Morgunblaðið - 24.12.2004, Side 22

Morgunblaðið - 24.12.2004, Side 22
„ÞETTA hefur bara verið mjög gott, alveg meiriháttar,“ sagði Svav- ar Hjaltalín sem í gær, Þorláks- messu, vann sinn síðasta vinnudag hjá Brimi, áður Útgerðarfélagi Ak- ureyringa. Svavar byrjaði að vinna hjá ÚA árið 1948, þá 14 ára gamall og hefur starfað hjá félaginu óslitið síðan. „Ég man eftir því þegar ég átti að fá útborgað fyrst, að þá kom í ljós að ekki var til kauptaxti fyrir svona unglinga, 14 ára, en Guð- mundur Guðmundsson sem þá var framkvæmdastjóri sagði þá: Við borgum honum bara fullorð- inskaup.“ Svavar hefur starfað með öllum framkvæmdastjórum ÚA og Brims og ber þeim vel söguna. Ágætismenn allir saman, sagði hann og einnig hefði starfsfólk félagsins verið gott. „Ég hef starfað með mörgu fólki um tíðina og það hefur verið alveg hreint ágætt,“ sagði Svavar, en hann var m.a. verkstjóri í salfiskvinnslu og aðstoðarverkstjóri í frystingu, „en ætli ég hafi ekki prófað þetta allt saman. Ég geri ekki upp á milli starfanna, þau voru öll jafnskemmtileg. Það er gott að vera í vinnu sem manni líkar vel við, þá eru menn ánægðir. Þeir sem allt- af eru á faraldsfæti hafa engan áhuga fyrir vinnunni.“ Svavar varð sjötugur í október síðastliðnum og kveðst líta sáttur um öxl. „Mér hefur líkað vel og það virðist gagnkvæmt, félagið hefur alltaf reynst mér mjög vel.“ Svavar sagðist vel geta hugsað sér að sækja handverksmiðstöðina Punktinn, nú þegar hann væri hætt- ur störfum. Sagðist hafa skoðað húsakynni og kynnt sér starfsemina og litist vel á. „Það er örugglega gott að vera þarna, dunda við eitt- hvert handverk, spjalla, horfa á hina og fá sér kaffisopa,“ sagði hann. „Svo kemur vorið brátt og þá kallar garðurinn og alls kyns við- hald kringum húsið.“ Svavar fékk að gjöf listaverk og körfu fulla af alls kyns góðgæti í til- efni þess að hann hefur látið af störfum. Verkið er eftir Hallgrím Ingólfsson og heitir Traustir hlekk- ir, samanstendur af nokkrum hlekkjum úr fótreipiskeðju af Kald- baki og fjörugrjóti af lóð Brims. Á plötu var svo kveðja til Svavars þar sem þakkað var gæfuríkt samstarf í 56 ár. Langur starfsferill Svavar Hjaltalín hefur starfað hjá Útgerðarfélagi Akureyringa og Brimi samfellt í 56 ár, eða frá 14 ára aldri. Gott að vera í vinnu sem manni líkar vel við Svavar Hjaltalín hefur starfað hjá ÚA og Brimi í 56 ár samfellt 22 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Fjarðabyggð | Bæjarstjórn Fjarða- byggðar hefur samþykkt fjárhags- áætlun fyrir næsta ár. Helstu nið- urstöðutölur áætlunarinnar gera ráð fyrir að rekstur A- og B-hluta skili rúmlega 89 milljóna króna tekjuaf- gangi, fjárfestingar ársins nemi alls um 915,6 milljónum króna, 167 millj- ónum verði varið í afborganir lána, eignir að andvirði 40 milljónir króna verði seldar og rúmar 725 milljónir króna teknar að láni. Kallar á róttækar aðgerðir Í greinargerð með fjárhagsáætl- uninni segir m.a. að sú uppbygging sem nú á sér stað í samfélaginu í Fjarðabyggð í tengslum við bygg- ingu álvers Fjarðaáls kalli á róttæk- ar aðgerðir af hálfu sveitarfélagins til að uppfylla væntingar þær sem gerðar séu til þess. Í greinargerðinni er m.a. gert ráð fyrir að tekjur sveit- arfélagsins eigi eftir að aukast stór- lega á næstu árum og bent á þau áhrif sem starfsmannaþorp Bechtel á Haga muni færa í formi útsvars- tekna í samfélagið. Reiknað er með að í þorpinu verði komnir undir árs- lok 2005 um 1.200 manns, sem verði hluti samfélagsins ásamt þeim sem setjast að til lengri tíma. Skatttekjur sveitarfélagsins muni samkvæmt því aukast um 264 milljónir króna. Bæjarstjórn hefur ákveðið að beitt verði sérstöku aðhaldi með því að setja stofnunum og málaflokkum sparnaðarmarkmið að fjárhæð 40 milljónir króna. Með því móti sé sýnt fram á nauðsyn þess að rekstri sé haldið innan marka, þannig að aukn- ar tekjur renni til greiðslu fram- kvæmda en ekki rekstrarkostnaðar. Rekstur aðalsjóðs er áætlaður 93,8% af skatttekjum, sem eru algjör um- skipti frá síðasta ári, en þá var hann upphaflega áætlaður 104,15%. Miklar framkvæmdir Gert er ráð fyrir að framkvæmd- um verði fram haldið af fullum krafti í sveitarfélaginu. Nú eru í byggingu grunnskóli og leikskóli á Reyðarfirði og framkvæmdum er nánast að fullu lokið við grunnskólana á Eskifirði