Morgunblaðið - 24.12.2004, Side 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÞÚ HEFUR EKKI ÁHYGGJUR AF
MJÖG MÖRGU, ER ÞAÐ NOKKUÐ?
JÚ,
ÉG HEF
ÁHYGGJUR
AF HLUTUM EINS OG HVAÐ ÞÚ
ÆTLAR AÐ HAFA Í MATINN
VÁ!
FUGLAR!
ÞEIR FLJÚGA YFIR ÖLLU
SAMAN OG TÝNAST ALDREI...
ÞEIR NOTA STJÖRNURNAR OG
SÓLINA TIL ÞESS AÐ RATA
SUMIR
ÞEIRRA!
OJ! OOOJJJ! OOOOJJJJJJJ!! OOOOOOJJJJJJ!!!
Rakkarapakk - Hvít jól
saga: Sigrún Edda
teikning: Jan Pozok
Dagbók
Í dag er föstudagur 24. desember, 359. dagur ársins 2004
Viðmælandi Vík-verja, meðvitaður
neytandi, ætlaði ekki
að verða eldri þegar
upp í hann slæddist
stærðarinnar myglu-
köggull úr MS-
skyrdósinni, sem
hann var að borða
hádegismatinn sinn
úr. Neytandinn hafði
samband við Mjólkur-
samsöluna og sagði
sínar farir ekki slétt-
ar. Sá, sem varð fyrir
svörum, spurði fyrst
hvort þetta hefði
nokkuð verið jarð-
arberjaskyr – það
hefðu nefnilega verið einhver vanda-
mál með rauðrófusafa, sem væri
notaður í það. Nei, sagði neytand-
inn, þetta var peruskyr. Þá sagðist
MS-maðurinn ekkert botna í þessu,
en sagði neytandanum að hann fengi
einhverjar bætur frá fyrirtækinu.
x x x
Nokkrum dögum síðar kom ávísunupp á heilar 700 krónur og bréf
frá MS – staðlað og ópersónulegt og
ekki einu sinni stílað á viðtakand-
ann, heldur augljóslega fjölritað.
Þar var í upphafi beðizt velvirðingar
á óþægindunum, en klykkt út með
þessu dæmalausa yfirlæti: „Eitt af
því mikilvægasta til
að viðhalda ferskleika
og geymsluþoli var-
anna er að kæling
haldist samfelld frá
framleiðanda til neyt-
anda. Mjólkursam-
salan vill því færa þér
að gjöf hitamæli til að
fylgjast með hitastig-
inu í þínum kæliskáp.“
Með öðrum orðum gat
viðskiptavinurinn ekki
hafa haft rétt fyrir
sér, heldur var ísskáp-
urinn hans bara vit-
laust stilltur – eða
hvað?
x x x
Fjölrituð bréf kunna ekki góðrilukku að stýra við svona að-
stæður. Þetta minnti Víkverja á
manninn, sem kvartaði til brezku
járnbrautanna eftir að hann vaknaði
við kakkalakka í svefnvagninum, og
fékk innvirðulegt afsökunarbréf. Á
bakhlið þess hékk gulur límmiði
með orðunum: „Sendið þessum
náunga pöddubréfið.“ Ætli fjölrit-
aða bréfið hjá MS heiti myglubréf-
ið?
x x x
Að öllu tuði slepptu – óskar Vík-verji lesendum gleðilegra jóla.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Jólaball | Jólasveinarnir hafa haft í nógu að snúast síðustu dagana fyrir jól.
Stundum eru þeir svo mikið að flýta sér að þeir klifra inn um glugga til að
spara sér sporin. Krakkarnir á Nóaborg fengu sveinana í heimsókn á jólaball
á dögunum og komu þeir þessa óhefðbundnu leið á ballið. Vakti uppátækið
mikla kátínu meðal barnanna.
Morgunblaðið/Golli
Öllum ráðum beitt
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Sá sem vill elska lífið og sjá góða daga haldi tungu sinni frá vondu og
vörum sínum frá að mæla svik. (Péturs bréf 3, 10.)