Morgunblaðið - 24.12.2004, Side 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Huga að gerð nýs golfvallar | Golfklúbb-
urinn Hvammur á Blönduósi efndi á dög-
unum til kynningarfundar með Herði Þor-
steinssyni framkvæmdastjóra Golfsambands
Íslands og Edwin Rögnvaldssyni golf-
vallahönnuði er þar var kynnt hugmynd að
gerð golfvallar í landi Kirkjuhvamms, með
legu norðan og ofan kirkju, upp með Ytri-
Hvammsá. Margir aðrir valkostir hafa verið
skoðaðir í héraðinu, segir í frétt á vefnum
huni.is þar sem greint er frá fundinum, en að
ráði var að þetta svæði yrði valið, m.a. vegna
nálægðar við aðal þéttbýli héraðsins og einn-
ig við þjónustusvæði ferðamanna í Kirkju-
hvammi. Leitað hefur verið álits nágranna,
s.s. Hestamannafélagsins, landeigenda og
Skógræktarfélags V-Hún., en gert er ráð
fyrir að vallarsvæðið komi að hluta til inn í
skógræktarsvæðið.
Gert er ráð fyrir 9 holu velli og er áætlað
að framkvæmdir kosti um 20 milljónir króna
og taki um 5 ár.
Almennt var gerður góður rómur að hug-
myndum fundarboðenda segir
á vefnum og þess vænst að hugmyndir
klúbbfélaga komist á framkvæmdastig hið
fyrsta.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Fjölmenn skötuveisla | Mikið fjölmenni
var í skötuveislu Björgunarfélags Ísafjarð-
ar sem haldin var í Guðmundarbúð á Ísa-
firði í hádeginu í gær. Jóhann Ólafsson hjá
Björgunarfélaginu segir á vef Bæjarins
besta að þegar fjölmennast var hafi verið
biðröð í skötuna. „Við buðum skötu fyrir
byrjendur og einnig fyrir lengra komna.
Það féll fólki mjög vel í geð. Menn hafa mis-
jafnan smekk sem betur fer og því er gott
að gera sem flestum til hæfis. Það er
ánægjulegt hversu margir þáðu þetta boð
okkar því með því vildum við þakka fólki
fyrir stuðninginn við okkur á árinu. Héðan
fóru allir vel mettir frá borði og einnig voru
hláturtaugarnar þandar því Gísli Hjart-
arson las úr þjóðsögusafni sínu,“ segir Jó-
hann. Hann segir einnig ánægjulegt hversu
margir fyrirtækjahópar hafi nú þegið boðið
og þeim hópum fari mjög fjölgandi.
Mest fækkun á Blönduósi | Íbúum
Húnaþings hefur fækkað um 58 á árinu
2004 samkvæmt bráðabirgðatölum Hag-
stofu Íslands. Blönduósingum fækkar mest
eða um 37 og Skagstrendingum um 20. Íbú-
um Húnaþings vestra og Áshrepps fækkar
um 3 og í Svínavatnshreppi fækkar um 2
íbúa. Íbúum Skagahrepps fjölgar um 4,
Sveinsstaðahrepps um 2 en íbúatalan
stendur í stað í Bólstaðarhlíðarhreppi og
Torfalækjarhreppi.
Orkuveita Reykja-víkur hefur keyptAusturveitu í Ölf-
usi og tekur við rekstri
hennar 1. janúar næst-
komandi.Austurveita er
svokölluð bændaveita
með borholu við Gljúf-
urárholt og liggur að býl-
um undir Ingólfsfjalli,
m.a. að Efri Saurbæ og
Sogni. Fram kemur í til-
kynningu frá OR að Aust-
urveita muni falla undir
jaðarveitur Orkuveitu
Reykjavíkur. Unnið sé að
skipulagi rekstrarins og
frekari uppbyggingu.
OR hefur í samvinnu
við Hitaveitu Þorláks-
byggt upp hitaveitu í
Grímsness- og Grafnings-
hreppi.
Kaupa
Austurveitu
Samkaup veittu ný-lega KvenfélagiHrunamanna styrk
að fjárhæð 250 þúsund
krónur. Skúli Skúlason
starfsmannastjóri fyr-
irtækisins sagði þegar
hann afhenti styrkinn að
Samkaupum hefði verið vel
tekið þegar verslunin
Grund á Flúðum var keypt
og gerðar á henni allmiklar
breytingar. Með honum á
myndinni eru Agnes Böðv-
arsdóttir verslunarstjóri
og Margrét Óskarsdóttir,
Íris Georgsdóttir og Marta
Hjaltadóttir úr stjórn
Kvenfélagsins.
Margréti sagði að ákveð-
ið hefði verið að stofna sér-
stakan sjóð og væri þetta
fyrsta framlagið í hann.
Ætlunin væri að úthluta úr
honum einu sinni á ári, til
einhvers eða einhverra
sem hjálpar væru þurfi í
sveitarfélaginu.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Samkaup styrkja kvenfélagið
Alltaf er notalegt aðfá Fréttabréf Ið-unnar. Nú er þar
hugvekja séra Sigurðar
Jónssonar og háttalykill
Helga Zimsen, með
kveðju frá „Rannsókn-
arnefnd rímnahátta“ í
formi afhendingar:
Háttatali Helga Zimsen hérna
lýkur.
Enginn þekkist annar slíkur.
Einnig lausavísur
ferskar úr Skáldu. Bjarg-
ey Arnórsdóttir yrkir:
Gustar úti, gránar svið,
gott er að leita í skjólin,
þó að enn sé fátt um frið
fögnuð vekja jólin.
Steindór Andersen yrk-
ir hringhendu í tilefni af
fimmtugsafmæli Lárus H.
