Morgunblaðið - 24.12.2004, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 9
FRÉTTIR
Gleðileg jól
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið frá kl. 10-12 í dag
Lokað mánudag
Mjódd, sími 557 5900
Sendum viðskiptavinum okkar
bestu óskir um gleðilega jólahátíð
Gleðileg jól!
Síðumúla 3, sími 553 7355
Opið í dag, aðfangadag,
frá kl. 10-13.
Lokað mánudaginn 27. desember.
undirfataverslun
Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460
www.belladonna.is
Vertu þú sjálf! Vertu bella donna
Sendum viðskiptavinum okkar um land allt
Bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt nýtt ár.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Starfsfólk Foldar.
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
Laugavegi 170, 2. hæð • Sími 552 1400 • Fax 552 1405
www.fold.is • fold@fold.is
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali.
Óskum viðskiptavinum okkar nær
og fjær og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
STURLA Böðvarsson samgönguráð-
herra lagði fram á ríkisstjórnarfundi
samning sem Vegagerðin hefur gert
við Samskip um að fjölga ferðum
Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs
milli lands og eyja um tvær á viku í
desember, janúar og febrúar. Út-
vegsmannafélag Vestmannaeyja hef-
ur skorað á forsætisráðherra að beita
sér fyrir að ferðum verði fjölgað enn
frekar en Sturla segir að niðurstaðan
sé sú að ekki sé talin ástæða til þess.
Samkvæmt samningnum fjölgar
ferðum skipsins um tvær á viku og
verða þær því tíu á viku þessa þrjá
mánuði. Ferðunum fjölgar síðan í ell-
efu í vor og í þrettán yfir sumarmán-
uðina eins og verið hefur.
Ákveðið var að fjölga ferðum Herj-
ólfs yfir vetrarmánuðina til að mæta
því að Eimskip hætti strandsigling-
um 1. desember. Sturla sagði að það
hefði verið mat aðila að ekki væri
ástæða til að fjölga ferðunum frekar.
Samkvæmt upplýsingum frá skipa-
félögunum verða siglingar vikulega
til Evrópuhafna frá Eyjum svo sem
verið hefur og varðandi Ameríkusigl-
ingar verði skip send til Vestmanna-
eyja er þörf krefur.
Ferðum Herjólfs hefur fjölgað úr
419 í 595 á ári eða um 42% frá því
siglingar ferjunnar voru boðnar út
árið 1999. Farþegum hefur einnig
fjölgað verulega á þessu tímabili.
Þeir voru 6.543 árið 1999 að jafnaði á
viku árið 1999, 9.525 á viku árið 2003
og það sem af er þessu ári hafa þeir
verið 11.357 en þá eru vetrarmánuð-
irnir ekki taldir með.
Útvegsbændafélagið ekki sátt
Magnús Kristinsson, formaður Út-
vegsbændafélags Vestmannaeyja, er
ekki sáttur við þessa niðurstöðu.
„Það eru mér mikil vonbrigði að
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra skuli hafa komist að þeirri nið-
urstöðu að ekki sé ástæða til að fjölga
ferðum Herjólfs milli lands og Eyja
umfram það sem þegar hafði verið
ákveðið,“ segir í yfirlýsingu frá
Magnúsi.
„Því verður vart trúað að ríkis-
stjórnin og þingmenn kjördæmisins
láti þar við sitja.
Útvegsbændafélag Vestmanna-
eyja hefur fært gild rök fyrir því að
Herjólfur sigli tvisvar alla virka daga
á milli lands og Eyja, alls þrettán
sinnum í viku. Tvær ferðir alla virka
daga eru í raun lífsspursmál fyrir út-
gerð, fiskvinnslu og annan atvinnu-
rekstur í Vestmannaeyjum. Þetta er
jafnframt augljóst réttlætismál fyrir
Eyjamenn alla.
