Morgunblaðið - 24.12.2004, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Gleðileg jól
Opið til 13 í dag
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út þriðja í jólum, mánu-
daginn 27. desember. Um jólin
verður fréttaþjónusta á Frétta-
vef Morgunblaðsins, mbl.is.
Hægt er að senda ábendingar
um fréttir á netfangið netfrett-
@mbl.is.
Fréttavakt
á mbl.is
yfir jólin
JÓLAFAGNAÐUR Hjálpræðis-
hersins og Verndar verður hald-
inn í dag, aðfangadag, í Herkast-
alanum, Kirkjustræti 2 í
Reykjavík. Hefst hann að venju
með borðhaldi klukkan 18.
Þeir sem ekki hafa tök á að
dveljast hjá vinum og vanda-
mönnum á aðfangadagskvöld eru
hjartanlega velkomnir á jólafagn-
aðinn.
Jólafagnaður
Verndar og
Hjálpræðis-
hersins
„ÞETTA hefur bara gengið vel og
kaupmenn eru almennt nokkuð sáttir
og telja að það verði meiri verslun í ár
en í fyrra,“ segir Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka
verslunar og þjónustu, aðspurður
hvernig verslunin hafi gengið fyrir sig
nú í desember. Samkvæmt upplýsing-
um frá kortafyrirtækjunum er 12–
20% meiri velta hjá þeim í desember í
ár en í fyrra.
Mikið verslað á Þorláksmessu
Að sögn Sigurðar er Þorláksmess-
an afar stór söludagur í ákveðnum
tegundum verslana, t.d. skartgripa-
verslunum og búðum með dýrari
gjafavöru. Sigurður segir Þorláks-
messuna mikilvægan dag fyrir marg-
ar búðir og nefnir í því samhengi
dæmi um fatabúð þar sem veltan á
Þorláksmessu jafngildir allri sölu jan-
úarmánaðar. „Þannig að það skiptir
því verulega miklu máli að vel takist
til á þessum degi.“
Samkvæmt upplýsingum frá Önnu
Ingu Grímsdóttur, fjármálastjóra
VISA Ísland, má búast við að korta-
velta fyrirtækisins í desembermánuði
sé nokkru meiri en í sama mánuði í
fyrra. „Þannig er veltan á kortatíma-
bilinu 18. nóvember til 17. desember í
ár 10,7 milljarðar sem er 12% aukning
frá því á sama tíma í fyrra.“ Sé það
sem af er liðið desembermánuði borið
saman við desembermánuð í heild
sinni í fyrra stefnir, að sögn Önnu
Ingu, í 11–12% aukningu, en þess má
geta að veltan frá 1.–31. desember
árið 2003 var samtals 11 milljarðar, en
milli jóla og nýárs gera margir
stórinnkaup á flugeldum og mat.
Aðspurð segir Anna Inga Þorláks-
messu nokkru stærri dag hvað veltu
varðar en aðra daga desembermán-
aðar. „Ætli það muni ekki eitthvað í
kringum 100 milljónum, en í heild
sinni var veltan á Þorláksmessu í
fyrra hjá okkur 536 milljónir. Ég á
von á því að veltan verði alla vega um
10% meiri á Þorláksmessu í ár en í
fyrra.“
Hjá Ragnari Önundarsyni, fram-
kvæmdastjóra Kreditkorta, fengust
þær upplýsingar að heildarvelta fyr-
irtækisins tímabilið 15. nóvember til
14. desember í ár hefði verið tæpir 3,3
milljarðar og er það tæplega 20%
aukning frá því á sama tíma í fyrra.
Verslun fyrir jólin verið með allra mesta móti í ár
12–20% meiri velta í
desember en í fyrra
VALDEMAR Danaprins (f. 1858)
heillaðist af Elínu Þorleifsdóttur (f.
1866), frá Stóru-Háeyri á Eyrar-
bakka og bað hennar. Elín var þá við
nám við hinn konunglega Kunstflids
Foreningsskole á 9. áratug 19. aldar
og var heitbundin séra Jóhanni Þor-
steinssyni í Stafholti í Borgarfirði.
Elín hafnaði bónorði prinsins, en
þáði heimboð í konungshöllina og
drakk þar síðdegiste.
Þetta kemur fram í sögu Elínar
Þorleifsdóttur, sem Sigrún Gísla-
dóttir skráði eftir Sigríði Þorleifs-
dóttur ömmu sinni og systur Elínar.
Pétur Pétursson þulur, sem skrifað
hefur um náin tengsl Íslendinga við
nafnkunna Dani, birtir frásögnina
þar sem þetta gamla leyndarmál er
opinberað.
Valdemar prins var sonur Krist-
jáns IX og bróðir Friðriks VIII.
Hann bar góðan hug til Íslendinga.
Hafnaði
bónorði
Valdemars
Danaprins
Kynni Elínar/30
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu hefur undirritað samn-
ing við fjármálafyrirtækið Morgan
Stanley um ráðgjöf og aðra þjónustu
vegna sölu á hlutabréfum ríkisins í
Landssíma Íslands hf.
Að sögn Stefáns Jóns Friðriksson-
ar, ritara nefndarinnar, er ekki ljóst
hvenær einkavæðingarferlið getur
hafist en þó eru forsendur fyrir því að
það geti hafist eftir tvo til þrjá mán-
uði. Samkvæmt tilkynningu frá
nefndinni var ákveðið að ganga til
samninga við Morgan Stanley eftir
mat nefndarinnar þar sem meðal ann-
ars var tekið tillit til verðþáttar, þjón-
ustu og gæða tilboða. Jafnframt segir
í tilkynningunni að Morgan Stanley
búi yfir mikilli reynslu af ráðgjöf og
einkavæðingu, þar með talið í fjar-
skiptageiranum.
Alls buðu 14 aðilar í verkefnið en
þeir voru auk Morgan Stanley:
Carnegie og Verðbréfastofan, Credit
Suisse First Boston og Alfa, Deloitte,
Deutsche Bank og MP Fjárfesting-
arbanki, Ernst & Young, Handels-
banken Capital Markets, HSH
Gudme, JP Morgan og Íslandsbanki,
KPMG, Landsbankinn, Lazard,
Lehman Brothers og Allied Partners
og Pricewaterhouse Coopers.
Samið við
Morgan
Stanley
UNG kona brenndist á höndum þeg-
ar kviknaði í heima hjá henni í Skipa-
sundi í gærmorgun. Hún fékk að-
hlynningu á staðnum og voru
meiðslin ekki alvarleg. Elda-
mennska stóð yfir þegar kviknaði í
og var hvorki slökkvitæki né eld-
varnarteppi tiltækt. Notaði húsráð-
andi því yfirhöfn til að kæfa eldinn
en brenndist við það á höndum.
Slökkviliðið slökkti eldinn.
Brenndist
á höndum
FJÖLDI fólks á öllum aldri var í miðbæ Reykja-
víkur í gærkvöldi, ýmist í gönguferðum eða þá
að klára jólainnkaupin. Sumir áttu eftir að
kaupa nokkrar jólagjafir, en fyrir marga er það
hluti af hátíðarundirbúningnum að fara í miðbæ-
inn til þess að upplifa jólastemmningu á Þorláks-
messukvöld. Þótt það hafi verið býsna kalt í gær-
kvöldi þá lét fólk kuldann ekki hafa mikil áhrif á
sig heldur klæddi sig vel í frostinu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hátíðarstemning í miðbænum