Morgunblaðið - 13.04.2003, Blaðsíða 21
www.noatun.isOpið alla daga til 21
Verði þér að góðu!
f
a
s
t
la
n
d
-
8
8
1
0
Pinot Gris frá Elsass
Það koma engin Chardonnay-vín
frá Elsass en hvítvínin þaðan eru
engu að síður einhver þau bestu í
heimi. Þarna eru það þrúgurnar
Riesling, Pinot Blanc, Gewurzt-
raminer og síðast en ekki síst Pin-
ot Gris sem ráða ríkjum. Það er
ekki síst Pinot Gris sem vakið hef-
ur athygli upp á síðkastið. Þetta er
eitt af þeim betri. Framleiðandinn
Pierre Sparr sendir ekkert frá sér
sem ekki er skothelt og þetta vín er
engin undantekning. Fersk angan
af blómum og kryddum, þykkt
og seiðandi með þykku allt að
því feitu bragði en jafnframt
ferskri sýru er gefur víninu
kraft og líf.
Sauvignon Blanc
frá Nýja-Sjálandi
Cloudy Bay er tvímælalaust
þekktasta vín Nýja-Sjálands og
raunar það vín sem kom Nýja-
Sjálandi og þá ekki síst Sauv-
ignon Blanc-vínum landsins á
kortið. Það hefur verið fáanlegt
á veitingahúsum hér á landi
um árabil og er nú loksins fáan-
legt á sérlista. Þetta er vín sem
klikkar aldrei, er alltaf jafn un-
aðslega gott. Nú er Cloudy Bay
2002 á markaðnum. Ávöxturinn
í nefi, ferskur en samt djúpur
og þroskaður, skarpur, en samt
þykkur. Sætur greip, perur en
líka nýslegið gras og blóm. Í
munni langt og mikið. Ynd-
islegt eitt og sér en jafnframt
gott með sjávarréttum, ekki
síst þegar einhver asísk áhrif
eru fyrir hendi.
Kostar 1.990 krónur.
Austurrískur Riesling
Austurrísk hvítvín eru einhver
þau bestu sem framleidd eru í
heiminum. Þau er hins vegar
jafnframt best geymda leynd-
armál vínheimsins. Tvö stór-
kostleg austurrísk Riesling-vín
eru fáanleg hér á landi.
Langenloiser Stein-
massel Riesling 2001
Þurrt, þykkt og feitt yfirbragð,
smjörkennt í bland við ávöxt-
inn. Í nefi má greina nýbakaða,
ljósa kransaköku, sykur,
möndlur og djúpan ávöxt. Vínið
er langt og mikið í munni, sýr-
an mikil en mild og í fullkomnu
jafnvægi við aðra þætti.
Kostar 1.910 krónur.
Zöbinger Heiligenstein
Riesling Lyra 2001
Lyra-vínið frá Bründlmayer er
talið eitt af allra bestu vínum
Austurríkis og ekki að ófyr-
irsynju. Það er stórkostlegt.
Ávöxturinn í nefi er sætur, mað-
ur finnur fyrir þroska þrúgn-
anna og einkenni vínsins
áþekk þeim er maður finnur í
eðalsætum vínum þar sem
botrytis er kominn til sög-
unnar. Vínið hins vegar þurrt
og sætan einungis í hinum
mikla ávexti. Hvítvín gerast
ekki mikið betri.
Kostar 2.990 krónur.
HVÍTVÍN
eins góðum tökum á þessari þrúgu og Nýsjálend-
ingar. Bestu Sauvignon Blanc-vín andfætlinganna
standast bestu vínum Evrópu úr þessari þrúgu fylli-
lega snúning og stundum vel það.
Helsti galli Sauvignon Blanc er að þrúgan er farin
að njóta það mikilla vinsælda að margir víngerð-
armenn eru farnir að misnota hana, láta vínin liggja
of lengi í eikartunnum þannig að þau verða nánast
eins og ... Chardonnay. Karaktereinkenni þrúgunnar
njóta sín best þegar hún fær að standa ein og óstudd
án snertingar við eik.
Pinot Gris er sömuleiðis þrúga sem nýtur vaxandi
vinsælda hér sem annars staðar. Það er athyglisvert
að sjá á sölutölum að Pinot Gris-vín frá Elsass eru nú
orðin vinsælli en Riesling-vínin frá sama héraði. Þau
virðast eiga mjög vel við íslenskan smekk, ljúf ein og
sér og einstaklega fjölhæf með mat, allt frá sígildum
frönskum réttum yfir í rétti þar sem matargerðin er
undir austurlenskum áhrifum. Ítölsku vínin úr sömu
þrúgu, sem raunar er nefnd Pinot Grigio á Ítalíu,
fara sömuleiðis sigurför um heiminn. Í Bandaríkj-
unum eru þau nú orðin söluhæstu hvítvínin og Ís-
lendingar eru einnig farnir að kveikja á þeim. Til
dæmis má mæla með vínum frá framleiðendunum
Tommasi og Vie di Romans.
Og loks má ekki gleyma Gewurztraminer-
vínunum, þessum þykku og krydduðu bragð-
sprengjum Elsass-héraðsins. Eða þá Viognier-
þrúgunni sem er uppistaða hinna dýru Condrieu-
vína í Rón en er nú einnig fáanleg í ódýrari útgáfum
frá Suður-Frakklandi eða Argentínu þar sem aprí-
kósueinkenni hennar njóta sín engu að síður. Eða
hina argentínsku Torrontes, fersk og ávaxtamikil
vín, sem falla vel að íslenskum sjávarréttum.
Svona mætti lengi áfram telja. Chardonnay-vínin
eru góð og vissulega jafnast fátt á við til dæmis gott
vín frá Chablis. Einhæfni er hins vegar leiðinleg til
lengdar og þeir sem festast í Chardonnay-gildrunni
fara á mis við mörg af bestu hvítvínum heims.