Morgunblaðið - 24.12.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 24.12.2004, Síða 11
Í UNDIRBÚNINGI er að stofna félagshóp fyrir ungt fólk á aldrinum16 til 26 ára sem glímir við þunglyndi og kvíðaröskun og reiknað með að hann taki til starfa eftir áramótin. Að sögn Dagnýjar Þórmundsdóttur og Valgeirs Matthíasar Pálssonar, sem standa að stofnun hópsins, er markmiðið að unga fólkið hittist og geri eitthvað skemmtilegt saman, fari í bíó, leikhús, kaffihús, keilu o.s.frv. Engin skilyrði eru fyrir þátttöku önnur en þau að áfengi og vímuefni eru á bannlista hjá hópnum. Markmiðið er að hópurinn hittist að minnsta kosti einu sinni í viku og oftar ef eitthvað skemmtilegt sé í boði. Þau segja að þótt bæði Geðhjálp og klúbburinn Geysir séu með góða starfsemi sé fátt af ungu fólki sem fari þangað og því sé greinileg þörf fyrir hóp af þessu tagi fyrir ungt fólk þar sem áherslan er ekki að ræða um sjúkdóminn heldur vera saman og skemmta sér á heilbrigðan og eðlilegan hátt. „Það vantar eitt- hvað sem er bara fyrir ungt fólk,“ segja Dagný og Valgeir. Þau segja stefnt að því að vera líka með síma sem ungt fólk geti hringt í, þar sem ungt fólk tali við ungt fólk, ekki ósvipað og jafningjafræðslan er. Þá ætli þau að kynna sjúkdóminn í skólum enda sé hann algengur í aldurshópnum 16 til 26 ára, fólk sé oft að uppgötva sjúkdóminn á þeim aldri. Morgunblaðið/Jim Smart Dagný Þórmundsdóttir og Valgeir Matthías Páls- son hafa haft forystu um stofnun hópsins. Vilja stofna félagshóp ungs fólks með þunglyndi MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 11 FRÉTTIR „ÉG VISSI ekki hvert ég ætlaði,“ segir Elín Magnúsdóttir þegar nafn hennar var dregið í jólaleik Kringl- unnar og útvarpsstöðvarinnar Bylgjunnar. Elín vann Fiat-bíl til af- nota í eitt ár auk þess sem allur rekstrarkostnaður af bílnum á árinu verður greiddur fyrir hana. Ennfremur fékk Elín 100 þúsund króna gjafabréf frá bensínstöðinni ÓB. Elín segir vinninginn hafa kom- ið sér einstaklega vel. Hún hafi lent í umferðaróhappi fyrir rúmri viku þar sem hún klessti sinn bíl illa. „Þetta er jólagjöfin í ár,“ segir Elín sem er 75% öryrki og þykir vinningurinn draumi líkastur. „Nú getum við farið í heimsókn til ætt- ingja sem við höfum ekki getað séð í lengri tíma,“ segir Elín varðandi hvað sé framundan hjá sér og syni sínum. Aðspurð segist hún núna vera svo sannarlega tilbúin fyrir jólin. Morgunblaðið/Árni Torfason „Þetta er jólagjöfin í ár“ STEFNT er að því að matvælarann- sóknir fari að mestu fram hjá einni sjálfstæðri stofnun í framtíðinni og hefur Vísinda- og tækniráð óskað eftir því við forsætisráðherra að hann skipi starfshóp sem undirbúi sameiningu matvælarannsókna í eina stofnun. