Morgunblaðið - 24.12.2004, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18 sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Flugsæti með sköttum. Netverð pr. mann
Sértilboð á gistingu í
einstaklingsherbergi á Senator hótelinu
5.900 kr. Verð pr. nótt.
Skelltu þér um áramótin til
Zürich
frá kr. 19.990
Heimsferðir bjóða einstakt tækifæri til að njóta áramótaveislu í Sviss á
ótrúlegum kjörum. Beint flug til Zürich kl. 8.30 að morgni 29. des. og
til baka 1. jan. kl. 19.30. Í Zürich er heillandi stemmning um jól og ára-
mót, hin stórkostlega flugeldasýning um hver áramót er stærsta partý
í Sviss. Þangað koma þúsundir til að upplifa stemmninguna og njóta
matar og drykkjar á hverju götuhorni fram eftir nóttu.
inn, þ.e. ákveðið
margir tímar á
hvern leikskóla-
kennara, en við
vorum með hug-
myndir um að
breyta því þannig
að tíminn væri
miðaður bæði við
barnafjölda á
deild og fjölda
menntaðra starfsmanna á deildinni.
Eins og fyrirkomulagið er í dag þá
er mikið misvægi milli deilda, eftir
því hversu margir kennarar eru
með [leikskólakennara]menntun.
Því snerust hugmyndir okkar um
það að breyta skipulaginu.“
Faglærðir deildarstjórar
fá leiðréttingu launa sinna
Við starfsmat Reykjavíkurborgar
sem tók gildi í byrjun vetrar, fengu
ófaglærðir deildarstjórar hærri laun
en deildarstjórar í FL.
Björg segir að með nýja samn-
ingnum hafi náðst leiðrétting á
BJÖRG Bjarnadóttir, formaður Fé-
lags leikskólakennara (FL), telur
nýgerðan kjarasamning við sveitar-
félögin mikilvægan áfanga en minn-
ir á að mikil vinna sé nú fyrir hönd-
um varðandi könnun á vinnu-
fyrirkomulagi deildarstjóra og
undirbúningstíma þeirra. Í nýja
samningnum, sem verður borinn
undir atkvæði félagsmanna í janúar,
er kveðið á um eins tíma aukningu á
undirbúningstíma fyrir sérkennara
sem starfa í leikskólum. Þeir fá því
nú fimm klukkustundir á viku í und-
irbúning fyrir starf sitt sem er sami
stundafjöldi og deildarstjórar fá.
Engin breyting var gerð á undir-
búningstíma deildarstjóra í samn-
ingnum. Sú vinna er eftir og mun
samstarfsnefnd sveitarfélaga og FL
ráðast í að skipuleggja könnun á
starfsfyrirkomulagi strax á nýju ári.
Vegna þeirrar vinnu, sem ekki
vannst tími til að fara í í þessari
samningalotu, gildir nýi kjarasamn-
ingurinn aðeins til tveggja ára eða
til 30. september árið 2006.
Meiri undirbúnings-
tíma var krafist
„Við vorum með kröfu um aukinn
undirbúningstíma í leikskólum og
það er sú vinna sem við þurfum að
fara í strax í upphafi árs,“ segir
Björg. „Þetta var of mikið og stórt
verkefni til að leysa við kjarasamn-
ingaborðið nú.“
Björg segir að samninganefnd
FL hafi í samningaviðræðunum sett
fram hugmyndir um breytt skipulag
varðandi undirbúningstíma deildar-
stjóra. „Þetta hefur hingað til ein-
göngu verið bundið við einstakling-
þessu. „Þessi munur er leiðréttur,“
segir Björg. „Við unnum út frá nið-
urstöðum starfsmatsins, svo það
hallar ekki lengur á leikskólakenn-
ara í þeim samanburði.“
Samkvæmt samningnum eru
meðallaunahækkanir deildarstjóra
um 20% við lok samningstímans, en
meirihluti félagsmanna FL er deild-
arstjórar á leikskólum. Deildar-
stjórar, ásamt yngsta hópi leik-
skólakennara fá mestar launa-
hækkanir af félagsmönnum FL með
nýja samningnum. Sé tekið dæmi
um 30 ára almennan leikskólakenn-
ara verður hann með í lok samn-
ingstíma 184.329 kr. í mánaðarlaun
en var með 159.071 kr. áður. Þrítug-
ur deildarstjóri fær samkvæmt
samningnum tæp 211 þúsund í mán-
aðarlaun við lok samningstímans en
var með 179.192 kr. Dæmin miðast
við að þessir einstaklingar séu með
tvo launaflokka fyrir símenntun, að
sögn Bjargar.
