Morgunblaðið - 16.10.2004, Síða 43
og mér fannst húsið hennar bera
svolítinn ævintýraljóma. Stóð hátt
uppi á Bókhlöðustíg með útsýni yfir
allan bæinn, höfnina og Breiða-
fjörðinn. Þá eins og ævinlega var
heimili hennar snyrtilegt og rólegt.
Þar sem ég kynntist ekki föður
mínum, syni hennar sem dó langt
fyrir aldur fram, sagði hún mér frá
honum. Sagði mér hvað hann hefði
haft fyrir stafni og hverjir vinir
hans hefðu verið. Hún sýndi mér
hluti sem hann hafði átt og ljós-
myndir frá æskuárum hans. Þessi
samtöl hafa alltaf fylgt mér og fyllt
upp í það tómarúm sem myndast við
föðurmissi. Hún hjálpaði mér að
kynnast föður mínum og fyrir það
verð ég henni ævinlega þakklátur.
Seinna meir varð það að venju á
hverju sumri að heimsækja Klöru
ömmu í Hólminn. Í hvert sinn sem
rennt var í hlað tók hún fagnandi á
móti og oftar en ekki sat einhver hjá
henni við eldhúsborðið. Ekki brást
það að reiddar voru fram veitingar
sem eins og fyrir tilviljun voru ný-
bakaðar. Mjólk, og síðar meir kaffi,
með nýbakaðri köku við eldhús-
borðið varð að ánægjulegum stund-
um sem ég geymi glaður í hjarta.
Ég er einnig glaður með að synir
mínir hafi einnig fengið að kynnast
þessum stundum á Bókhlöðustígn-
um. Það skipti engu máli hvort það
var stutt á milli heimsókna til henn-
ar eða lengri tími leið, alltaf var tek-
ið á móti manni með sama rólega
viðmótinu og alltaf fékk maður
hjartnæmar móttökur.
Nú hefur Klara amma hlotið eilífa
ró og eftir standa minningar um fal-
lega konu og því er það með mikilli
hryggð sem ég kem einu sinni enn í
Hólminn til þess að kveðja hana í
hinsta sinn.
Jóhann Hansen.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 43
MINNINGAR
Bridsfélag
Reykjavíkur
Nú er lokið tveimur kvöldum af
fjórum í Swiss sveitakeppni félags-
ins. Staða efstu sveita er þannig:
1. Ljósbrá Baldursdóttir 48
2. Bernódus Kristinsson 45
3. Eykt 43
Karl Sigurhjartarson er efstur í
butlerútreikningi með 2,05 impa
skoraða að meðaltali í spili í 28 spil-
um. Sævar Þorbjörnsson er í öðru
sæti með 1,55 impa í 5 spilum en
þeir félagar eru báðir í sveit Ljós-
brár. Næstur í röðinni er Páll Þórs-
son með 1,44 impa úr sveit Kjartans
Ásmundssonar en síðan koma fé-
lagarnir úr Eyktarsveitinni, Jón
Baldursson og Þorlákur Jónsson
með 1,38 impa í 56 spilum.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 8. oktober var spilað
á níu borðum. Meðalskor var 216.
Úrslit urðu þessi.
N/S
Jón Pálmason - Sverrir Jónsson 257
Friðrik Hermanns - Sigurður Hallgrss. 247
Jón Gunnarss. - Sigurður Jóhannss. 241
A/V
Stefán Ólafsson - Kristján Þorlákss. 254
Sófus Berthelsen - Haukur Guðmunds 241
Árni Guðmundss - Hera Guðjónsd. 230
Þriðjudaginn 12. október var spil-
að á 12 borðum. Meðalskor var 216.
Úrslit urðu þessi.
N/S
Knútur Björnss. - Sæmundur Björnss. 266
Sævar Magnúss. - Bjarnar Ingimarss. 252
Árni Bjarnason - Þorvarður S. Guðmss.
