Morgunblaðið - 24.12.2004, Side 50

Morgunblaðið - 24.12.2004, Side 50
Myndlist Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig- urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk. Gallerí 101 | Daníel Magnússon – Mat- prjónagerð lýðveldisins kynnir: Innihald heimilisins. Gallerí Tukt | Innrás úr Breiðholtinu. Sam- sýning níu myndlistarnema úr FB. Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu- málverk. Hrafnista, Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist- insson myndlistamaður sýnir málverk og tússmyndir í Menningarsal. Klink og Bank | Myndlistarmaðurinn Carl Boutard – Inner Station – the heart of darkness. Listasafn Íslands | Ný Íslensk myndlist: um veruleikann, manninn og ímyndina. 20 listamenn sýna. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning. Stendur til 16. jan. Myndir úr Kjarvalssafni. Listmunahúsið | Sýning á verkum Valtýs Péturssonar í Listmunahúsinu, Síðumúla 34. Norræna húsið | Vetrarmessa fimmtán listamanna og -kvenna. Söfn www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís- lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðsskjalasöfn um land allt hafa samein- ast um vefinn www.skjaladagur.is þar sem að finna fróðleik og sýningu um árið 1974 í skjölum. Tilviljað að rifja upp með fjölskyld- unni minningar frá árinu 1974. Þjóðminjasafn Íslands | Kertasníkir kemur í heimsókn kl. 11. Þá eru íslensku jólasvein- arnir komnir á jólasveinadagatal sem fæst í safninu. Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum er einnig í dagatalinu. Veit- ingastofa safnsins býður fjölþjóðlegar jóla- kræsingar. Kynntir japanskir og pólskir jóla- og nýárssiðir auk íslenskra. Fréttir Bókatíðindi 2004 | Númer 24. föstudags- ins desember er 90457. Mýrdalshreppur | Skrifstofa Mýrdals- hrepps er lokuð í dag. Útivist Ferðafélagið Útivist | 30. desember. Ára- Staður og stund http://www.mbl.is/sos 50 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 fress, 4 skaut, 7 jurt, 8 innflytjandi, 9 tíu, 11 þvættingur, 13 skjóla, 14 svardagi, 15 görn, 17 held, 20 snák, 22 á jakka, 23 samþykkir, 24 fiskur, 25 drykkjurútar. Lóðrétt | 1 lyftir, 2 tigin, 3 slæmt, 4 pyngju, 5 ganga, 6 byggja, 10 grefur, 12 ber, 13 skjót, 15 krafts, 16 beiska, 18 áfanginn, 19 lif- ir, 20 grenja, 21 þröngur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 gunnfánar, 8 ofboð, 9 angur, 10 ugg, 11 arður, 13 auðum, 15 balls,18 satan, 21 tóm, 22 tunnu, 23 ískra, 24 handsamar. Lóðrétt | 2 umboð, 3 niður, 4 álaga, 5 augað, 6 lofa, 7 gröm, 12 ull, 14 una, 15 bæta, 16 lunga, 17 stuld, 18 smíða, 19 takka, 20 nóar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Foreldrar, yfirmenn og aðrir yfirboð- arar koma þér á óvart í dag. Ekki taka neinu sem gefnu. Þú gætir átt það til að koma einhverjum á óvart. Búðu þig í það minnsta undir hið óvænta. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú tekur stökk fram á við í dag. Kannski verður óvenjulegur læri- meistari á vegi þínum, eða að þú verð- ur einhvers áskynja um framandi menningarheim. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Óvæntar gjafir og greiðasemi gæti staðið þér til boða í dag. Einhver ná- kominn þér fær kaupauka eða hlunn- indi sem koma þér jafnframt til góða. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú finnur til sjálfstæðis og hugrekkis út á við, ekki síst í samskiptum við ókunnuga. Öll tjáskipti þín eru með óvenjulegum og spennandi blæ í dag. