Morgunblaðið - 16.10.2004, Page 53

Morgunblaðið - 16.10.2004, Page 53
Morgunblaðið/Kristinn Sigfús Eymundsson: Brúará um 1880. NÚ ÞEGAR fagnaðarlætin vegna enduropnunar Þjóðminjasafnsin eru að mestu hljóðnuð, er rík ástæða til að vekja athygli á opnunarsýning- unni í sal myndadeildar safnsins á fyrstu hæð þess, en henni lýkur nú um helgina. Í fyrsta sinn gefst myndadeildinni tækifæri til að sýna reglulega og á eigin forsendum, þær gersemar sem hingað til hafa aðeins verið geymdar í dimmum öskjum – og því að mestu haldið fjarri sjónum almennings. Bjartur salurinn hentar prýðisvel fyrir sýningu á ljósmyndum og ekki síst þessum gömlu merku frum- prentum, sem iðulega eru afar smá og svo fínleg að gestir þurfa að rýna í þau. En sú rýni er svo sannarlega ómaksins virði. Á sýningunni eru verk um tuttugu ljósmyndara; portrett, landslag, myndir af byggðum og bæjum, sam- komum og hlutum. Þetta eru ljós- myndir sem skrásetja þróun sam- félagsins frá torfbæjum til vélvæðingar; þær sýna konur í peysufötum; fólk í skemmtiferðum; menn við kjötverkun; börn á ösku- dagsskemmtum – fjölbreytileikinn er mikill. Eins og heiti sýningarinnar ber með sér, Mótum íslenskrar ljós- myndunar 1846–1926, þá kynnast gestir verkum frumherjanna sem beita stórum klunnalegum tækjum, og síðan þróuninni yfir í minni myndavélar og handhægari og skoða útkomuna hjá þeim ljósmyndurum. Það er alltaf jafn sláandi að sjá frumprent Sigfúsar Eymundssonar (1837–1911) en þau opna sýninguna. Hann var svo sannarlega ljósmynd- ari á heimsmælikvarða. Og það er full ástæða til að endurskoða ríkjandi hugmyndir um að fyrsta kynslóð ís- lensku málaranna, Þórarinn B. Þor- láksson og félagar, hafi verið fyrstir íslenskra myndlistarmanna til að meta landið og náttúru þess út frá sjónarmiði fegurðarinnar. Ljós- myndir Sigfúsar eins og úr Al- mannagjá og af Brúará, báðar frá um 1880, og úr Hvalfirði og úr Marardal, frá um 1890, eru óviðjafnanlegar. Og ekki eru síðri ljósmyndir hans frá Reykjavík, eins og þar sem horft er frá Skólavörðunni 1877 eða frá höfn- inni um 1875. Í þessum myndum birt- ist afar sérstök og tær formskynjun. Flestir ljósmyndaranna eiga nokkrar myndir á sýningunni, og virðist reynt að gera grein fyrir höf- undareinkennum hvers og eins með valinu. Þetta eru vissulega mis- áhugaverðar myndir, og misgóðar frá listfræðilegu sjónarmiði, en heild- in er afar sterk og inn á milli eru sannkallaðar perlur. Þar má nefna ljósmyndir Nicoline Weywadt (1848– 1921) frá Djúpavogi, að vetri og sumri; ljósmynd Árna Thorsteins- sonar (1870–1962) af báti á Tjörninni í Reykjavík um 1900; makalausa mynd Gunnhildar Thorsteinsson (1887–1948) af konum við fiskþvott á Vestfjörðum um 1905 og ljósmynd Magnúsar Gíslasonar (1881–1969) af uppboði á Eyrarbakka um 1904, þar sem fjöldi fólks fyllir út í forgrunn- inn. Á miðju gólfi er síðan skápur með sjaldséðum gersemum. Þar eru í fyrsta sinn sýndar margar daguerró- týpur úr safni Þjóðminjasafnsins, en þær eru fyrsta birtingarform ljós- myndunar; litlir og viðkvæmir gripir, silfurhúðaðar koparplötur með ágreyptri myndinni. Hér eru tólf daguerrótýpur, þar á meðal stór- merkar myndir af Sveinbirni Egils- syni og Benedikt Gröndal. Þá eru í skápnum ellefu svokallaðar tintýpur og fimm ambrótýpur, þar á meðal ein með vangamynd Sigurðar Guð- mundssonar málara. Loks má geta þess að á einum vegg salarins eru litlar portrett- myndir frá 19. öld og upphafi þeirrar 20., eftir marga ólíka ljósmyndara, og suma óþekkta. Þær myndir er einnig gaman að grúfa sig yfir og rýna aftur í tímann, í ásjónur fólks sem er löngu horfið. Þessi opnunarsýning ljós- myndasalar Þjóðminjasafnsins er að- standendum til mikils sóma, og full ástæða til að hvetja fólk til að skoða sjaldséðar gersemar frumherja ís- lenskrar ljósmyndunar áður en þær hverfa aftur í dimmar geymslur safnsins. Gersemar MYNDLIST Þjóðminjasafnið Opið alla daga nema mánudaga 11–17. Sýningunni lýkur sunnudaginn 17. októ- ber. MÓTUN ÍSLENSKRAR LJÓSMYNDUNAR 1846–1926 Einar Falur Ingólfsson MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 53 MENNING Það er svolítið sérstakt aðþegar ég hengi verkin uppþá sé ég þau í allt öðruljósi. Það er næstum hægt að lesa þau eins og egypskt mynd- letur – og það var eitthvað sem ég hafði ekkert pælt í.