Morgunblaðið - 24.12.2004, Síða 32

Morgunblaðið - 24.12.2004, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ er kannski að bera í bakka- fullan lækinn að vitna í þjóðskáldið Halldór Laxness. Í sögu hans Guðs- gjafaþulu er greint frá síld- arspekúlantinum Bersa Hjálmarssyni eða Íslandsbersa. Eitt árið fær Íslandsbersi ekki það verð er hann hafði sett sér fyrir af- urðir síðustu vertíðar. Þar munaði fimm- tíuaur sænskum á tunnu. Málalok urðu þau að hagur hins stönduga útgerð- armanns sveiflaðist frá ríkidæmi til ör- birgðar það árið. Á aðventunni verð- ur lýðnum ljós hluti af því mikla og óeig- ingjarna starfi sem unnið er af ein- staklingum og fé- lögum árið um kring í þágu líknar og menningar. Fréttir berast af fyr- irtækjum og ein- staklingum sem gefa af höfðingsskap til ýmissa málefna, t.d. til Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur svo að skjól- stæðingar hennar geti haft það ör- lítið skár, í það minnsta um jólin. Fyrr í mánuðinum beindist kastljós fjölmiðla að fjáröflunartónleikum sem haldnir voru í Hallgrímskirkju til styrktar börnum sem greinst hafa með krabbamein. Ólafur M. Magnússon hefur um árabil stutt Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna með vinnu og beinum fjárframlögum. Nú í ár og síðasta ár hefur Ólafur staðið fyrir jólatónleikum í Hallgrímskirkju til styrktar félaginu. Forsvarsmenn þess hafa kunnað honum bestu þakkir fyrir hans óeigingjarna starf. Fjárframlagið til styrktar börnunum var að þessu sinni um 4,7 milljónir króna. Skærustu tón- listarstjörnur landsins léðu máls á því að leggja málefninu lið. Allir sem að málinu komu gáfu, þeir sem gáfu mest eru þó af mörgum taldir hafa gefið minnst þó að án þeirra hefði fjáröflunin tæplega tekist jafnvel og raun ber vitni. Ótal út- gjöld fylgja uppákomum sem þess- um. En árangurinn er óumdeil- anlegur og þakkar verður. Hundruð vinnustunda eru inntar af hendi í sjálfboðavinnu og er þá ótalið fram- lag fyrirtækja sem eiga sinn þátt í því að gera viðburði sem þennan að veruleika. Kastljós fjölmiðlanna að þessu sinni gerir þessar gjafir að minna en engu – ekki er nóg gefið, það ætti að gefa meira. Í það minnsta mætti gera þetta öðruvísi. En um- fjöllun fjölmiðla varpar einnig ljósi á það hve erfitt og hve mikið starf það er að afla fjár til líknar- og menningarmála. Í desember á síðasta ári nutu 1.700 fjölskyldur að- stoðar Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur. Opinberir styrkir til nefndarinnar á síðast- liðnu ári voru 500 þús. kr. frá Reykjavíkurborg og tvær milljónir frá fé- lagsmálaráðuneytinu. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur er eitt af mörgum styrktar- félögum sem starfa í landinu. Því er það með öllu óskiljanlegt hvernig alþingismenn í Reykja- vík og nágrenni, já og aðrir alþingismenn, gátu leyft sér að kasta fyrir róða gullnu tæki- færi til að mynda öfl- ugasta styrktarsjóð fyr- ir menningar- og líknarmál sem um getur í Íslandssögunni. Við erum að tala um laga- breytingu sem beindist gegn samningi KB banka og SPRON (laga- breytingin var sam- þykkt með 43:1 atkvæði Péturs Blöndal). Sá samningur hefði getað orðið fyrirmynd annarra samninga sem hugsanlega hefðu myndað 15– 20 milljarða sjóði með skýr mark- mið, markmið um að hlúa að líkn