Morgunblaðið - 24.12.2004, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
FISKISKIPAFLOTINN verður að
mestu í landi yfir hátíðarnar. Þó
munu einhver skip vera að veiðum
yfir jólin og milli jóla og nýárs má
ætla að einhver skip rói, a.m.k. ís-
fisktogarar sem veiða fyrir stærstu
fiskvinnslurnar.
Stígandi VE er eitt þeirra skipa
sem verða við veiðar yfir jólin en
skipið er nú við karfaveiðar á Síðu-
grunnskantinum. Alls eru 15 skip-
verjar um borð og sagði Guðmann
Magnússon, skipstjóri, ágæta jóla-
stemningu ríkja um borð. Margir
skipverjanna séu vanir því að vera
á sjónum yfir jólin. „Hér verður
góður matur og svo fara menn inn í
klefa sína og taka upp pakkana frá
sínum nánustu,“ segir Guðmann en
á matseðlinum í dag er m.a. ham-
borgarhryggur, ananasfrómas og
Bailey’s-frómas. Guðmann segist
treysta því að mannskapurinn á
Stíganda verði vel haldinn yfir jól-
in, enda sé Jónína Magnúsdóttir,
sem sér um matseldina þar, mikill
veislukokkur.
Guðmann segir að unnið sé um
borð yfir alla hátíðisdagana. Menn
reyni þó að hafa sem rólegast yfir
jólatímann. Stígandi heldur svo til
hafnar í kringum 10. janúar á ný-
árinu.
Vinnslu lauk í landvinnslu Brims
hf. á Akureyri fyrir hádegi í gær, á
Þorláksmessu, og liggur vinnslan
niðri til 3. janúar nk. Þrír ísfisktog-
arar; Sólbakur EA, Harðbakur EA
og Árbakur EA, fara á miðin milli
jóla og nýárs og afla hráefnis fyrir
landvinnsluna strax eftir áramótin.
Það hefur verið unnið stíft í land-
vinnslunni síðustu daga og starfs-
fólk hefur lagt mikið á sig til þess
að ljúka vinnslunni tímanlega í
dag, en í upphafi vikunnar voru um
tvö hundruð tonn sem biðu vinnslu.
Tvo daga í þessari viku hófst
vinnsla kl. 05 og afköstin hafa verið
mikil. Til marks um það fóru rösk-
lega 62 tonn í gegnum húsið sl.
þriðjudag og hátt í sextíu tonn á
miðvikudag. Öll skip Síldarvinnsl-
unnar hf. eru komin til hafnar og
liggja jólaljósum prýdd í höfninni.
Veiðar gengu vel í síðustu veiðiferð
ársins hjá þeim. Barði NK kom
með 55 tonn af ísuðum fiski til
vinnslu og útflutnings og um 4,5
milljónir af frosnum afurðum. Beit-
ir NK lauk síldarvertíðinni með
glæsibrag og veiddi 12.001 tonn frá
1. nóvember til 20. desember.
Börkur NK fór síðustu veiðiferðina
á árinu til loðnuveiða og landaði
tæpum 1.500 tonnum og þar af
voru fryst um 380 tonn á Rúss-
landsmarkað.
Mannskapurinn
vel haldinn yfir jólin
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Sólbakur EA liggur nú ljósum prýddur í höfn en fer til veiða strax eftir jól.
JÓLASTRESSIÐ hrjáir marga en rannsóknir sýna að Omega-3 fitusýrur
hjálpa til við að komast yfir depurð og kvíða í skammdeginu. Á vef norska út-
flutningsráðsins segir að 150 þúsund Norðmenn þjáist skammdegisþung-
lyndi, auk þess sem um 450 þúsund til viðbótar glími við minni háttar depurð.
Í skammdeginu framleiðir heilinn minna af serotonin eða „hamingjuhorm-
óninu“ svokallaða. Serotonin róar og stýrir viðbrögðum líkamans við kvíða
og spennu. Fitusýrur í fiski og lýsi hjálpa til við stjórna serotonin-flæði frá
heilanum. Lágt serotonin-gildi í heila er tengt skorti á Omega-3 fitusýrum og
getur valdið streitu og depurð. Heilinn er nánast eingöngu fita. Mikilvægasta
fitutegundin er Omega-3 fitusýran DHA og má ætla að í svartasta skamm-
deginu þurfi heilinn á aukaskammti af fjölómettuðum fitusýrum að halda.