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri ályktun ráðsins. Starfshópur sem forsætisráðherra hafði áður skipað um matvælarann- sóknir lagði til að þær færu fram hjá einni öflugri stofnun, Matvælarann- sóknastofnun Íslands, og að hún hefði aðsetur í Reykjavík. Öflugt rannsóknasetur yrði byggt í tengslum við hana á Akureyri og ná- in tengsl höfð við ýmsa háskóla. Notkun erlendra gagnasafna margfaldast Fram kemur í ályktun ráðsins að það styður sameiningu Iðntækni- stofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins sem starfshóp- ur skipaður af iðnaðarráðherra hef- ur lagt til. Beinir ráðið því til ráð- herra að vinna áfram að sam- einingunni á grundvelli greinar- gerðar starfshópsins. Á fjölmörgu öðru er tæpt í ályktun ráðsins. Hefur menntamálaráðherra falið vísindanefnd ráðsins að gera til- lögu í samstarfi við hagsmunaaðila um hvernig grunnfjárveitingum til rannsókna á háskólastigi verði best háttað í framtíðinni. Þá beinir ráðið því til menntamálaráðherra að hann skipi starfshóp sem geri tillögur um hvernig staðið verði að rekstri og kostnaði af landsaðgangi að erlend- um vísindatímaritum sem tekinn var upp árið 2001. Hefur notkun er- lendra gagnasafna margfaldast á fáum árum. Áskriftarkostnaður vegna landsaðgangs er nú alls um 54 milljónir króna á ári en að auki greið- ir samlag á vegum Landspítala – há- skólasjúkrahúss sérstaklega 12 m. kr. fyrir aðgang að ritum á heilbrigð- issviði. Yfir 20 milljarða ársvelta Í ályktun Vísindaráðs kemur fram að menntamálaráðherra hefur skip- að starfshóp sem hefur það hlutverk að gera tillögur að leiðum sem glætt geta áhuga nemenda í grunn- og framhaldsskólum á námi og starfi í raunvísinda- og tæknigreinum. Mun hópurinn skila af sér starfs- og kostnaðaráætlun fyrir 1. febrúar á næsta ári. Fram kemur að nálægt 3.000 manns vinna að verkefnum og rann- sóknum við fjölmargar stofnanir á vegum Vísinda- og tækniráðsins í dag og er veltan yfir 20 milljarðar á ári. Matvælarannsóknir undir einn hatt Matvælarann- sóknastofnun Ís- lands verði stofnuð LÖG um skógrækt frá árinu 1955 gefa ekki góða mynd af því hvernig unnið er að skógrækt á vegum hins opinbera þar sem áherslur hafa breyst í skógrækt með tilkomu landshlutabundinna skógræktar- verkefna. Er því tímabært að huga að setningu nýrra skógræktarlaga. Þá hefur umfang landshlutabund- inna skógræktarverkefna orðið mun minna en upphaflega stóð til þar sem minna fé hefur verið veitt til þeirra. Ósennilegt er talið að það markmið verkefnanna að klæða 5% láglendis skógi á 40 árum náist og að nauðsyn- legt sé að uppfæra úreltar áætlanir í samræmi við veruleikann. Þetta er meðal niðurstaðna athug- unar Ríkisendurskoðunar á lagaum- hverfi Skógræktar ríkisins og lands- hlutabundinna skógræktarverkefna. Tilgangur endurskoðunarinnar var að kanna hvernig stjórnvöld framfylgja lögum um skógrækt og landshlutabundin skógræktarverk- efni og meta hvernig til hefur tekist. Einnig var metið hvort opinber stefna í skógræktarmálum samrým- ist löggjöfinni og hvort ástæða kunni að vera til að endurskoða lagareglur. Þrenn lög um landshlutabundin skógræktarverkefni Í niðurstöðum segir m.a. að á síð- ustu 15 árum hafi skógrækt á vegum hins opinbera aukist mjög með til- komu laga um landshlutabundin skógræktarverkefni. Aukin framlög til skógræktar marki þáttaskil í skógrækt. Árið 1998 var rúmum 200 milljónum króna veitt til skógræktar á uppfærðu verðlagi, árið 2002 var það 233 milljónir og 242 milljónir í ár. Þrenn lög taka til landshluta- bundnu skógræktarverkefnanna og er talið æskilegt að löggjöfin verði samræmd og að sömu reglur gildi