og á Norðfirði. Í öllum grunnskólahús- unum þremur verða skóla- og al- menningsbókasöfn, auk tónlistar- skóla. Stefnt er að því að fram- kvæmdir við sundlaugarnar á Eskifirði og Norðfirði fari á fullan skrið á árinu. Auk þess verður hafn- ar-, hitaveitu- og vatnsveitufram- kvæmdum haldið áfram. Þá verður fjármunum varið til gatnagerðar í takt við þá eftirspurn sem fyrirsjá- anleg er. Nettó fjárfesting alls er áætluð 876 milljónir kr. Sveitarfélagið ætlar að leggja aukalega 10 milljónir króna til um- hverfismála en í heildina verður var- ið 46,3 milljónum króna til þeirra á árinu. Skv. greinargerðinni verða málaflokknum gerð sérstök skil og mikils vænst af því að sýnilegur ár- angur náist. Hinum miklu fram- kvæmdum í sveitarfélaginu fylgi óhjákvæmilega mikið rask, en kapp- kostað verði að halda því í lágmarki og vinna í mótvægisaðgerðum. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Norðfjörður á aðventu Fjarðabyggð blómstrar sem aldrei fyrr og menn þar hyggja á mikla uppbyggingu samhliða framkvæmdum Fjarðaáls. Skatttekjurnar aukast um 264 milljónir milli ára Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar gerir ráð fyrir mikilli aukningu tekna Kárahnjúkavirkjun | Magnolia og Katleen eru báðar frá Filippseyjum og hafa starfað sem hjúkrunar- fræðingar í heilsugæslustöðinni við Kárahnjúkavirkjun frá því að henni var komið á legg. Þær eru býsna stoltar af aðstöðunni og segja heilsu- gæsluna vel búna tækjum og góðum lækni til að takast á við fyrstu hjálp og alla minniháttar kvilla. Þegar Morgunblaðið bar að garði mátti sjá rafmagnsgítar á einum skoðunarbekknum. Ekki af því að gítarinn væri beinlínis illa haldinn, heldur vegna þess að starfsmaður hafði fengið að æfa sig á gítarinn í heilsugæsluhúsnæðinu eftir lokun og gleymt honum á bekknum. Mús- íkina á að flytja á sameiginlegum há- tíðartónleikum starfsmanna Impregilo í kvöld. Max Caminzuli sem skipuleggur dagskrá fyrir starfsfólkið yfir hátíðina er með þeim Magnoliu og Katleen á mynd- inni. Halda starfsmönnum við hestaheilsu Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir MIKIÐ tjón varð á þaki yfir bens- ínstöð Esso við Veganesti á Akureyri í fyrrinótt þegar flutningabíl var ek- ið undir það. Bíllinn er þónokkuð hærri en þakið, en það er 3,9 metrar. Axel Grettisson, stöðvarstjóri Esso á Akureyri, sagði að bílnum hefði verið ekið inn á planið við bens- ínstöðina um kl. hálfþrjú aðfaranótt fimmtudags í þeim tilgangi að hleypa út farþegum, en bílstjórinn áttað sig of seint á mistökunum. Járnbitar sem halda skyggninu uppi rifnuðu af þegar bílnum var ekið undir þakið og féllu niður á bílinn. Tjónið nemur að sögn Axels milljónum en að auki urðu skemmdir á bílnum sjálfum. Menn voru þegar kallaðir út en um tvo klukkutíma tók að ná flutninga- bílnum undan þakinu. Viðgerð hófst svo strax í gærmorgun og var bráða- birgðaviðgerð að ljúka síðdegis. Axel sagði að í kjölfarið gæti starfsemin farið í fullan gang á ný, en meðan viðgerð stóð yfir þurfti að loka dæl- um tímabundið, einkum þegar verið var að logsjóða uppi á þakinu. Milljónatjón á Essostöð Ljósmynd/Axel Grettisson AKUREYRI AUSTURLAND 177 Íslandsmeist- arar heiðraðir HIN árlega úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar fer fram í hófi sem haldið verður í Íþrótta- höllinni á þriðjudag, 28. desember, kl. 16. Samofið hefðbundinni dag- skrá verður 60 ára afmæli ÍBA sem var 20. desember sl. Auk úthlutunar úr sjóðnum verð- ur nokkrum einstaklingum veitt sérstök viðurkenning ásamt því að öllum þeim Akureyringum sem unnið hafa til Íslandsmeistaratitils á árinu 2004 verður afhentur minn- ispeningur Íþrótta- og tóm- stundaráðs. Þá verður einnig til- kynnt val Íþróttabandalags Akureyrar á íþróttamanni ársins. Árangur akureyskra íþrótta- manna var góður á árinu. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem bor- ist hafa til stjórnar sjóðsins hafa 201Íslandsmeistaratitlar unnist á árinu ásamt því að margir Akur- eyringar voru valdir til að leika með landsliðum í hinum ýmsu íþróttagreinum.  á Grenivík. Verður að hafa bíl til umráða Upplýsingar gefur Ólöf Engilberts- dóttir í síma 569 1376.  í Miðbæ Akureyrar Einnig í Hlíðargötu/Þór- unnarstræti Upplýsingar í síma 461 1600 Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.