Hér sitjum við Eyjamenn ekki við
sama borð og flestir aðrir lands-
menn. Þess vegna getur ekki ríkt
friður um niðurstöðu samgönguráð-
herrans þrátt fyrir að nú fari í hönd
sjálf hátíð ljóss og friðar.“
Ferðum Herjólfs ekki
fjölgað meira en orðið er
FYRIR hendi er markaður og eftir-
spurn eftir góðum óáfengum
drykkjum sem henta við ýmis tæki-
færi að sögn Halldórs Árnasonar,
formanns Bindindisfélags öku-
manna (BFÖ). Félagið hefur hleypt
af stokkunum verkefni til þess að
vekja athygli á óáfengum drykkjum,
en verkefnið er unnið í samstarfi við
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, Sam-
tökum ferðaþjónustunnar og styrkt
sérstaklega af forvarnasjóði.
Að sögn Halldórs hafa kannanir
sýnt fram að á bilinu 20-25% Íslend-
inga 20 ára og eldri neyta aldrei
áfengis og þeim til viðbótar kjósa
margir að neyta ekki áfengis við til-
teknar aðstæður. „Á þetta fólk ekki
sinn rétt á að láta taka tillit til sinna
óska og þarfa?“ spyr Halldór sem
telur svo vera. Hann segir að meiri
fjölbreytni í óáfengum drykkjum
megi vera á boðstólum t.d. á
veitingastöðum annað en gos og
vatn. Nauðsynlegt sé að sinna þess-
um hópi neytenda sem vill geta valið
líkt og neytendur áfengra drykkja
um fleiri en eina tegund.
Þar sem hátíðahöld með tilheyr-
andi veislum og samkomuhaldi þykir
BFÖ tímasetningin á verkefninu því
vera við hæfi. Félagið leggur þó
áherslu á að vandað sé til fram-
reiðslu á óáfengum drykkjum, þann-
ig að þeir verði ekki annars flokks.
Að auki leggur BFÖ að drykkirnir
séu einfaldir í framreiðslu þannig að
það sé lítið mál fyrir fólk að blanda
sér góðan óáfengan drykk.
Halldór segir BFÖ hafa sett sig í
samband við ÁTVR fyrr á þessu ári
og hafi fyrirtækið brugðist mjög vel
við og aukið úrvalið af óáfengum
drykkjum til sölu í verslunum sínum.
„Fólk getur farið inn í vínbúðir og
fengið gæðavín þó óáfeng séu,“ segir
Halldór.
BFÖ kynnti á blaðamannafundi
óáfenga drykkinn Fiesta 2005, en
uppistaðan í honum er nokkrar teg-
undir af ávaxtasöfum og ísmolar.
Höfundur drykkjarins er Bárður
Guðlaugsson kennari og fagstjóri í
framreiðslu við Hótel- og matvæla-
skólann í Menntaskólanum í Kópa-
vogi. Bárður varð Íslandsmeistari
faglærðra barþjóna 1993 og heims-
meistari sama ár. Nemendur Bárðar
hafa búið til sínar eigin uppskriftir
að óáfengum drykkjum og er hægt
að sjá uppskriftirnar á www.braut-
in.is.
Vilja aukið
framboð á
óáfengum
drykkjum
Morgunblaðið/RAX
Árni Einarsson, framkvæmdastjóri fræðslumiðstöðvar í fíknivörnum, Hall-
dór Árnason, formaður BFÖ, Bárður Guðlaugsson, höfundur Fiesta 2005,
Guðmundur Karl Einarsson, formaður ungmennadeildar BFÖ, og Guðni
Björnsson, í samstarfsráði um forvarnir, fengu sér óáfengan drykk.
YFIR 2.100 Íslendingar hafa skráð
sig sem heimsforeldra, en UNICEF
Ísland hefur síðan í maí á þessu ári
staðið fyrir sérstöku átaki á þessu
sviði. Þeir sem gerast heimsfor-
eldrar styrkja verkefni UNICEF
með mánaðarlegu framlagi. Í
fréttatilkynningu frá UNICEF seg-
ir að þessi styrkur færi börnum um
allan heim nýja von.
Morgunblaðið er stuðningsaðili
UNICEF Ísland og hefur veitt bæði
faglegan og fjárhagslegan stuðning
við kynningu átaksins. Hægt er að
gerast heimsforeldri með því að
hringja í síma 575 1520 eða senda
póst á heimsforeldri@unicef.is.
Harry Belafonte er góðgerðar-
sendiherra UNICEF.
2.100 hafa
gerst heims-
foreldrar