“ Það er Guðjón Ketilsson myndlistarmaður sem segir frá, meðan hann mælir út plássið á veggjum Listasafns ASÍ, Ásmundarsal, en klukkan þrjú í dag opnar hann þar sýningu á verk- unum, sem öll eru verkfæri – og Verkfæri, er einmitt heiti sýning- arinnar. Og hvað eru verkfæri? Hlutir sem við búum til, til að auð- velda okkur dagleg störf – eða hug- myndir sem kannski geta gagnast okkur við eitthvað sem við vitum ekki ennþá hvað er. Guðjón spyr um hlutverk, spyr um form, spyr um sögu, spyr um handtak. „Til hvers skyldi þetta nú vera?“ spyr kona á safni og er engu nær þegar henni er sagt að þetta sé dixill. Fyrir henni er verkfærið formið eitt – erindi þess er henni ókunnugt. „Verkfæri okkar eru ekki eins og aðrir hlutir. Þau standa okkur nær en aðrir hlutir, jafnvel nær en náttúran sjálf,“ segir Jón Proppé í sýningarskrá Guðjóns, sem útskýrir, að verkfærin séu eins konar framhald af okkur sjálfum – framlenging á getu okkar – hæfileiki okkar til að brjótast í gegnum tak- markanir eigin líkama. „Reyndar hafði ég pælt mikið í uppsetningunni á verkunum, vegna þess að þau gefa svo mikla mögu- leika í uppsetningu. Á vinnustofunni var ég búinn að þekja alla veggi, þannig að hún leit út eins og veggur á byggðasafni. Reyndar eru gömul byggðasöfn svolítill hvati að því að ég fór að smíða þessi verkfæri fyrir þremur árum, ekki síst verkfærin sem ég vissi ekki tilganginn með, en gat skoðað á fagurfræðilegan hátt, þótt vitneskjan væri auðvitað fyrir hendi um að þau væru ekki bara skúlptúrar, heldur hlutir með til- gang. En verkfærin eru líka fram- hald af mínum fyrri verkum, þótt það virki kannski ekki svo við fyrstu sýn. Þetta eru dauðir hlutir í sam- hengi við líkamann, en ég hef áður unnið bæði með klæði og skó og ým- islegt fleira, þar sem hluturinn er staðgengill líkamans. Verkfræin eru framlenging á líkamanum og hug- anum þar með.“ Það á eftir að finna verkfærum Guðjóns tilgang, og hann segir mér að fyrir nýjar hugmyndir, þurfi auð- vitað ný verkfæri – því ættu verk- færi hans að geta orðið hvati að því að eitthvað nýtt verði til. Flest verk- færin eru komin upp á vegg, og búið að raða restinni á gólfið, við þá staði þar sem þau skulu hanga í dag. „Mér finnst magnið skipta máli í þessu tilfelli,“ segir Guðjón. „Verk- færasafn höfðar til mín – ég skal al- veg viðurkenna það. Hlutirnir eru misjafnir í öllum skilningi, og ein- stakir, þótt mér finnist grúppa af svona hlutum spennandi.“ En hvað um áhorfandann? Á hann að leita tilgangsins, lesa í tólin eins og myndletur, eða bara skjóta þrí- víddarsýninni á þá eins og hverja aðra skúlptúra? „Ég get svo sem ekki haft nein áhrif á það, en mark- miðið er auðvitað að velta upp spurningum um eðli verkfæra og samhengi þeirra við myndlist. Þetta eru allt spurningar sem ég á ekkert endilega svör við. Ég hef til dæmis velt því fyrir mér hvort hægt sé að kalla hlut verkfæri, þegar ekki er búið að finna honum hlutverk. Hvað um einfaldan hlut eins og skóhorn? Kannski hefur einhver rekið augun í svona hlut og hugsað mér sér að hann myndi henta til þessa verks. Það getur vel verið að í mörgum til- fellum hafi hluturinn komið á undan tilganginum. Kannski er það tím- anna tákn – þó ekki í neikvæðri merkingu – að hlutir verði hvati að athöfnum. Mér finnst líka atriði að hluturinn kenni þér á sig; að þú sjáir hvar á að halda og að það sé á þann hátt ákveðin samræða milli hans og áhorfandans. Það hefur verið mjög spennandi að fá gesti á vinnustof- una, þegar þeir hafa farið á flug, að fabúlera um það hvað hægt væri að gera við þessa hluti. Þá hefur oft skapast skemmtilegt samtal.“ Myndlist | Guðjón Ketilsson sýnir Verkfæri í Listasafni ASÍ – Ásmundarsal Verkfæri leita nýrra verka Morgunblaðið/Golli Guðjón Ketilsson: „Er hægt að kalla hlut verkfæri, þegar ekki er búið að finna honum hlutverk?“ Fréttasíminn 904 1100 SÆNSKI kvikmyndaleikstjórinn Ingmar Bergman upplýsir í nýrri bók, að meðhöfundur hans, Maria von Rosen, sé í raun og veru dóttir hans. Í bókinni, sem heitir Tre dag- böcker, er m.a. fjallað um sam- band Bergmans og Ingrid von Rosen, móður Mariu. Að sögn sænska blaðsins Aftonbladet segir Bergman, sem er 86 ára, frá því í bókinni, að þau Ingrid hafi kynnst árið 1957 en voru þá bæði gift öðr- um. Bergman og Ingrid hófu sambúð 1970 og bjuggu saman þar til Ing- rid lést fyrir 9 árum. Laundóttir Bergmans Ingmar Bergman

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.