247
A/V
Helgi Einarss - Ingimundur Jónsson 246
Sófus Berthelsen - Haukur Guðmundss. 242
Nanna Eiríksd. - Helga Haraldsd. 242
Bridsfélag
Borgarfjarðar
Mánudaginn 11. október var spil-
aður einskvöldstvímenningur á 9
borðum. Formaður kvartar enn yfir
dræmri mætingu því vitað er um
allnokkra af „fasta fylginu“ sem enn
ráfa stefnulausir á mánudagskvöld-
um. Vonandi verður fljótt breyting á
því. Af spilamennskunni er það að
frétta að menn eru misryðgaðir eftir
sumarið sem gefur tækifæri til að
skotskórnir séu nýttir óspart. Það
má sjá á risaskori Sveinbjörns og
Lárusar en þeir voru með rúm 72%
skor í sætum A-V.
Úrslit í N/S urðu annars sem hér
segir:
Elín Þórisdóttir – Guðm. Jónsson 63,2%
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 53,9
Þórhallur Bjarnas. – Brynjólfur Guðms.
52,7
A-V
Lárus Péturss. – Sveinbjörn Eyjólfss.72,0%
Anna Einarsdóttir – Jón Einarsson 59,2%
Flemming Jessen – Guðm. Þorsteinss.
53,9%
Næsta mánudagskvöld verður
enn spilaður einskvöldstvímenning-
ur og eru allir spilarar velkomnir
meðan húsrúm leyfir. Spilað er í
Logalandi í Reykholtsdal og hefst
spilamennska kl. 20:00 stundvíslega.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 11. október lauk
þriggja kvölda hausttvímenningi
með fádæma öruggum sigri Jörund-
ar Þórðarsonar og Hrafnhildar
Skúladóttur (Páls Þórs Bergsson-
ar). Parið gerði sér lítið fyrir og
fékk hæsta skorið á öllum þremur
spilakvöldunum. Eftirtalin pör náðu
hæsta skorinu í NS á þriðja spila-
kvöldinu:
Páll Þór Bergsson – Jörundur Þórðarson
265
Eðvarð Hallgrímss. – Magnús Sverriss. 239
Páll Jónsson – Ari Már Arason 228
Og hæsta skorið í AV kom í hlut
eftirtalinna para:
Helgi Bogason – Gyðjón Sigurjónsson 256
Heimir Tryggvason – Gísli Tryggvason 252
Árni M. Björnss. – Leifur Kristjánss. 220
Lokastaða efstu para í keppninni
varð þannig:
Hrafnhildur –Jörundur (Páll Þ.B.) 825
Heimir Tryggvason – Gísli Tryggvason 743
Eðvarð Hallgrímss. – Magnús Sverriss. 703
Árni M. Björnss. – Leifur Kristjánss. 694
Snorri Sturluson – Ingólfur Hlynsson 676
Næsta keppni félagsins sem hefst
18. október er þriggja kvölda
Butler-tvímenningur. Spila-
mennsku háttað eins og verið sé að
spila sveitakeppni. Reiknað út í
impum. Barðstrendingar og konur
eru hvött til að mæta í þessa
skemmtilegu keppni.
Félag eldri borgara í Kópavogi
Föstudaginn 1. október var spilað
á 10 borðum. Miðlungur var 216.
Úrslit urðu þessi:
N/S
Jóhann Benediktsson - Pétur Antonsson
255
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristóferss. 246
Einar Einarsson - Ólafur Lárusson 240
A/V
Guðjón Kristjánsson - Magnús Oddsson 296
Ingibjörg Halldórsd.- Sigríður Pálsd. 252
Auðunn Guðmss. - Bragi Björnsson 226
Þriðjudaginn 5. október var spil-
að á 7 borðum. Miðlungur var 268.