og menningu. Reikna má með að Sem sjóðurinn (sá sjóður sem orðið hefði til í SPRON einum) hefði nú á að- ventunni haft um 500 milljónir króna til úthlutunar. Eru þá ótaldir aðrir sparisjóðir. Í heild hefði verið úthlutað á landsvísu til líknar- og menningarmála um 900–1.200 millj- ónum króna á ári hverju um alla framtíð. Íslandsbersi birtist okkur í skáld- sögu þjóðskáldsins sem eins og kunnugt er sækir oft persónur sín- ar í þjóðarsálina. Hann tekur út rangar ákvarðanir á eigin skinni og gistir ei hallir né situr veislur með höfðingjum um sinn. Hvað þing- menn Reykjavíkur varðar, munum við kjósendur nokkru sinni kalla þá til ábyrgðar? Er nokkur von til þess að þeir finni sinn vitjunartíma eða færi fram einhver rök fyrir þeirri ákvörðun sinni að svipta fé- lög er vinna að líkn og menningu þessum fjármunum? Lifið heil og gleðileg jól. Íslandsbersi, styrktartón- leikar & 43:1 Úlfar Hróarsson fjallar um fjáröflun til líknar- og menningarmála ’En umfjöllunfjölmiðla varpar einnig ljósi á það hve erfitt og hve mikið starf það er að afla fjár til líknar- og menn- ingarmála.‘ Úlfur Hróarsson Höfundur rekur verslunar- og verktakafyrirtæki. ÞRÁTT fyrir að stærsti hluti ís- lensku þjóðarinnar búi við bærileg efni, býr alltof stór hluti þjóðarinnar við sára fá- tækt. Það endurspegla nú fyrir þessi jól langar biðraðir af fátæku fólki við dyr hjálparsamtaka. Þetta fólk er í sárri neyð. Því er skammtað úr hnefa. Laun þess, líf- eyrir eða atvinnuleys- isbætur eru svo smátt skömmtuð að þau duga ekki fyrir allra brýnustu nauðþurftum. Sama hve mikið er sparað. Sama þó að unnin sé fullur vinnudagur. Þetta fólk biður ekki um mikið. Aðeins að geta staðið upp- rétt og átt sjálft fyrir nauðþurftum. Það vill geta glatt börn sín á jól- unum. Gefið þeim smágjöf. Átt fyrir jólamatnum. Betri mat en hina daga ársins. Það spyr áleitinna spurninga; Af hverju getur ein af ríkustu þjóð- um heims ekki fært okkur ögn meira? Til að við getum líka átt jól. Án aðstoðar hjálparsamtaka. Veru- leikinn er annar. 18–20 þúsund manns undir fátæktarmörkum Íslenski veruleikinn er sá að fátæku fólki er svo naumt skammtað, að það eru hjálparsamtökin sem bjarga jól- unum á fjölda heimila í landinu. Mörgu fólki eru það þung spor að þurfa að leita á náðir hjálp- arsamtaka. Ríkisvaldið hefur sýnt að það telur sig litlar skyldur hafa við þessa hópa. Skýrsla rík- isstjórnarinnar um fá- tækt staðfesti að bilið milli ríkra og fátækra fari sívaxandi í þjóð- félaginu. Talið er að 18–20 þúsund manns hafi tekjur sem eru undir skilgreindri lág- marksframfærslu sem félagsmálaráðuneytið hefur sett fram. Skýrslan um fátækt sýnir að á árunum 1995–2002 hafi heildartekjur hjóna eða sambýlisfólks með lægstu tekj- urnar aðeins vaxið um 17% á sama tíma og tekjur þeirra efnameiri juk- ust um rúm 45%. Skattgreiðslur efnaminni sem hlutfall af tekjum hafa líka vaxið mikið. Miklu meira en ríka fólksins. Fólk með 110 þúsund krónur í tekjur greiðir nú tæp 14% af sínum tekjum í skatt en greiddi 2–3% af sambærilegum tekjum árið 1995. Ríkisstjórnin gjörsneydd skilningi á stöðu fátækra Það er hreinlega svívirðilegt að með- an ríkustu fjármagnseigendurnir greiða í ár 12% af sínum 60 milljóna heildar árstekjum í skatt skuli fá- tækt fólk lífeyrisþegar og aðrir