Launakostnaður sveitarfélaga
hækkar um rétt rúman milljarð á
tímabilinu við samninginn. Þar af
falla um 465 milljónir til á árinu
2005 og um 490 milljónir á árinu
2006. Launakostnaðurinn eykst því
um rúm 13% á tímabilinu.
Kjarasamningur
gerður án átaka
Samningurinn hefur nú verið
sendur trúnaðarmönnum félagsins
til skoðunar. Verður hann kynntur
fyrir leikskólakennurum um land
allt í byrjun janúar. Í kjölfarið fer
fram atkvæðagreiðsla og á niður-
staða hennar að liggja fyrir í lok
janúar. Samningurinn nær til tæp-
lega 1.500 leikskólakennara sem
starfa hjá sveitarfélögunum í land-
inu.
„Ég vona vissulega að samning-
urinn verði samþykktur,“ segir
Björg. „Ég tel þetta mikilvægan
áfanga á þeirri leið að ná mark-
miðum okkar. Ekki síst að ná því að
gera kjarasamning án átaka og með
gildistíma frá 1. desember.“
Leikskólakennarar og sveitarfélögin sömdu til tveggja ára en samningurinn kostar um milljarð
Björg Bjarnadóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungir leikskólakennarar og deildarstjórar hækka mest í launum við samn-
ing Félags leikskólakennara. Flestir félagsmenn FL eru deildarstjórar.
Launamunur
vegna starfsmats
Reykjavíkur-
borgar leiðréttur
Deildarstjóri fær 211 þús.
við lok samningstímans
„MÉR finnst ég aldrei hafa fundið jafnmikið fyrir því
hvað það er víða mikil óánægja og hvað það er víða mik-
ið um erfiðleika,“ segir Kári Eyþórsson, sem er sjálf-
stætt starfandi fjölskylduráðgjafi, varðandi samskipti
fólks og ekki síst samskipti fjölskyldna nú í jólaösinni.
Kári segir vandamálin kannski ekki vera frábrugðin nú
og undanfarin jól en hann kveðst aldrei hafa fundið
jafnsterkt fyrir þessum vandamálum fólks og nú.
Kári segir óvenjumikið vera um væringar og deilur í
hjónaböndum um þessar mundir, þar sem hraðinn og
kröfur samfélagsins eru orðnar svo gríðarlegar. Ekki
sé samræmi milli væntinga og þess sem fólk ræður við
og getur. „Það er ofsalega þung undiralda, finnst mér.
Það er mikil pressa á fólki,“ segir Kári og bætir við að
fólki finnist pressa vera á því að hafa nægan tíma, pen-
inga og í raun að hafa nóg af öllu. Hann segir þetta enda
í mikilli óánægju og vonbrigðum sem breytist gjarnar í
deilur og slíkt nái oftar en ekki hápunkti um jólin.
Hann segist fá til sín mikið af fólki sem glímir við
vandkvæði sem fylgja erfiðum fjölskyldutengslum, erf-
iðu álagi og erfiðum aðstæðum fyrir jólin. „Fólk vill oft
fara í uppgjör á mörgu þegar fer að líða að jólum. Það
liggur við að það eigi að taka til í fjölskyldunum alveg
eins og eigi kannski að þrífa skápana um jólin,“ segir
Kári og líkir þessu við óánægjuský sem hangi yfir fólki.
Hann segir mikið álag í október og nóvember sem end-
ar oft í mikilli streitu, taugaspennu og uppgjöri milli
fólks þegar jólahátíðin kemur. „Það er óvenjumikið um
það að fólk skilji í þessu annríki sem er,“ segir Kári og
bendir á að þetta eigi jafnt við allar þjóðfélagshópa
landsins.