Líkaminn framleiðir ekki fitusýruna DHA, heldur vinnur hana úr fæðu. Hún
finnst í miklum mæli í feitum fiski, s.s. laxi, silungi, makríl, síld og lúðu.
Japanskar rannsóknir hafa sýnt að nemendur með lágt Omega-3 fitusýru-
innihald í blóðinu voru uppstökkari undir álagi. Bandarísk rannsókn leiddi í
ljós að neysla á fjölómettuðum fitusýrum dregur úr hvatvísi og ofbeldis-
hneigð. Bresk rannsókna gaf til kynna að lýsi gæti dregið úr depurð.
Lýsi gegn jólastressi
an milljarð evra fyrir misnotkun einokunarað-
stöðu á einkatölvumarkaði. Auk þess var
fyrirtækinu gert að skilja á milli Windows-stýri-
kerfisins og Media Player-forritsins fyrir hljóð-
og myndskrár.
Microsoft áfrýjaði úrskurði samkeppnisyfir-
valda ESB til Evrópudómstólsins í Lúxemborg í
júnímánuði og fór í framhaldinu fram á að fram-
kvæmd úrskurðarins yrði frestað á meðan mál
þess er til meðferðar fyrir dómi.
Úrskurður dómstólsins þýðir að Microsoft
verður að veita upplýsinga um ýmsa viðskipta-
hætti sína og framleiða útgáfu af Windows-stýri-
kerfinu án þess að netspilarinn Media Player
fylgi með.
BANDARÍSKA hugbúnaðarrisanum Microsoft
varð ekki að ósk sinni er næstæðsti dómstóll Evr-
ópusambandsins, sem situr í Lúxemborg, kvað
nýlega upp úrskurð gegn fyrirtækinu.
Um er að ræða mál sem framkvæmdastjórn
ESB höfðaði gegn Microsoft vegna meintra brota
á samkeppnisreglum ESB. Dómstóllinn komst að
þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að fresta
refsiaðgerðum, sem framkvæmdastjórnin beitti
Microsoft, en fyrirtækið hafði farið fram á það á
meðan áfrýjun úrskurðarins er til meðferðar.
Segir í frétt á vefmiðli Financial Times að áfrýj-
unin geti tekið allt að tvö til þrjú ár.
Það var í marsmánuði á þessu ári sem sam-
keppnisyfirvöld ESB sektuðu Microsoft um hálf-
Úrskurður ESB-dómstóls
óhagstæður fyrir Microsoft
Á netspilara Úrskurður ESB-dómstólsins þýðir
að Microsoft verður að framleiða útgáfu af
Windows-stýrikerfinu án MediaPlayer.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● LANDSBANKINN Eignarhaldsfélag
ehf. hefur keypt 800 milljónir hluta,
eða 14,39% hlutafjár, í Burðarás hf.
af Landsbanka Íslands hf. Við-
skiptagengið var 12 krónur þannig
að kaupandi greiddi 9,6 milljarða
króna fyrir hlutinn. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Landsbanka Íslands er
verið að endurskilgreina eignastöðu
bankans.
Viðskipti í Kauphöll Íslands í gær
voru með litlu móti og námu þessi
viðskipti Landsbankans með Burðar-
ás 83% af heildarviðskiptum dags-
ins. Mest hækkun varð á bréfum Og
fjarskipta (3,1%) og mest lækkun
varð á bréfum Tryggingamiðstöðv-
arinnar (-2,3%). Úrvalsvísitala lækk-
aði um 0,19% og er 3.358 stig.
Landsbankinn
selur í Burðarási
ÚR VERINU
● CARNITECH, dótturfélag Marels
hf., hefur undirritað samning um
kaup á hluta af rekstri þýska fé-
lagsins Röscherwerke GmbH. Í lok
nóvember var tilkynnt að Carnitech
hefði undirritað viljayfirlýsingu um
kaup á hluta af Röscherwerke.
Áreiðanleikakönnun vegna kaup-
anna er nú lokið og hefur samn-
ingur verið undirritaður.