sem rétt skríða yfir 100 þúsund krónur á mánuði greiða um 14% af sínum heildartekjum í skatt. Þeir efna- minni eru skattpíndir en þeir efna- mestu lifa í skattaparadís. M.a. þess vegna á fátækt fólk ekki fyrir jóla- matnum eða lítilli gjöf til barna sinna. Hjálparsamtökin bjarga þar því sem bjargað verður. Ekki rík- isstjórnin. Jólagjöfin í ár er vænn skattapakki frá ríkisstjórninni til þeirra efnamestu. Á sama tíma nú í desember felldi hún tillögu okkar í Samfylkingunni um að veita atvinnu- lausum jólauppbót – jólauppbót eins og aðrir hafa í þjóðfélaginu. Líka þeir efnamestu – sem sitja við borðin sem svigna undan öllum jólakræs- ingunum. Það er einlæg ósk mín og von að við berum gæfu til þess á nýju ári að stuðla að meiri jöfnuði í samfélaginu um leið og ég óska öllum lands- mönnum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Jóhanna Sigurðardóttir fjallar um fátækt ’Íslenski veruleikinner sá að fátæku fólki er svo naumt skammtað, að það eru hjálparsam- tökin sem bjarga jól- unum á fjölda heimila í landinu.‘ Jóhanna Sigurðardóttir Höfundur er alþingismaður. Fólk í sárri neyð ÉG STARI upp í himininn, á stjörnurnar, allt svo kyrrt og hljótt, svo ólýsanlega heilagt. Það er jóla- nótt. Kyrrð og helgi fylla loftið með kærleiksríkri nærveru þinni, Jesús Kristur. Ég finn fyrir þér, þótt ég sjái þig ekki og geti ekki snert þig. Hjálp- aðu mér að bjóða þig velkominn á mitt heim- ili og í mitt hjarta, sem stundum slær með erf- iðismunum af því að áhyggjur hversdagsins vilja taka völdin og ráða för. Gefðu mér friðinn þinn. Þann frið sem enginn getur gefið nema þú. Þann frið sem veitir sálu minni ró og enginn og ekkert megnar frá mér að taka. Ég þakka þér fyrir fólkið mitt. Alla þá sem ég elska og alla þá sem elska mig. Það er ómetanlegt að eiga góða að. Þakka þér fyrir allar góðu gjafirnar sem ég fékk í kvöld, sem mér voru gefnar í svo miklum kær- leika af ástvinum. Hjálpaðu mér að vera þakklátur og glaður og kunna að meta það sem ég hef fengið og þann kærleiksríka hug sem þar býr að baki. Hjálpaðu mér að læra að meta fólkið mitt, elska það og virða. Hjálpaðu okkur að njóta þess að vera saman. Blessaðu mér og okkur öllum minningarnar um ástvinina sem settu svip sinn á jólahaldið okkar hér áður fyrr en eru nú horfin sjónum og komin inn í hina eilífu jóladýrð. Blessaðu okk- ur allar þær minningar sem jólahaldinu tengj- ast. Jafnt þær ljúfu, sem vonandi standa upp úr, en eins hinar sáru, sem skilið hafa eftir ör vegna einhvers konar vonbrigða. Hjálpaðu okkur að lifa með þeim og vinna úr tilfinningunum sem þeim kunna að tengj- ast. Viltu gefa að sú stað- reynd, að þú ert, mætti fylla hjarta mitt og móta göngu mína í gegnum lífið. Hjálpaðu mér að nema staðar, njóta kyrrðar og hlusta á þig. Hjálp- aðu mér að meta stefnu mína í lífinu og afstöðu mína til þess, til þín og samferðamanna minna. Vitjaðu þeirra sem eru einmana á þessari helgu nótt. Allra þeirra sem líður illa og þeirra sem upplifa sig yf- irgefna á einhvern hátt. Já, vitjaðu allra þeirra sem lífið leikur ekki við. Þú átt einmitt erindi við slíka. Erindi sem sýnir og veitir samstöðu og skilning. Erindi sem glæðir von og gefur lífinu tilgang, fagnaðarerindi, þrátt fyrir allt. Gefðu fólki að upplifa þig og finna að það sé elskað