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Eitthvað truflar fyrir þér rútínuna í vinnunni í dag og dagurinn verður öðruvísi en ætla mætti á einhvern hátt. Það er spennandi því sjóndeild- arhringur þinn stækkar. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Óvænt og spennandi ástarævintýri er möguleiki í lífi margra í meyjarmerk- inu um þessar mundir. Boðum í partí og alls kyns gleðskap rignir bók- staflega yfir meyjuna. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Einhver á heimilinu kemur þér á óvart í dag. Það gæti verið fjölskyldu- meðlimur eða manneskja sem kemur óvænt í heimsókn. Fjölskyldufundir einkennast af glaðværð og spennu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þig skortir ekki nýjar, snjallar og óvenjulegar hugmyndir í dag. Búðu þig undir að sjá ný andlit og kynnast glænýju fólki. Eitthvað gerir þennan dag frábrugðinn öðrum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Peningar renna milli fingranna á þér um þessar mundir vegna óvæntra út- gjalda og óhaminnar eyðslu. Einnig er hugsanlegt að þú vinnir þér inn pen- inga með óvenjulegum hætti. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú finnur fyrir hugrekki, sjálfstæði og ævintýraþrá í dag. Kannski klæðir þú þig upp á óvenjulegan hátt. Þú kemur öðruvísi fram en venjulega, steingeit. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samskipti við stofnanir eða hið op- inbera koma flatt upp á þig á einhvern hátt. Einnig kemur til greina að þú komist á snoðir um leyndarmál og verði illa brugðið. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Líklegt er að vinur þinn komi þér á óvart í dag. Annaðhvort gerir hann eitthvað óvænt eða kynnir þig fyrir furðulegri manneskju. Vertu viðbúinn! Stjörnuspá Frances Drake Steingeit Afmælisbarn dagsins: Hugmyndir þínar eru djarfar og óvenjulegar, en þér tekst iðulega að koma þeim í framkvæmd vegna góðrar skipu- lagsgáfu. Þú ert jafnframt úrræðagóð manneskja og margir í hópi afmælis- barna dagsins hafa skyggnigáfu. Þú laðar að þér fólk því það skynjar ævintýra- girnina sem býr í þér. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Listamaðurinn Birgir Örn Thoroddsenstendur þessa dagana fyrir raunveru-leikagjörningi á sýningu Listasafns Ís-lands (LÍ), Ný íslensk myndlist. Í gjörningnum, sem ber heitið ÍBÚÐIN, er hægt að fylgjast með listamanninum taka í gegn og koma sér fyrir í íbúðinni sinni sem hann keypti fyrir stuttu síðan. Fólk getur fylgst með framkvæmd verksins í fjölmiðlum, á myndabloggsíðu og í beinni útsendingu á heimasíðu LÍ, www.listasafn- .is. Í dag verður svo bein útsending frá fyrstu jól- um í íbúð Birgis, þar sem hægt verður að fylgjast með undirbúningi jólanna og jólahaldinu sjálfu en Birgir og Tinna, unnusta hans, hafa hingað til haldið jólin sitt í hvoru lagi. Hægt er að fylgjast með jómfrújólahaldi parsins frá hádegi í dag. Hvert er hið listræna gildi hversdagsleikans? „Allt hefur gildi og því ekki listrænt gildi? Ég hef mjög gaman af popp-list og dægurmenningu líka en það er sá raunveruleiki sem er okkur næstur, sama hvort okkur líkar það betur eða verr. Mér finnst það að skilgreina að eitthvað sé lágmenning eða hámenning ekki eiga við í nútím- anum. Í rauninni er það að lifa í afneitun á sam- tímanum að halda því fram að ein menning sé göf- ugri en