Morgunblaðið - 24.12.2004, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
JÓLAVERKEFNI Þjóðleikhússins
er að þessu sinni leikgerð Hilmars
Jónssonar á skáldsögu Ólafs Gunn-
arssonar, Öxinni og jörðinni. Hilm-
ar er jafnframt leikstjóri en með
hlutverk Jóns biskups Arasonar
fer Arnar Jónsson og þá Björn og
Ara, syni hans, leika Ingvar E.
Sigurðsson og Hilmir Snær Guðna-
son.
Eitt mesta átakatímabil í sögu
íslensku þjóðarinnar, siðaskiptin,
er vettvangur ógnvænlegra at-
burða. Stórbrotnar persónur stíga
fram á sjónarsviðið; hinn vígreifi
trúmaður Jón Arason Hólabiskup,
Björn og Ari synir hans sem háls-
höggnir voru með honum í Skál-
holti 1550, fjölskyldur þeirra, ver-
aldlegir sem andlegir höfðingjar,
kvenskörungar og almúgafólk.
Þetta er mikið verk um trú og efa,
sjálfstæði og kúgun, þar sem saga
þjóðar er samofin grimmum örlög-
um.
Arnar Jónsson segir að hug-
myndir hans um Jón Arason hafi
líklega verið svipaðar hugmyndum
annarra um hann; að hann hafi
verið einhvers konar frelsishetja,
þótt að honum hafi vissulega læðst
sá grunur að þær hafi verið
sprottnar úr hugmyndaheimi 19.
aldarinnar þegar þjóðina vantaði
sárlega slíkar hetjur.
„Það kom mér því ekkert á
óvart það sem kom á daginn þeg-
ar ég fór að skoða heimildir um
hann. Jón var að vísu konungs-
sinni, en fyrst og síðast var hann
þjóðernissinni. En hann var líka
skáld. Þegar upp var staðið var
honum ef til vill ekki svo í nöp við
hinn nýja sið. Það eru til bréf milli
þeirra feðga þess efnis. Manni sem
flytur prentsmiðju til landsins
fyrstur manna hefur sjálfsagt ekki
verið mjög á móti skapi að tala ís-
lensku í sinni kirkju. En það sem
maður áttar sig á og vissi ekki
nógu vel er það hvað almanna-
tryggingakerfið: klaustrin, bisk-
upsstólarnir, fátækrahjálpin og
allt það, skipti gífurlega miklu
máli fyrir þjóðina. Það var verið
að riðla algjörlega þeirri stjórn-
skipan sem var með því að kon-
ungur tók yfir þessar eignir og
flutti allan auð úr landi. Það var
verið að rústa þetta kerfi.“ Arnar
segir að Jón Arason hafi í raun
sem Hólabiskup verið að reka
stærsta fyrirtæki landsins. Hann
hafi verið pólitíkus, sem uppálagt
var að skila helst betra búi en
hann tók við og það hafi hann
reynt að gera við erfiðar að-
stæður. „Hann var svo sem dug-
legur að skjóta undir sig og sína
og efla Hólastað. Það kom mér
samt á óvart að fá að vita þetta
svona vel.“
Arnar telur að þjóðin hafi æv-
inlega litið upp til Jóns Arasonar
og að hann hafi jafnvel verið of-
metinn þótt ekki sé gott að segja
til um það vegna þess hve tímarn-
ir voru allt aðrir þá. „Jón var trú-
maður, fjölskyldumaður, gagnrýn-
andi góður og hafði húmor, og var
maður sem átti auðvelt með að
hrífa fólk með sér. Hann var
greinilega mikill höfðingi í lund,
og því margt í hugmyndum okkar
um hann áreiðanlega rétt.“ Arnar
samsinnir því að ef til vill eigi ör-
lög Jóns Arasonar og saga ein-
hvern þátt í því að sagt er að þjóð-
in hafi jafnvel ekki enn hrist af
sér kaþólskuna. „Við þykjumst öll
vera af honum komin, og rennur
því auðvitað blóðið til skyldunnar
að halda nafni hans á lofti. Ég
býst alveg við því að þegar fólk
finnur hjá sér trúarþörf á dögum
mikillar veraldarhyggju þyki því
ekkert verra að vita af Jóni.“
Leikgerð Hilmars Jónssonar er
alfarið byggð á verðlaunabók
Ólafs Gunnarssonar og samtöl eru
tekin beint úr henni. Arnar segir
að Hilmar raði þó efninu til að
þjóna leikgerðinni, sleppi ýmsu og
færi til. „Höfuðáherslan er á fjöl-
skyldu Jóns og örlög feðganna
þriggja, en þau tengjast auðvitað
öll konum þeirra og öðrum börn-
um. Ég vona að við náum inn í
kviku þess samtíma og þessarar
fjölskyldu um leið og aðrar fjöl-
skyldur vega þungt í sögunni.“
Hreppti íslensku
bókmenntaverðlaunin
Ólafur Gunnarsson hefur starf-
að sem rithöfundur frá 1974. Hann
hefur ritað skáldsögur, smásögur
og barnabækur. Skáldsaga hans
Tröllakirkja var tilnefnd til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna
1992 og ensk þýðing hennar var
einnig tilnefnd til IMPAC-
bókmenntaverðlaunanna 1997.
