Morgunblaðið - 16.10.2004, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 49
DAGBÓK
Kringlukast
Undirfatnaður og
náttfatnaður með
20%
afslætti
á Kringlukasti
Kringlunni 8-12, sími 553 3600,
www.olympia.is
Afmælisþakkir
Þakklæti til vina.
Mér er efst í huga núna þakklæti til allra
minna góðu vina sem heiðruðu mig í tilefni
áttræðis afmælis míns þann 3. október sl.
Það er gott að finna vináttu ykkar.
Bestu kveðjur,
Páll Gíslason, læknir.
Ídag kl. 14 verður haldinn fræðslufundur ávegum MS-félags Íslands, þar sem SverrirBergmann taugalæknir mun segja fráhelstu nýjungum í meðferðarúrræðum og
rannsóknum á MS-sjúkdómnum. Rúmlega þrjú
hundruð Íslendingar þjást af MS-sjúkdómnum,
sem er ólæknandi taugasjúkdómur í miðtaugakerf-
inu. MS kemur í köstum sem varað geta frá nokkr-
um klukkustundum upp í nokkra mánuði og getur
valdið allt frá vægum sjóntruflunum og doða upp í
lömun í verstu tilfellum. Á hverju ári greinast tólf
einstaklingar með MS, oftast á aldrinum tuttugu til
fjörutíu ára.
Engin lækning er enn fundin við MS-sjúkdómn-
um, en á síðustu árum hafa komið fram ýmis lyf,
sem halda honum í skefjum, draga úr tíðni kasta og
fresta þannig eða koma í veg fyrir fötlun. Nýlega
hefur hafist hér á Íslandi krabbameinsmeðferð hjá
MS-sjúklingum sem eru lengra komnir í sjúkdómn-
um. Þessi meðferð hefur verið notuð í Englandi,
Bandaríkjunum og Rússlandi í fimm til sex ár og
eru góðar vonir bundnar við hana og mjög lítið um
aukaverkanir.
„Þessi sjúkdómur er meðal algengustu sjúkdóma
sem ungt fólk fatlast af. Hann kemur fram hjá fólki
á unga aldri, þegar það er í námi og e.t.v. að stofna
fjölskyldu, þannig að veruleg röskun verður á hög-
um fólks fyrir utan það áfall að fá þessa sjúkdóms-
greiningu,“ segir Sigurbjörg Ármannsdóttir, for-
maður MS-félagsins, sem hefur haft MS-sjúk-
dóminn í þrjátíu og átta ár, frá því hún var sextán
ára. Sigurbjörg segir að á síðustu árum hafi bata-
horfur og meðferðarúrræði MS-sjúklinga gjör-
breyst til hins betra. „Það unga fólk sem er að
greinast í dag á góða möguleika á að sjúkdómurinn
valdi því ekki alvarlegri fötlun og hafi ekki mjög
mikil áhrif á þeirra daglega líf,“ segir Sigurbjörg,
sem sjálf er í hjólastól en getur þó gengið nokkuð.
Sigurbjörg fékk brjóstakrabbamein fyrir sjö árum
og lauk meðferð ári seinna. Í kjölfar meðferðar-
innar hafa MS-einkenni hennar minnkað verulega
og færni aukist.
Hver eru fyrstu skref nýgreindra MS-sjúklinga?
„Það er afskaplega persónubundið. Nýgreindum
MS-sjúklingum er flestum bent á félagið, en það er
síðan undir einstaklingnum sjálfum komið hvort
hann kýs að hafa samband við félagið strax eða
hvort hann bíður. Það er mikið áfall að fá svona
greiningu og fólk þarf tíma til að sætta sig við þetta
og átta sig á þessari nýju stöðu. Á vegum MS-
félagsins eru haldin námskeið þar sem félags-
ráðgjafar, læknir, hjúkrunarfræðingur og iðjuþjálfi
leiðbeina nýgreindum og hjálpa fyrsta spölinn.
Einnig er boðið upp á makanámskeið og hjóna-
námskeið.“
Miðtaugasjúkdómar | Fræðslufundur MS-félagsins um meðferðarúrræði og rannsóknir
Batahorfur nýgreindra mun betri
Sigurbjörg Ármanns-
dóttir er fædd á Nes-
kaupstað árið 1949.
Hún hóf kennaranám í
Kennaraskólanum en
MS-sjúkdómurinn
breytti þeim áformum.
Sigurbjörg hefur starf-
að við verslun, en und-
anfarna tvo áratugi
hefur hún sinnt mál-
efnum MS-félagsins og
fatlaðra. Sigurbjörg hefur setið í stjórn MS-
félagsins frá árunum 1981 til 1994 sem ritari. Í
október í fyrra var hún kjörin formaður MS-
félagsins. Þá er hún gjaldkeri Mannverndar.
Sigurbjörg er gift Gylfa Sigurðssyni verkfræð-
ingi og eiga þau einn son.
Góð þjónusta hjá ríkinu
ÞAÐ er alltaf verið að kvarta undan
slæmri þjónustu hjá ríkinu. En ég er
með góða reynslu af því. Þannig var
að ég þurfti að hafa samband við rík-
isskattstjóra vegna bifreiðaskatts.
Ég hringdi og var svarað að allir lín-
ur væru uppteknar og ég beðinn um
símanúmer og svo hringt yrði í mig.