um það öll. Fram kemur í niðurstöð- um Ríkisendurskoðunar að fyrir nokkrum árum hafi landbúnaðar- ráðuneytið stefnt að því að einfalda umgjörð skógræktar og landshluta- bundinna skógræktarverkefna en ekki sé unnið að því sem stendur. Segir að ráðuneytið telji æskilegt að breyta nokkuð löggjöf um lands- hlutabundnu verkefnin og telur Rík- isendurskoðun rétt að ráðuneytið skilgreini nánar helstu galla á skóg- ræktarlöggjöfinni í heild og að hugað verði að nauðsynlegum lagabreyt- ingum. Ríkisendurskoðun segir áherslur hafa breyst í skógrækt Tímabært að endurskoða löggjöf um skógrækt MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi: „Vegna fréttar í Mbl. 22. des- ember síðastliðinn, varðandi af- greiðslu dómsmálaráðherra á umsókn Þjóðarhreyfingarinnar um leyfi til fjársöfnunar á götum og í húsum, vill Þjóðarhreyfingin taka eftirfarandi fram: Fjársöfn- un Þjóðarhreyfingarinnar til að andmæla þætti íslenskra ráða- manna í hernaðarinnrásinni í Írak er enn í fullum gangi. Sem fyrr er söfnunarsíminn níu-núll- tuttuguþúsund og fólk getur einnig lagt málefninu lið með því að leggja inn á söfnunarreikning 833 í SPRON.“ Þjóðarhreyfingin – með lýð- ræði. Söfnunin enn í fullum gangi FORSÆTISNEFND Reykjavíkur- borgar samþykkti nýverið reglur um kjör og starfsaðstöðu kjörinna full- trúa. Þetta er gert í tengslum við stjórnkerfisbreytingarnar sem taka gildi um áramót. Árni Þór Sigurðs- son forseti borgarstjórnar segir að aukinn kostnaður borgarinnar vegna þessa verði hugsanlega nokkur hundruð þúsund krónur á mánuði. Breytingarnar taka til borgarfull- trúa og þeirra sem sitja í nefndum á vegum borgarinnar. Í samþykktinni eru dregnar saman ýmsar reglur sem hafa gilt um kjör þessara aðila en slík samþykkt hefur ekki áður verið gerð. Árni Þór Sigurðsson segir að með stjórnkerfisbreytingum verði nefnd- um fækkað en þær fái einnig fleiri hlutverk og aukna ábyrgð. Breyting- unum sé ætlað að koma til móts við þetta. Meðal helstu breytinganna frá gildandi reglum eru þær að borgar- fulltrúi þarf nú að sitja í tveimur fastanefndum til að fá óskert laun í stað þriggja fastanefnda áður. Þá eykst skerðingarhlutfall grunnlauna ef þessu er ekki náð, ef borgar- fulltrúar sitja í einni nefnd skerðast laun um 25% en ef þeir sitja ekki í nefnd þá skerðast laun þeirra um 50%. Menn fá ekki aukalega greitt fyrir setu í fleiri nefndum. Laun borgarfulltrúa eru 80% af þingfar- arkaupi. Þegar breytingarnar taka gildi verður aðeins greitt álag fyrir formennsku í fagráðum og borgar- ráði en ekki fyrir formennsku í öðr- um fastanefndum. Þá fá borgar- fulltrúar 40.000 króna greiðslu vegna kostnaðar s.s. síma, netteng- ingar á heimili, áskriftar dagblaða, ferða innan höfuðborgarsvæðisins o.þ.h. Árni segir að kostnaðar- greiðslur muni ekki hækka vegna þessa. Í nefndum á vegum borgarinnar sitja margir sem ekki eru borgar- fulltrúar. Þóknun fyrir setur í nefnd- um hækkar úr 14% af þingfarar- kaupi í 16%, nema þóknun vegna setu í skipulags- og byggingarnefnd lækkar úr 18% í 16%. Ný samþykkt forsætisnefndar Reykjavíkurborgar Kjörum breytt vegna stjórn- kerfisbreytinga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.