önnur því við vitum í dag að allt hefur þetta áhrif hvað á annað. Þessir múrar eru bara í hausnum á okkur og í myndlistinni voru þeir brotnir niður fyrir meira en fimmtíu árum síðan þegar fyrstu popp-listamennirnir byrjuðu að myndgera neyslumenninguna. Listrænt gildi hverdagsleikans er í rauninni algjört því fegurðin liggur frekar í því auðmjúka og sanna en í því uppstillta og upphafna. Af hverju voru gömlu meistararnir að mála fjöllin sem þeir gátu séð á hverjum degi? Kjarval kenndi okkur að skoða ís- lenska náttúru, að meta hana eins og hún er. Þetta venjulega, bera landslag og leiðinlega hraundrasl sem var alltaf fyrir framan okkur og við tókum ekki eftir. Svo sáum við málverk af hrauninu og þá föttuðum við hvað þetta hvers- dagslega getur verið fallegt.“ Hvert er markmiðið? Hvað viltu skilja eftir hjá listnjótendum? „Að allt getur verið list og hún þurfi ekki að vera upphafin og óskiljanleg. Tenging við almenn- ing skiptir mig miklu máli. List er tjáning og því skiptir máli að ná samtali við áhorfandann, sama hvað kemur svo út úr því samtali. Mér finnst leið- inleg list sem er hrokafull og lokar sig af. Oftast eru fáar lagskiptingar í þannig list og varnarkerfi veikrar listar er því miður oft hroki. Ég vil auðvit- að, eins og allir listamenn, kanna einhver ný svæði. Bæði inni í sjálfum mér sem einstaklingi og mér sem hluta af menningunni. Ég er hvorki betri né verri en einhver önnur manneskja, bara venju- legur ungur maður að gera sér heimili. Vonandi getur áhorfandinn speglað sig og samtíma sinn í verkinu og haft gagn og gaman af. Maður er jú manns gaman.“ List | Ungur listamaður sýnir beint frá fyrstu jólunum í nýrri íbúð  Birgir Örn Thorodd- sen fæddist í Reykjavík árið 1976. Hann út- skrifaðist sem stúdent af myndlistarbraut FB árið 1997. Þá útskrif- aðist Birgir með BA- gráðu í listum frá LHÍ. Birgir hefur lengi starf- að á sviði tónlistar og myndlistar. Í dag kennir hann hljóðhönnun og tónlistasögu í Borgarholtskóla og starfar sem listtæknir hjá Listasafni Reykjavíkur. Einnig hefur hann starfað sem upptökustjóri. Birgir er í föstu sambandi með Tinnu Ævars- dóttur heimspekingi. Fegurðin í hversdagsleikanum Brúðkaup | Gefin voru saman 7. ágúst sl. í Fríkirkjunni í Hafnarfirði af séra Gunnari Björnssyni þau Inga Elínborg Bergþórsdóttir og Árni Einarsson. Þau stunda nú nám í Danmörku. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Motiv-mynd/Jón Svavarsson MYNDLISTARMAÐURINN Úlfur Chaka Karlsson opnaði á dögunum sýninguna Geimdúkka og fönix reglan í Gallerí Ban- ananas á Laugavegi. Á sýningunni má sjá innsetningu eftir Úlf, þar sem sjá má hönnun fyrir hlið- arheim. Opið er í Banananas eftir samkomulagi en Úlfur mun sitja yfir í galleríinu milli kl. 14 og 17 alla virka daga milli jóla og nýárs og einnig fram til 5. janúar en þá lýkur sýningunni. Morgunblaðið/Jim Smart Úlfur sýnir í Banananas mótaferð Útivistar í Bása er 30 desember. Fararstjórar Bergþóra Bergsdóttir og Reynir Þór Sigurðsson. Börn www.menntagatt.is | Fram að áramótum verður opinn jólakortavefur á mennta- gatt.is. Allir nemendur í leik–, grunn- og framhaldsskólum geta sent inn myndir og verða þær sjálfkrafa að jólakortum. Inn- sendar myndir verða sýnilegar á vefnum og getur hver sem er skoðað myndirnar og sent þær sem jólakort til vina og ættingja. DILBERT mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.