Morgunblaðið - 24.12.2004, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 55
FLESTIR íslenskir tónlistarunnendur kannast við nafn
Þóris Baldurssonar. Hann hefur verið umsvifamikill í
hérlendu tónlistarlífi áratugum saman; með Savanna-
tríóinu, Geimsteini, Gömmum og Dátum, svo einhverjar
sveitir séu nefndar.
Nú er kominn út tvöfaldur diskur í tilefni af sextugs-
afmæli Þóris. Á fyrri diskinum er upptaka frá afmæl-
istónleikunum 29. mars sl., þar sem Stórsveit Reykjavík-
ur léði Þóri hljóðfæraleik sinn auk Hljóma, Andreu
Gylfadóttur, Savannatríósins og Björgvins Halldórs-
sonar. Þórir segir að mjög gaman hafi verið að vinna af-
mælisplötuna, í ljósi tilefnisins.
Hvernig valdirðu lögin á seinni diskinn?
„Auðvitað var úr mörgu að velja og svona val er alltaf
huglægt. Maður bara veðjar á einhver lög og ýtir þeim
svo úr vör.“
Hafðirðu mið af því sem var vinsælast?
„Já, og einnig hversu vel mér fannst lögin hljóma.
Maður reyndi að velja lögin sem ollu manni minnsta
kinnroðanum.“
Voru lögin endurhljóðblönduð?
„Ekki á þeim diski, en ég gat unnið svolítið með tón-
leikaupptökuna á hinum diskinum. Hún var gerð með
forritinu Pro Tools og ég gat því hljóðblandað hana.“
Eru frumupptökurnar af eldri lögunum til?
„Það er misjafnt. Við fórum ekki út í að endur-
hljóðblanda þau, enda hefði það verið töluvert verk.“
Hvernig er annars að renna plötunni í gegn og líta yfir
farinn veg?
„Það er alltaf mjög persónulegt. Það er eins og geng-
ur, maður er ekki alltaf 100% ánægður með sjálfan sig.
Það kemur svo margt upp í þessu ferli öllu saman sem
hefur áhrif á mann þegar maður hlustar á lögin. En ég er
mjög stoltur af þessum hljómleikum og afar þakklátur
Stórsveit Reykjavíkur fyrir að gefa mér tækifæri til að
halda upp á afmælið með þessum hætti.“
Af hverju ertu stoltastur á ferlinum?
„Ég er nú gjörsamlega óundirbúinn fyrir svona stóra
spurningu, en get þó sagt að mér finnst ferillinn hafa far-
ið stanslaust upp á við. Ég hef til að mynda sjaldan haft
eins mikið að gera við útsetningar og um þessar mundir.
Á sínum tíma var maður að skrifa með blýanti og strok-
leðri, en núna er það orðið auðveldara, með hjálp tölv-
unnar. Það verður bara meira og meira gaman að vinna í
músík og mun fjölbreyttara en áður. Það má segja að
ferillinn hafi verið eins og crescendo-merki, „meira og
meira og meira“.“
Sú þróun heldur áfram núna, ekki satt?
„Ég ætla bara rétt að vona það. Ég er ennþá með
„fulde fem“ og svo lengi sem ég hef rænu ætla ég að
halda áfram í tónlist. Ég hef reyndar aldrei verið í neinu
öðru og þekki ekkert annað.“
Þú ert nú bara á svipuðum aldri og meðlimir Rolling
Stones.
„Þeir hafa kannski eitthvað aðeins fram yfir mig.“
Þú berð aldurinn betur.
„Þeir hafa einbeitt sér að öðrum meðulum en ég.“
Tónlist | Tveggja diska útgáfa í tilefni af sextugsafmæli
Þóris Baldurssonar
Aldrei verið skemmtilegra
að starfa við tónlist
Þórir er einhver reyndasti tónlistarmaður landsins.
Morgunblaðið/Kristinn
ivarpall@mbl.is
SAMKVÆMT Tónlista gærdagsins á Ellen Kristjánsdóttir aðra mest seldu
plötu landsins, Sálma og Ragnheiður Gröndal þá þriðju mest seldu, Vetr-
arljóð. Báðar þessar plötur hafa nú selst í yfir 10.000 eintökum auk þess
sem báðar eru gefnar út af nýju útgáfufyrirtæki Steinars Berg, Steinsnar.
Söngkonurnar fengu afhentar sérstakar platínuplötur vegna þessa árang-
urs í vikunni.
Steinsnar í platínu