Aðspurður segist hann fá einstaklinga, hjón og jafn-
vel heilu fjölskyldurnar í ráðgjöf til sín. Kári segir rót
vandans oftar en ekki hafa verið uppsafnaða þreytu. Sú
þreyta leiði oft til þess að fólk gefi sér ekki tíma til þess
að ræða um hlutina og upphefst misskilningur vegna
þess. „Það er allt of algengt að tjáskipti séu í algjöru
lamasessi, ekki bara milli hjóna heldur í fjölskyldum.
Það er bara ekki talað saman öðruvísi en í skipunum og
oft í hávaða og látum,“ segir Kári og bætir því við að
fólk sé farið að líta á ást sem sjálfsagðan hlut sem eigi
bara að vera í lagi án fyrirhafnar.
„Fólk vill oft fara í uppgjör
þegar fer að líða að jólum“
FYRSTU mínúturnar líða hægt á meðan
maður er að venjast lyktinni en síðan kemst
á jafnvægi. Maður hættir að blaka nasa-
vængjunum og fer að haga sér eðlilega við
matborðið. Það er skatan, þorláksmessuskat-
an, sem hefur þessi áhrif. Sumir segja að
meira púður hafi verið í skötuveislum hér áð-
ur fyrr, þá hafi einn munnbiti af skötu jafn-
gilt kjaftshöggi. Aðrir tala alltaf um hversu
góð skatan sé fyrir hreinsun ennisholanna.
Enn aðrir vilja hvorki sjá né borða skötuna.
„Sumt af yngra fólkinu lætur ekki sjá sig
hérna,“ segir Hlöðver Ólafsson, mat-
reiðslumaður í Borgartúni 7, þar sem starfs-
menn ýmissa opinberra stofnana borða.
Þetta er fimmta árið sem Hlöðver eldar ofan
í mannskapinn og hann fær ágætiseinkunn
hjá fólkinu úti í sal. „Þetta er frábær kokk-
ur,“ segir starfsmaður Vegagerðarinnar og
heldur áfram að borða skötuna.
Skatan kemur frá Fiskbúð Hafliða og með
henni er borinn fram hnoðmör og hamsar
ásamt smjöri. „Það er viss kjarni sem finnst
skatan góð,“ segir Hlöðver.
Á Naustinu er margt um manninn og þar
er skötulyktin enn sterkari en í Borgar-
túninu. Það kann að vera ástæðan fyrir því
að eldhússtarfskonan Mignon Davenpoart
náði sér í forláta grímu til að verjast lykt-
inni. Ekki skal þó fullyrt um hversu mikil
vörn gríman veitti. Mignon lét sig svo sem
ekki muna um að taka hana niður til að
rabba við mann og annan. Hádegisverð-
argestir streyma inn og sumir hafa komið í
þorláksmessuskötuna á Naustið í áratugum
saman. Þingmenn og viðskiptamenn eru
þarna meðal gesta og háma í sig gráleita
skötubitana. Og þjónn sést hella íslensku
brennivíni í staup. Eiríkur Finnsson, mat-
reiðslumeistari á Naustinu, gætir þess að
nóg sé á boðstólum og er á þönum inn og út
úr eldhúsinu.
Kristinn Guðmundsson, yfirmatreiðslu-
maður á Hótel Borg, vill hafa skötuna sína
léttkæsta og segir vel kæsta skötu bara fyrir
hörðu karlmennina. Sjálfur telst hann til
mýkri manna. Kann hann einhver ráð til að
losna við lyktina? „Nei, engin ráð, hún verð-
ur bara að fá að vera enda er hún partur af
stemningunni,“ segir hann.
Skötulyktin stæk og góð
Eiríkur Finnsson og Mignon Davenpoart á
Naustinu umlukin skötulyktinni.
Hákon Svavarsson, Hlöðver Tómasson, Elmar Svavarsson og Svavar Óskarsson á Naustinu.