
en – þú ert eina ljónynjan í dýragarði
mínum.
Þú reikar um sem drottning, svo djörf og
stolt og glæst,
að dýrin hin í garðinum lúta þér og víkja.
Nú finn ég, að minn djarfasti draumur hefur
ræst.
– Í dýragarði mínum skal ljónsins vilji ríkja.
Þú betlar ei né skríður; þú skelfist ekki
neitt,
því skapið – það er voldugt og hvassar þínar
tennur.
Þú lýtur þínum herra, sem líf þitt hefur
seitt,
og ljónshjartað þitt mikla af ástargleði
brennur.
Þú lýtur þínum herra og lifir fyrir hann.
Með lyftu höfði gengur þú djörf á móti
honum.
Á meðan rýtir gyltan, en geitin eltir þann,
sem gefur henni að éta ... þú berð af öllum
konum.
(Davíð Stef.)
Elsku amma mín, þú umvafðir
mig ást og kærleika. Allar ynd-
islegu minningarnar sem ég á um
þig verða mér veganesti í lífinu.
Innilegar kveðjur eru frá Bjarna
Víði, Esther og litla langalang-
ömmubarninu þínu henni Helgu
Lilju í Danmörku.
Ég kveð þig með ást, virðingu
og þakklæti.
Þín elskandi dótturdóttir,
Helga.
„Þetta er langamma, Ármannía.
Hún er dáin núna. Hún var góð,“
sagði tveggja ára sonur minn núna
eitt kvöldið og benti á myndina af
sjálfum sér með langömmu. Segja
má að þar hafi sá stutti sannarlega
náð að lýsa henni ömmu því góð
var hún. Veðrið í Ólafsfirði tók
meira að segja undir það daginn
sem hún dó því sólin skein og fán-
arnir sem dregnir höfðu verið í
hálfa stöng bærðust ekki allan
daginn.
Þegar maður kveður ömmu sína
sem hefur fylgt manni alla tíð
streyma minningarnar hreinlega
fram og þær eru ófáar æskuminn-
ingarnar sem tengjast ömmu og
góðum stundum í ömmu- og afa-
húsi á Garðstíg 1. Oft var nú setið
í eldhúsinu, drukkið kakó og ristað
franskbrauð með smjöri borðað
með, meðan fjögurfréttirnar
hljómuðu í útvarpinu og svo veðrið
og skipafréttirnar. Þá kepptumst
við bræður nú oft um að sitja á
kistunni. Amma stóð þá gjarnan
við eldhúsbekkinn og hnoðaði deig
eða stakk plötu í ofninn. Þá var nú
aldeilis staðið undir nafni sem
„amma í brauðhúsum“ en það heiti
fylgdi henni allt til loka. Alltaf er
nú minnisstæðast hafrakexið sem
bragðaðist sérlega vel með smjöri
og osti.
Margt var líka brallað þegar
amma sá ekki til og gamlir vinir
mínir rifja stundum upp þegar
boðið var til veislu í kökuboxunum
í kjallara ömmu.
Allslags krossgátur og mynda-
gátur voru helsta dægradvöl
ömmu og mörg orðin verðlaunin
sem hún fékk fyrir innsendar
lausnir. Í þessu tók maður virkan
þátt og þóttist nú heldur betur lið-
tækur við þessi miklu heilabrot.
Ljóð las hún líka og Davíð frá
Fagraskógi var hennar maður.
Stundum hélt maður líka að hún
hlyti að muna allt þegar hún var
að snara fram vísum sem hún hafði
kannski heyrt þegar hún var í
Menntaskólanum.
Það er ómetanlegt að hafa feng-
ið að vera hérna í nágrenni við
ömmu núna síðustu tvö árin og að
litlu börnin okkar Sigrúnar fengu
að kynnast langömmu. Þau eiga
eftir að minnast þess síðar þegar
þau voru að læðast í jarðarberin
nú í sumar, nú eða finna íspinna í
frystinum, ein kynslóðin enn sem
nýtur góðmennsku ömmu.
Elsku amma mín, takk fyrir allt.
Ólafur Ármann.