Ég hafði ekki mikla trú á þessu en
eftir 5 mínútur var hringt í mig og
ég gat rætt þetta mál. Svo var aftur
hringt eftir 10 mínútum til að leið-
beina mér betur í málinu. Þetta kalla
ég frábæra þjónustu.
Síðan þurfti ég að hafa samband
við Tryggingastofnun. Talaði ég þar
við Ólöfu Sif Bjarkar. Þetta var erf-
itt mál sem hún lagði sig fram við að
leysa og hringdi hún þó nokkrum
sinnum í mig og leysti málið.
Svona framkomu teljum við til
fyrirmyndar.
Kristján og María.
Þakkir fyrir Íslandsdvöl
ÞETTA var í fyrsta skipti sem ég
kom til Íslands eftir langa bið, og
það var frábært. Ég vil senda öllum
þakkir sem gerðu dvöl mína eftir-
minnilega. Þakkir til alls þess
skemmtilega fólks sem ég hitti á Ís-
landi, ekki síst starfsfólks Íshesta
sem komu mér í kynni við íslenska
náttúru og einnig starfsfólks Ís-
landsbanka sem aðstoðaði mig.
Ég mun segja öllum sem ég þekki
frá þessari ferð.
Anna Radivoj, Svíþjóð.
Tvíhöfði yfir strikið
MIG langar að koma á framfæri
gagnrýni til Tvíhöfða, en þeir eru
með fréttatíma í Íslandi í dag á Stöð
2. Í síðasta þætti fjölluðu þeir um
kennaraverkfallið og erfiðleika for-
eldra vegna barna í verkfalli. Þeir
bentu á að kannski væri leið fyrir
foreldra að fara í Tryggingastofnun
ríkisins til að fá börnin sín úrskurð-
uð þroskaheft til að börnin kæmust á
undanþágu í Öskjuhlíðarskóla.
Fannst mér mjög grimmilegt af
þeim því það hefur enginn tryggingu
fyrir því þegar barn fæðist að það
fæðist heilbrigt. Það hafa líklega
mörg börn horft á þennan þátt sem
eru í Öskjuhlíðarskóla og spyrja sig
hvort þau séu verri en önnur börn í
grunnskólum. Það eru ekki allir
sáttir við undanþágur og best væri
að þessu lyki sem fyrst.
Fannst mér þessi þáttur vera
þeim félögum til vansa.
Móðir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. d4 Be7
5. Bg5 h6 6. Bh4 O-O 7. e3 b6 8. Hb1 c6
9. b4 Bb7 10. c5 Rbd7 11. Bd3 e5 12.
dxe5 Re8 13. Bg3 bxc5 14. bxc5 Rxc5
15. O-O Rc7 16. Rd4 R7e6
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í
Cesme í Tyrklandi. Mikhail Krasenkov
(2676) hafði hvítt gegn sænska alþjóð-
lega meistaranum Bjorn Ahlander
(2411). 17. Hxb7! Rxb7 18. Rxc6 De8
19. Rxd5 hvítur stendur nú til vinnings
enda vinna menn hans einstaklega vel
saman. 19...Bg5 20. Bb5 Kh8 21. Rxa7
Dd8 22. Rc6 Dd7 23. h4 Rbd8 24. hxg5
Rxc6 25. gxh6 Hxa2 26. Bxc6 Dxc6 27.
Rb4 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
ÍSLENSKU menningarkynningunni í París sem hófst þann 27. september
lauk sl. sunnudagskvöld með glæsilegum og vel heppnuðum tónleikum
Kammersveitar Reykjavíkur undir stjórn Bernharðs Wilkinson í Mogador-
tónleikahöllinni.
Á efnisskrá tónleikanna voru eingöngu íslensk verk eftir tónskáldin Atla
Heimi Sveinsson, Jón Nordal, Jón Leifs, Leif Þórarinsson, Pál Pampichler
Pálsson og Þorkel Sigurbjörnsson.
Einsöngvarar voru Gunnar Guðbjörnsson, Bergþór Pálsson, Rannveig
Fríða Bragadóttir og píanóleikari var Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Tónleikana sóttu á sjöunda hundrað manna og voru viðtökur sérlega
góðar að sögn Rutar Ingólfsdóttur konsertmeistara Kammersveitarinnar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Kammersveit Reykjavíkur og tónskáldin Þorkell Sigurbjörnsson og Páll P. Pálsson á sviði Mogador-tónleikahallarinnar í París, í lok tónleikanna.
Vel sóttir tónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur í París
BÓKAFORLAGIÐ
Bjartur hefur gefið
út ljóðabókina
Svona er að eiga
fjall að vini eftir Vé-
stein Lúðvíksson. Í
bókinni eru 122
knöpp ljóð, sem
fjalla um stöðu
mannsins and-
spænis innri og ytri náttúru.
Ljóð
BÓK spurninganna
eftir Pablo Neruda
er komin út í þýð-
ingu Þóris Jóns-
sonar Hraundal.
Bjartur gefur út.
Í bókinni eru 316
spurningar sem Ner-
uda ritaði í minnis-
bækur á síðustu
mánuðum ævi sinnar og komu út að
honum látnum. Spurningarnar krefjast
ekki svara en eru frekar hugleiðingar
um líf og forgengileika, tækni og nátt-
úru, grimmd og miskunn.