N/S
Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 236
Björn E. Björnss. - Hannes Ingibergss. 195
Guðm.Magnússon - Magnús Guðmss. 190
A/V
Ólafur Lárusson - Þorleifur Þórarinsson
189
Magnús Halldórsson - Magnús Oddsson 185
Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ásmundss. 175
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Hefðbundið vetrarstarf félagsins
hefst nk. miðvikudag með þriggja
kvölda tvímenningi. Suðurnesja-
menn eru hvattir til að taka fram
gjafahanskana og setja sig í keppn-
isskap.
Spilað er í félagsheimili bridsspil-
ara á Mánagrund og er mæting kl.
19.30 og er að venju heitt á könn-
unni.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
HEIMSMEISTARAEINVÍGI
Vladimir Kramniks og Peter Leko
fer senn að ljúka í Brissago í Sviss.
Tveim skákum er ólokið og leiðir
áskorandinn einvígið með sex og
hálfum vinningi gegn fimm og hálf-
um vinningi heimsmeistarans.
Næst síðasta skák einvígisins fer
fram í dag laugardaginn 16. októ-
ber en sú síðasta mánudaginn 18.
október. Rússneski heimsmeistar-
inn hafði frumkvæði í einvíginu til
að byrja með en eftir sigurs Leko í
fimmtu skákinni hefur sigið á
ógæfuhliðina fyrir Kramnik. Tafl-
mennska Leko hefur verið betri og
hann sýnt hvað eftir annað mikla
seiglu á erfiðum augnablikum. Sig-
urmöguleikar hans verða því að
teljast betri á lokasprettinum en að
sjálfsögðu getur allt gerst. Það er
merkilegt við þetta einvígi að báðir
keppendur virðast betur undirbún-
ir með svörtu en hvítu. Af þeim
skákum sem ekki hefur lokið með
jafntefli hefur svartur tvívegis bor-
ið sigur úr býtum en hvítur einu
sinni. Leko átti ekkert svar gegn
rússneskri vörn Kramniks þegar
hann hóf taflið með kóngspeði sínu.
Flestum að óvörum hefur Kramnik
alltaf leikið kóngspeðinu fram í
fyrsta leik þegar hann hefur haft
hvítt en það hefur litlu skilað.
Vendipunktur einvígisins fram að
þessu var í áttundu skák einvíg-
isins þegar Marshall afbrigði
spænska leiksins var upp á ten-
ingnum.
Hvítt: Vladimir Kramnik
Svart: Peter Leko
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7.
Bb3 O-O 8. c3
Fram að þessu hafði heims-
meistarinn aldrei gefið kost á
Marshall árásinni en hún þykir
standa traust í fræðunum og leiða
yfirleitt til jafnteflis. Í annarri,
fjórðu og sjöttu skákinni lék hann
8. h3 en komst lítt áleiðis gegn
vandaðri taflmennsku Ungverjans.
8...d5 9. exd5 Rxd5 10. Rxe5
Rxe5 11. Hxe5 c6 12. d4 Bd6 13.
He1 Dh4 14. g3 Dh3 15. He4 g5
Allt er þetta þekkt í fræðunum
og hefur reynslan sýnt að svartur
hefur nægt mótspil fyrir peðið sem
hann hefur fórnað. Næsti leikur
hvíts er sjaldgæfur en venjulega er
leikið 16. Df3.
16. Df1!? Dh5
16... Dxf1+ hefði verið lakara
þar eð eftir 17. Kxf1 f5 18. He1 f4
19. Rd2 stendur hvítur betur að
vígi. Þegar hér er komið sögu hafði
Leko eytt mun meiri tíma en
Kramnik.
17. Rd2 Bf5 18. f3
Þetta er raun og veru nýjung en
hugmyndin er þekkt þar sem að
taki svartur skiptamuninn fær
hvítur of mikið spil fyrir hann:
18...Bxe4 19. fxe4 Re3 20. Df3 og
hvítur stendur betur.
18...Rf6 19. He1 Hae8 20. Hxe8
Hxe8 21. a4
Nú virðist sem hvítur standi bet-
ur og að sókn svarts sé strand en
áskorandinn finnur snjalla leið til
að verða sér úti um mótspil.