Okkur bræðurna langar til þess
að minnast Ármanníu ömmu okkar
með nokkrum orðum. Frá því að
við munum fyrst eftir okkur hafa
heimsóknir til Ármanníu ömmu og
Bjössa afa verið fastur punktur í
lífinu. Þessu höfum við áttað okkur
betur og betur á eftir því sem við
höfum dvalið lengur og lengra að
heiman. Það að setjast niður yfir
kaffi og kökum hjá ömmu og gefa
sér góðan tíma í spjall hefur lengi
verið eitt af því sem fékk mann til
þess að líða eins og maður væri
kominn heim, þó svo að maður
væri í raun sestur að annars stað-
ar.
Minningarnar um heimsóknir í
eldhúsið á Aðalgötunni eru margar
og þær eru hlaðnar kleinum, kanil-
snúðum, kökusneiðum og brjóst-
sykursmolum og vættar í mörgum
lítrum af mjólk og gosi, og kaffi í
seinni tíð. Því eins og allir sem
hana þekktu vita tók amma aldrei í
mál að neinn færi heim án þess að
hafa fengið einhverja hressingu.
Því síður var henni um það gefið
að fólk færi af stað án þess að vera
fylgt almennilega til dyra og færi
þannig með vitið úr húsinu eins og
hún kallaði það sjálf. Stundum
reyndu ömmubörnin að hlaupast út
„með vitið“ en var ævinlega fylgt
af ömmu sem oftar en ekki hló að
látunum í okkur og hefur senni-
lega ekki séð eftir smá vitglóru í
kollinn á þeim sem komust undan.
Amma var sterkur karakter og
hana einkenndu viljastyrkur og
sjálfstæði, bæði í hugsun og hegð-
un. Hún setti ekki fyrir sig að
ferðast lengri eða skemmri leiðir
til þess að heimsækja sína nánustu
og gerði það fram í lengstu lög.
Það er með söknuði sem við
kveðjum Ármanníu ömmu en um
leið þökkum við fyrir allar þær
stundir sem við áttum með henni
og minningarnar um þær stundir
sem eru orðnar órjúfanlegur hluti
af okkur sjálfum.
Sigurbjörn Reginn Óskarsson,
Kristján Uni Óskarsson.
ÁRMANNÍA
ÞÓRLAUG
KRISTJÁNSDÓTTIR
Erfidrykkjur
Salur og veitingar
Félagsheimili KFUM & KFUK
Holtavegi 28, 104 Reykjavík.
Upplýsingar í síma 588 8899.
www.kfum.is
Í PERLUNNI
Erfidrykkjur
Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir amma
og langamma,
SIGURLAUG JÓHANNSDÓTTIR,
Huldugili 56,
Akureyri,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 13. október, verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 19. október
kl. 11.00.
Snæborg Stefánsdóttir, Bragi Stefánsson,
Jónas Stefánsson, Sigrún Kristjánsdóttir,
Fjóla Stefánsdóttir, Valur Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær unnusti minn, sonur og bróðir,
JÓHANN OTTÓ GUÐBJÖRNSSON,
Skessugili 14,
Akureyri,
sem lést sunnudaginn 10. október verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn
18. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heima-
hlynninguna á Akureyri.
Kristjana Árnadóttir,
Guðbjörn Þorsteinsson, Elín Anna Kröyer,
Margrét Kröyer,
Þorsteinn Guðbjörnsson.
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu
okkur stuðning, samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför
HALLDÓRU INGU INGÓLFSDÓTTUR,
Lyngbrekku 1,
Kópavogi.
Sigurður Kr. Ragnarsson,
Ásta Salný Sigurðardóttir, Viðar Snær Sigurðsson,
Sonja Erna Sigurðardóttir, Tómas Guðmundsson,
barnabörn og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁRNI MAGNÚSSON,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að
morgni fimmtudagsins 14. október.
Útförin auglýst síðar
Sigrún Helga Sigurhjartardóttir,
Guðrún Vala Árnadóttir,
Magnús Jón Árnason,
Líney Björk Árnadóttir.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og einlæga vin-
áttu vegna fráfalls og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, fóstur-
föður, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR S. ÞORMAR
verkfræðings,
Hvassaleiti 71.
Ólöf Ásgeirsdóttir Þormar,
Sigríður Björk Þormar, Björn Einarsson,
Valdimar Helgason, Helena M. Jóhannsdóttir,
Ásgeir R. Helgason
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR,
Hamrabergi 12,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 14. október.
Kristinn Karlsson,
Elfa Kristinsdóttir, Viðar Ófeigsson,
Karl Kristinsson, Linda María Ólafsdóttir
og barnabörn.