Leikgerð hefur verið unnin upp úr
sögunni sem frumsýnd var á stóra
sviði Þjóðleikhússins 1996 og kvik-
myndaréttur hennar hefur jafn-
framt verið seldur. Öxin og jörðin
eftir Ólaf vann til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna 2003. Verk
eftir Ólaf hafa verið þýdd á erlend
mál, meðal annars barnabókin Fal-
legi flughvalurinn sem gefin var
út í Finnlandi, Noregi, Svíþjóð,
Danmörku og Færeyjum en hún
var tilnefnd til Norrænu barna-
bókaverðlaunanna 1990. Ólafur
hefur einnig þýtt skáldsögur og
leikrit á íslensku.
Hilmar Jónsson útskrifaðist frá
Leiklistarskóla Íslands árið 1990.
Hann starfaði sem leikari við
Þjóðleikhúsið en árið 1995 stofn-
aði Hilmar ásamt öðrum Hafn-
arfjarðarleikhúsið Hermóð og
Háðvöru. Síðan þá hefur hann
einkum sinnt leikstjórn og stjórn-
að Hafnarfjarðarleikhúsinu. Hann
hefur nú leikstýrt hátt í þrjátíu
leiksýningum, einkum hjá Hafn-
arfjarðarleikhúsinu, en einnig hjá
Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu,
Nemendaleikhúsinu og á Norður-
löndum.
Leikhús | Arnar Jónsson fer með hlutverk Jóns Arasonar Hólabiskups í Öxinni og jörðinni
Morgunblaðið/Jim Smart
Kristján Franklín Magnússon í hlutverki sínu.
Elfa Ósk Ólafsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason í
hlutverkum sínum, en Ingvar og Hilmir leika þá syni Jóns biskups sem
hálshöggnir voru með honum í Skálholti, þá Björn og Ara.
Arnar Jónsson: „Ef til vill var honum ekki svo í nöp við hinn nýja sið.“
Pólitíkus sem
reyndi sitt
besta við erf-
iðar aðstæður
eftir Ólaf Gunnarsson, í leik-
gerð Hilmars Jónssonar.
Leikendur: Arnar Jónsson,
Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir
Snær Guðnason, Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Arnbjörg Hlíf
Valsdóttir, Atli Rafn Sigurð-
arson, Elva Ósk Ólafsdóttir,
Erlingur Gíslason, Gunnar
Eyjólfsson, Hjalti Rögnvalds-
son, Jóhann Sigurðarson,
Kjartan Guðjónsson, Kristján
Franklín Magnús, Nanna
Kristín Magnúsdóttir, Rúnar
Freyr Gíslason, Sólveig Arn-
arsdóttir, Þórhallur Sigurðs-
son, Þórunn Lárusdóttir og
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
auk sjö barna.
Sviðshreyfingar:
Sveinbjörg Þórhallsdóttir.
Lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson.
Búningar: Þórunn María
Jónsdóttir.
Tónlist: Hjálmar H.
Ragnarsson.
Leikmynd: Gretar Reynisson.
Leikstjóri: Hilmar Jónsson.
Öxin og jörðin
Morgunblaðið/Jim Smart
Hólabiskup í fullum skrúða. Arnar
Jónsson í hlutverki Jóns Arasonar.