21... Dg6! 22. axb5?
Þetta er tapleikurinn en hvítur
hefði haldið jafnvæginu eftir 22.
Re4 Rxe4 23. fxe4 Bxe4 24. Bxg5!
bxa4 (24... Bd3?! 25. Bxf7+ Dxf7
26. Dxd3 og hvítur stendur betur)
25. Bc4 Bd5 með jöfnu tafli.
22... Bd3 23. Df2 He2 24. Dxe2
Bxe2 25. bxa6
Nú virðist sem hvítur hafi mynd-
að sér öflugt mótspil í formi frels-
ingjans á a-línunni en svartur á
krók á móti bragði.
25... Dd3! 26. Kf2
26. a7 hefði ekki gengið upp
vegna mátnets sem svartur hefði
þá spunnið með 26...De3+ 27. Kg2
Bxf3+! 28. Rxf3 De2+ 29. Kg1
Rg4 30. a8=D+ Kg7 og hvítur get-
ur lítið varist máthótunum svarts. Í
framhaldinu teflir sókn svarts sig
sjálf.
26... Bxf3! 27. Rxf3 Re4+ 28.
Ke1 Rxc3! 29. bxc3 Dxc3+ 30. Kf2
Dxa1 31. a7 h6 32. h4 g4 og hvítur
gafst upp.
Björn Þorfinnsson nær
sínum öðrum áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli
Ferð Hellismanna á Evrópu-
keppni taflfélaga lauk farsællega
þegar liðið lagði sveitina E. Dudel-
ange frá Lúxemborg og einn sveit-
armeðlima, Björn Þorfinnsson,
náði sínum öðrum áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli með sigri á al-
þjóðlega meistaranum Fred Ber-
end. Sigurður Daði Sigfússon var
grátlega nærri sínum fyrsta áfanga
að titlinum en hann getur engu að
síður vel við unað enda fékk hann
flesta vinninga sveitarmeðlima eða
5 vinninga af sjö mögulegum. Stef-
án Kristjánsson tefldi við stór-
meistara í hverri umferð nema í
þeirri síðustu og án efa verður það
mikilvæg reynsla fyrir hann þegar
átök Ólympíuskákmótsins á Mall-
orca standa sem hæst. Hann tapaði
fyrstu þrem skákunum sínum en
fékk svo 2½ vinning í síðustu fjór-
um. Liðið endaði rétt fyrir neðan
miðju eða í 22.-26. sæti af 36
keppnisliðum en franski klúbbur-
inn NAO vann mótið örugglega.
Það er lofsvert framtak hjá Tafl-
félaginu Helli að senda lið á þetta
mót á hverju ári enda ekki oft sem
margir af sterkustu skákmönnum
koma saman eins og í þessari
keppni.
Haustmót Taflfélags Reykja-
víkur – Dagur eða Jón Viktor
verða meistarar félagsins
Fyrir lokaumferð Haustmóts
Taflfélags Reykjavíkur voru Dagur
Arngrímsson og Jón Viktor Gunn-
arsson jafnir og efstir með sex
vinninga af átta mögulegum. Fast
á hæla þeirra kom Kristján Eð-
varðsson með fimm og hálfan vinn-
ing. Það hefur verið ánægjulegt að
Dagur velgdi Jóni undir uggum í
keppninni um efsta sætið. Hugs-
anlega hefur hann þar haft betur
en keppni lauk í gær föstudaginn
15. október. Í b-flokki hafði Jóhann
H. Ragnarsson vinningsforskot á
Þorvarð Fannar Ólafsson fyrir
lokaumferðina og á sama tíma
leiddi Kristján Örn Elísson með
hálfum vinningi umfram næstu
menn í C-flokknum. Í opna flokkn-
um leiðir Grímur Daníelsson flokk-
inn með 6½ vinning en á humátt á
eftir koma Svanberg Már Pálsson
og Daði Ómarsson með 6 vinninga.