Velta þess rekstrar Röscher-
werke sem Carnitech kaupir er
áætlaður um 3 milljónir evra á
árinu 2004. Kaupverðið er trún-
aðarmál.
Velta Marel-samstæðunnar á
árinu 2003 var 108 milljónir evra.
Dótturfélag Marels
kaupir þýskt fyrirtæki
HALLUR Magnússon, sviðsstjóri
hjá Íbúðalánasjóði, hefur sent Morg-
unblaðinu eftirfarandi athugasemd
vegna skrifa Innherja í Viðskipta-
blaðinu í gær:
„Ágæti Innherji,
Í pistli þínum í Morgunblaðinu í gær
er fjallað um Íbúðalánasjóð.
Þú vitnar til orða Jóhanns G. Jó-
hannssonar sem birtust í Morgun-
blaðinu þann 22. desember sl. þar sem
hann segir að Íbúðalánasjóði sé ekki
skylt að gefa út áætlanir um skulda-
bréfaútgáfu sína í Kauphöll - og tekur
það sem dæmi um rangt viðhorf til
upplýsingagjafar.
Eftirfarandi setning var í uppkasti
að viðtalinu en féll niður við vinnslu
þess vegna misskilnings blaðamanns
og viðmælanda:
„Jóhann tekur fram að það sé stefna
Íbúðalánasjóðs að vinna faglega með
markaðsaðilum. Það sem hefur tafið
birtingu útgáfuáætlana eru breytingar
í umhverfi sjóðsins er tengjast aðal-
lega ný samþykktum lögum um sjóð-
inn sem samþykkt voru á Alþingi 2.
desember sl.“
Íbúðasjóður gefur út allar þær upp-
lýsingar sem markaðurinn þarf til eðli-
legrar verðmyndunar skuldabréfa
sjóðsins í vandaðri mánaðarskýrslu.
Sjóðurinn hefur ítrekað lýst því yfir
að við kerfisbreytinguna sem átti sér
stað í júní sl. hefur eðli upplýsingagjaf-
arinnar breyst. Til að mynda ráða ekki
sömu þættir útgáfu í gamla húsbréfa-
kerfinu og hinu nýja íbúðabréfakerfi.
Gagnrýni greiningardeilda virðist því
oft á tíðum byggð á misskilningi.
Útgáfuáætlanir hafa aldrei verið
birtar fyrr en eftir afgreiðslu fjárlaga.
Fjárlögin voru samþykkt fyrri hluta
desember mánaðar og er nú unnið að
útgáfuætlun fyrir 2005. Verður hún
birt fyrir lok þessa árs.“
Íbúðalánasjóður gef-
ur nægar upplýsingar
! "# $
% "&
' ("& )"
* )"
+"& )" ' ("&
,!(
,!&
! (#
-#
- " ! ./0!
./ ! "#)$
1
/ ' ("&
(#(!
%/ "
%() $ 2")$ % 3 $ 45 0 "
6)"
*#"
+7 8" 5 ""
9:0!
.'
.( ;(# .("&
.(/ 0 3 0$
<"#
<3## "#/ "
= "" ( "
4/5 // >.8)!#
! "#
)
!(& ?3
+"& 7/ ' ("& <8 8
.7
$!
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
!3 "#
3 $!
> > >
>
> >
>
>
>
> >
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
> >
>
>
>
>
>
@ >AB
@ AB
@ >
AB
@ AB
>
>
@ >AB
@
AB
>
>
@ AB
>
>
@ >AB
@ AB
>
>
>
>
>
>
@
AB
>
>
>
>
>
>
@ > AB
>
>
>
>
>
>
%! (&
&# "
< () 7 ( &# C
* .(
$
$
$ $ $ >
$ $ $ >
$
>
$ $ >
$
>
>
$
$ >
$ >
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
= 7 D2 $ $
<%$ E 0#"( (&
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
<%$> F / /0(&"& ( 0( <%$> .3(& ( (!## / 3 () 0! "
<%$> 3 0# /" G! ;(# *D "# 2")" 0 $ # " "#
<%$> .5" ;(# " 0! /D3 /" % "& 0 $ # (! ;(# "& " " % "& 0 $
9 &H
.IJ A
A
<.?
KL
A
A
MM
-,L
A
A
*L
9 !
A
A
NM?L KO 6"!
A
A