Grímssonar:
Færast árin yfir hann,
öldungs hárin grána,
syrgir Lárus líkamann,
lekur tár um brána.
Frá Iðunni
pebl@mbl.is
Akureyri | Um 950 börn á aldr-
inum 2ja til 12 ára hafa heimsótt
Minjasafnið á Akureyri og
Nonnahús nú á aðventunni þar
sem þau hafa skoðað gömul
heimagerð jólatré og heyrt um
jólahald fyrr á tíð. Þau hafa
komið færandi hendi með jóla-
skraut sem þau hafa búið til og
hengt á gamalt jólatré. Í Minja-
safnskirkjunni sitja börnin við
ljóstýru frá kertum og hlýða á
sögur af kunnuglegum náung-
um sem fara á stjá í desember,
þau fá prófa stafinn hans
Stekkjastaurs, skoða þvörur og
aska og ýmsa aðra hluti sem
tengjast jólasveinunum, en eru
ekki til daglegs brúks nú á tím-
um og börnunum því framandi.
Þau fá líka að vita að jólasvein-
arnir sjálfir voru allt öðru vísi í
gamla, bæði að ytra útliti og
innræti og hefur mikil breyting
orðið á.
Þetta er fimmta árið sem
börnum er boðið á jólavöku í
Minjasafnsafnið og Nonnahús.
Börn af leikskólanum Pálmholti
voru á ferðinni í vikunni og voru
einmitt að hlusta á söguna um
Nonna, Manna og ísbjörninn
þegar myndin var tekin.
Morgunblaðið/Kristján
Sagan um Nonna,
Manna og ísbjörninn
Jólavaka
STJÓRNIR tveggja lífeyrissjóða, Lífeyr-
issjóðs Suðurlands og Lífeyrissjóðs Suð-
urnesja hafa tekið ákvörðun um að stefnt
skuli að því að sameina sjóðina. Eftir sam-
eininguna munu eignir og skuldbindingar
Lífeyrissjóðs Suðurlands renna til Lífeyr-
issjóðs Suðurnesja en hinn nýi sjóður mun
heita Lífeyrissjóður Suðurlands með heim-
ilisfang í Reykjanesbæ að því er fram kem-
ur í frétt á vef Landssamtaka lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðurinn mun áfram reka skrif-
stofu á Selfossi.
Stefnt er að því að sameiningin muni
taka gildi 1. júlí 2005. Réttindi félaga í Líf-
eyrissjóði Suðurlands munu verða þau
sömu og réttindi félaga í Lífeyrissjóði Suð-
urnesja eftir að hann hefur tekið við öllum
eignum og skuldbindingu þess fyrrnefnda.
Fram kemur í fréttinni að umhverfi líf-
eyrissjóða á Íslandi hafi breyst mikið á
undanförnum árum m.a. hafa nýjar reglu-
gerðir, auknar arðsemiskröfur, samkeppni
og hert eftirlit aukið verulega þær kröfur
sem gerðar eru til starfsemi lífeyrissjóða.
Þá kemur ennfremur fram að stjórnir sjóð-
anna tveggja hafi á haustmánuðum hafið
viðræður í þeim tilgangi að kanna hvort
hagsmunum sjóðfélaga gæti hugsanlega
verið best borgið með formlegri samein-
ingu þeirra og sú varð niðurstaðan. Nú er
stefnt að því að byggja upp sterkan sjóð
sem „staðið getur af sér áföll og verið sjóð-
félögum sínum traustur bakhjarl.“
Stefnt að
sameiningu
næsta sumar
Lífeyrissjóður Suðurlands og
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Borgarnes | Samið hefur verið um að Hót-
el Hamar sem verið er að byggja á golfvell-
inum á Hamri við Borgarnes verði rekið
undir vörumerki Icelandair-hótelanna.
Eigendur Hótels Hamars, Hjörtur Árna-
son og Unnur Halldórsdóttir, hafa gert um
þetta samning við Flugleiðahótel hf.
Hann felur í sér að Flugleiðahótel munu
sjá um markaðssetningu þess,bókanir og
gæðaeftirlit. Á Icelandair Hótel Hamri
verða 30 tveggja manna herbergi, öll með
baði, síma og sjónvarpi. Veitingastaður og
bar verður á hótelinu og auk þess tveir
fundarsalir. Lögð verður áhersla á að
höfða til golfáhugafólks.
Hótelið verður opnað næsta sumar, að
því er fram kemur í fréttatilkynningu, og
verður heilsárshótel.
Hamar rekinn
undir merkjum
hótela Icelandair
♦♦♦
Húsavík | Í Hestamiðstöð-
inni í Saltvík við Húsavík
hefur auk hefðbundinna
reiðnámskeiða verið í
gangi verkefni þar sem ís-
lenski hesturinn er not-
aður til að þjálfa og byggja
upp fatlaða einstaklinga.
Meðal annars hefur Ann-
ette Sanches, danskur
sjúkraþjálfari, sem starfað
hefur við Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga unnið
með sjúklinga sína á þenn-
an hátt í Saltvík en hún er
sérmenntuð í notkun hesta
við sjúkraþjálfun.
Bjarni Páll Vilhjálmsson
rekur hestamiðstöðina
ásamt fjölskyldu sinni.
Hann segir hugmynda-
fræðina ganga út á það í
stórum dráttum að nýta
hreyfingar hestsins til að
liðka og efla ýmsa vöðva-
hópa þessara einstaklinga,
auka jafnvægi þeirra og
skynjun ásamt því að auka
hreyfifærnina. Morgunblaðið/ Hafþór Hreiðarsson
Fatlaðir þjálfast
á hestbaki