Það væri til mikillar fyrirmyndar
af mótshöldurum að þeir hefðu til-
tækar allar skákir mótsins á Net-
inu til að auðvelda umfjöllun um
það. Krafa nútímans er að svo verði
gert og væri strax orðið skárra ef
hægt væri að nálgast skákirnar úr
a-flokknum á Netinu.
Ólympíuskákmótið á Mallorca
Fyrir tilstyrk MP-fjárfestingar-
banka sitja íslenskir skákmenn í
opnum og kvennaflokki að tafli fyr-
ir hönd þjóðarinnar á Ólympíu-
skákmótinu sem er nýhafið í Calvia
á Mallorca. Spennandi verður að
fylgjast með gengi beggja liða en
sjaldan eða aldrei hefur íslenska
kvennaliðið verið jafn sterkt og nú.
Hægt verður að fylgjast með gangi
mála hér á síðum blaðsins en einnig
á Netinu á www.skak.is.
Leko með undirtökin í
heimsmeistaraeinvíginu
SKÁK
Brissago, Cesme og Ísland
BJÖRN ÞORFINNSSON NÆLIR SÉR Í
ÁFANGA
Október 2004
Helgu. Þar sem og heima hjá Helgu
í Keflavík, var líf og fjör daginn inn
og daginn út. Helga og Árni eign-
uðust sinn eigin sumarbústað á
Þórshöfn þar sem Helga og Árni
heitinn eyddu sínum sumarstund-
um. Húsið heitir Oddi og þar fékk
ég minn síðasta kaffibolla og kleinu
á Þórshöfn sumarið 2003. Þar sem
og alstaðar sem Helga fór var hlát-
ur, söngur og ánægja.
Ég hef þessa sömu tengingu við
Þórshöfn. Ég á svo yndislegar
minningar frá Þórshöfn bæði sem
barn og síðar sem fullorðinn maður.
Ég, ásamt móður minni og fóstra,
gistum ávallt í Bræðraborg, þar
sem Nonni, Ingimar og Dísa
bjuggu (síðustu árin einungis
Nonni). Lífið í Bræðraborg er um-
vafið ævintýraljóma hjá mér enn
þann dag í dag og minnist ég oft
þeirra daga þegar húsið var fullt af
fólki, gestum og frændfólki alstaðar
af landinu. Umræðan var alltaf
skemmtileg og hress, sögur sagðar
af gömlum tímum og mikið hlegið
og mikið gaman, langt fram eftir
morgni. Farið var í reglulegar ferð-
ir út í Heiði og Dísa stjórnaði
lummukaffinu sem og nestismálum,
og þar var ekkert til sparað.
Alstaðar sem þetta fólk kom
saman var ánægja, hlátur, söngur
og kærleikur. Ég vildi svo sann-
arlega að mín börn hefðu notið
þessa að vera með og að kynnast
þessum systkinum, því erfitt er að
lýsa þeim áhrifum sem þau hafa
haft á mitt líf. Helga og móðir mín,
Bára, voru oft eins og systur frekar
en frænkur. Mjög mikill samgangur
á milli þeirra, mikil vinátta og kær-
leikur. Ég veit að móðir mín hefur
misst góða og trausta vinkonu við
frá fall Helgu, og vona ég að hún fá
styrk frá þeim minningum sem hún
hefur um góðar stundir þeirra á
milli.
Helga, ég þakka þér allar þær
minningar, góðu stundir, hlátur, og
kærleika sem þú gafst mér. Ég og
Leslie munum aldrei gleyma þér og
þeim góðu minningum sem þú veitt-
ir okkur.
Ég bið góðan Guð að styrkja fjöl-
skyldu Helgu í sinni sorg og votta
mína dýpstu samúð og vona að það
sé einhver styrkur í því að nú er
Helga komin heim og á fullt að
nýju.
Kveðja,
Ingimar Örn Pétursson.