Morgunblaðið - 24.12.2004, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 29
DAGLEGT LÍF
Danir virðast æ áhugasam-ari um allt sem íslenskter, ekki síst eftir að Ís-lendingar keyptu Magas-
in du Nord, eins og Bryndís Stef-
ánsdóttir arkitekt orðar það
hlæjandi. Hún og Steinunn Sigfús-
dóttir byggingariðnfræðingur hafa
orðið varar við þetta en þær eiga
galleríið Galleri Nordlys í Kaup-
mannahöfn og hafa hlotið góðar við-
tökur heimamanna sem sýna ís-
lenskri list mikinn áhuga.
Galleríinu er ætlað að koma ís-
lenskri myndlist og nytjalist á fram-
færi í Danmörku en verk rúmlega
þrjátíu listamanna eru þar til sölu.
„Við fengum hugmyndina að því að
opna gallerí þegar við urðum báðar
fertugar og vorum hvor í sínu lagi að
kaupa gjöf handa hinni. Það er ótrú-
legt, en það er meira en að segja það
að finna fallega listmuni til gjafa í
Kaupmannahöfn,“ segir Bryndís.
Þær Steinunn ákváðu því að stofna
saman fyrirtæki eins og hafði verið í
umræðunni hjá þeim lengst af þau tíu
ár sem þær hafa þekkst, en Steinunn
hefur búið í Kaupmannahöfn í fimm-
tán ár og Bryndís í nítján. Þeim þótti
aðgengilegast að einbeita sér að ís-
lenskum listamönnum og skelltu sér
því til Íslands og komu á sam-
böndum. Galleri Nordlys
er í tveggja hæða
húsnæði við Frede-
riksborggade í mið-
borg Kaupmanna-
hafnar og þar eiga
margir leið um. Á
efri hæðinni er
verslun en á neðri
hæðinni eru haldnar
sýningar.
Nú stendur yfir fjórða sýningin
síðan galleríið var opnað 1. sept-
ember og er það listamaðurinn Hú-
bert Nói sem sýnir til 7. janúar, en
sýningin hefur vakið mikla hrifningu
meðal gesta, að sögn Bryndísar. Sýn-
ingar í Galleri Nordlys hafa verið
skipulagðar allt fram í febrúar 2006,
en það er Steinunn Helga Sigurð-
ardóttir myndlistarmaður sem velur
listamennina sem sýna. Næst verður
Berglind Sigurðardóttir myndlist-
armaður í Danmörku með sýningu,
en hún sérhæfir sig í tölvuteikn-
ingum. Þar á eftir sýnir Hekla Dögg
Jónsdóttir.
Fyrirtækið var stofnað á þessu ári
og er bæði gallerí og arkitektastofa.
Eigendurnir sinna áfram störfum
sem arkitekt og byggingariðnfræð-
ingur samhliða gallerírekstrinum og
hafa t.d. með höndum það verkefni að
breyta stóru tveggja hæða iðn-
aðarhúsnæði á Nørrebro í sjö íbúðir.
Að sögn Bryndísar gengur þeim vel
að markaðssetja íslenska myndlist í
Kaupmannahöfn og þykir þeim hent-
ugt að vinna áfram að arkitektúr og
skipulagi.
Bryndís segir gaman að sjá áhuga
viðskiptavina á Íslandi. „Oft er þetta
fólk sem hefur komið til Íslands og
vill gjarnan landslagsmyndir. Fólki
finnst líka yfirleitt mikill húmor í ís-
lenskum listaverkum og meiri kraft-
ur.“ Í galleríinu eru m.a. seldar
myndir, skartgripir, fatnaður og ker-
amik eftir listamenn eins og Magda-
lenu Margréti, Höllu Bogadóttur,
Ástu Guðmundsdóttur og Þóru Sig-
urþórsdóttur.
HÖNNUN
Íslenskir listmun-
ir vekja áhuga í
Kaupmannahöfn
Stoltir galleríseigendur: Bryndís Stefánsdóttir er í forgrunni og Steinunn
Sigfúsdóttir fyrir aftan, þar sem glittir í íslenskt handverk í hillunum.
Stöllurnar Bryndís Stefánsdóttir og Steinunn Sig-
fúsdóttir létu gamlan draum rætast og opnuðu gall-
erí með íslenska list í Kaupmannahöfn nú í haust.
TENGLAR
..............................................
www.gallerinordlys.dk
steingerdur@mbl.is
Stílhrein hönnun: Armbandið
er eftir Höllu Bogadóttur.
Íslensk hönnun: Skálar eftir Lauf-
eyju Jónsdóttur.
Ljósmynd/Birgitte Truelsen
Jórunn Ella Þórðardóttir kennari.
„Allt annríkið í desember.“
Hvað er ómissandi
á jólum?
Morgunblaðið/Kristinn
Annríkið