raun- verulegri og falslausri elsku þinni. Leyfðu okkur að upplifa fyrirgefn- ingu þína, huggun, frið og hvatningu. Hjálpa þú mér að vera farvegur kærleika þíns, þótt í veikum mætti sé. Láttu mátt þinn fullkomnast í veikleika mínum. Ég þakka þér, kæri Jesús, að ég má opna mig fyrir þér og biðja svona, á þessari helgu nótt, jafnt og allar aðrar stundir. Ég þakka þér að ég skuli fá að eiga þig að sem vin og bróður, sem frelsara og eilífan líf- gjafa. Raunverulegan vin sem yf- irgefur mig ekki, heldur stendur með mér og er með mér allar stund- ir. Helgaðu þessa nótt og líf mitt allt með eilífri nærveru þinni. Amen. Bæn á jólanótt Sigurbjörn Þorkelsson skrifar bæn ’Vitjaðu þeirra sem erueinmana á þessari helgu nótt. Allra þeirra sem líður illa og þeirra sem upplifa sig yfirgefna á einhvern hátt.‘ Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur og fram- kvæmdastjóri Laugarneskirkju. ÞVERT á algenga trú þess efnis að börn, sem virðast vera vel aðlöguð að umhverfi sínu, séu í raun tifandi tímasprengjur þegar að unglingsárum kem- ur hafa rannsóknir sýnt að flestir ungling- ar aðlagast og hagnast af lífsreynslu sinni. Án mikils óstöðuleika finna þeir jafn- vægi snemma á lífsleiðinni milli langanna og þarfa sinna og vænt- inga fjölskyldu og samfélagsins. Þessu jafnvægi virðist flestir ná án mikilla erfiðleika eða baráttu. Rannsóknir hafa einn- ig sýnt að flestir þeir sem lenda í erfið- leikum á unglings- árum ná sama stöðu- leika og aðrir í lífi sínu þegar á fullorð- insárin kemur. Rannsóknir af þess- um toga, þrátt fyrir mjög jákvæðar nið- urstöður, mæla sjald- an með hvaða hætti ungt fólk er aðstoðað í gegnum þá erf- iðleika sem upp kunna að koma á unglingsárum. Það er væntanlega vegna þess að sú aðstoð getur ver- ið svo margbreytileg að erfitt er að gera skilmerkilega grein fyrir henni. En það er ýmislegt sem uppalendur geta haft í huga þegar kemur að því að stuðla að góðri andlegri heilsu barna sinna og minnka líkur á vímuefnaneyslu. Mikilvægt er að tala við börnin og að geta átt regluleg og einlæg samskipti þau. Með því eiga uppal- endur auðveldara með að þekkja þau málefni og tilfinningar sem börnin glíma við hverju sinni. Þá er mikilvægt að uppalendur séu þátt- takendur í lífi barna sinna. Börn sem eiga foreldra sem taka þátt í starfi þeirra og leik eru ólíklegri til þess að leiðast út í fíkniefni eða af- brot. Mikilvægt er að setja börnum einnig reglur. Þær þurfa að vera skýrar og stuðla að stöðugleika í lífi þeirra. Uppalendur eru einnig fyrirmynd og mega því ekki sýna af sér óábyrga hegðun. Börn líkja eftir fullorðnum og óhófleg notkun áfengis uppalenda, fíkniefnaneysla eða fordómar gagnvart einhverjum þjóðfélagshóp gæti fengið barn til að draga þá ályktun að slík hegðun og viðhorf séu í góðu lagi. Þá geta uppalendur aðstoðað börn sín við að velja sér vini. Allir hafa heyrt orðið „hópþrýstingur“. Börn vilja auðvita, eins og aðrir, að þeim sé vel tekið af jafningjum og stundum getur það orðið til þess að þau framkvæma hluti sem þau venju- Jón K. Guðbergsson fjallar um fíkniefna- vandann ’Mikilvægt er að talavið börnin og geta átt regluleg og einlæg sam- skipti þau.‘ Jón K. Guðbergsson Unglingar eru ekki tímasprengjur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.