24 stundir - 04.01.2008, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 24stundir
Græðandi jurtir Þol-
inmæði þarf til að byggja
upp líkamann með jurtum.
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Algengast er að fólk komi til mín
í viðtöl með kvilla á við gigt,
þreytu og vandamál tengd breyt-
ingaskeiði. Þá er mikið af fólki
sem leitar til mín eftir lausnum í
apótekinu sjálfu. Þreyta, vægt
þunglyndi, svefnvandamál, eyrna-
bólgur barna og óróleiki og melt-
ingarvandamál eru örfá dæmi um
kvilla sem fólk vill fá lausn á.“
Aðspurð um virkni jurta miðað
við lyf segir Kolbrún jurtir oftast
mildari þótt styrkleikinn sé mis-
jafn.
„Jurtir eru oftast mildari og þær
innihalda hundruð efna en lyf eru
oft eitthvert eitt efni með ákveðna
verkun. Jurtir eru almennari og
þær byggja oft upp og styrkja lík-
amann meðan þær ráðast til
lausnar. Lækning með jurtum tek-
ur oft lengri tíma og stundum
þarf að bíða og sjá hvort virknin
er sú rétta og ef til vill prófa aðra
blöndu. Hins vegar er mikil þekk-
ing á virkni jurta og margar jurtir
hafa vel þekktan lækningamátt.“
Kolbrún segir að þekking á
lækningamætti jurta mætti vera
almennari. „Það væri óskandi að
fólk vissi meira um góð áhrif ým-
issa jurta og fræðsla um slíkt gæti
orðið áhrifamikil heilsubót fyrir
samfélagið. Margir kenna sér til
dæmis meins í maga og allir ættu
að vita að það að fá sér pip-
armyntute virkar vel við magap-
ínu.“ Kolbrún talar sérstaklega um
meltingarvandamál. „Margir taka
lyf við bólgnum maga og sýru-
vandamálum. Sýrustillandi lyf
leysa engan vanda og stöðva ein-
ungis einkennin. Jurtir gera betur
og byggja upp slímhúðina og slá á
einkennin um leið. Þannig virka
jurtir oft. Byggja upp og lagfæra
um leið og þær slá á einkenni.
Lækningin tekur hins vegar tíma
og mér hefur virst að fólk finni sér
ekki tíma til að leita sér lækninga.
Það hefur viljað skyndilausnir. Ég
verð reyndar vör við breytingar
hvað þetta varðar og vona að þær
þróist í rétta átt.“
Gleði, Heiður og Suttungamjöður
Jurtir styrkja og
græða líkamann
➤ Gætið hófs í mat og drykk, þásérstaklega í drykkjum. Bætið
góðri og hollri fæðu í mat-
aræðið.
➤ Ætlið ykkur ekki um of, breyt-ingarnar verða ekki til lang-
tíma ef það er farið of geyst í
þær.
➤ Hvílið ykkur, farið snemma aðsofa að minnsta kosti fimm
sinnum í viku.
„Ég þróa vörur fyrir jurta-
apótekið sem ég rek og
veiti fólki ráðgjöf um
ýmsa kvilla,“ segir Kol-
brún Björnsdóttir um
starf sitt sem grasalækn-
ir. Kolbrún hefur notið
velgengni sem grasa-
læknir og jurtablöndur
hennar, sem bera for-
vitnileg nöfn á við Sutt-
ungamjöður, Heiður og
Glaður, njóta vinsælda.
Blöndur
Lyfjablanda
við eyrna-
bólgu og
kvefi.
Röskur þrjátíu mínútna göngu-
túr sex sinnum í viku er nægileg-
ur til að minnka mittismálið og
þá er sömuleiðis minni áhætta á
að fá efnaskiptasjúkdóm (metabo-
lic syndrome), sem tengist offitu
og kyrrsetulífsstíl. Þetta kom í ljós
í nýlegri rannsókn í Bandaríkj-
unum og göngutúr er sagður hafa
töluverð áhrif, jafnvel þó að engar
breytingar í mataræði séu gerðar.
Það er áætlað að um fjórð-
ungur Bandaríkjamanna sé með
efnaskiptasjúkdóm, sem eykur lík-
ur á hjartasjúkdómum, sykursýki
og heilablóðfalli. Rannsakendurnir
skoðuðu hvaða áhrif alls kyns
hreyfing hefði á 171 miðaldra
konu og karla sem auk þess
glímdu við offitu. Áður en rúm-
lega fjörutíu prósent hópsins fóru
að æfa reglulega voru þau í hættu
á að fá efnaskiptasjúkdóm. En við
lok átta mánaða þjálfunarferlis
voru það einungis 27 prósent sem
voru í hættu. Að sögn rannsak-
endanna voru þetta góðar fréttir
fyrir miðaldra fólk sem vill bæta
heilsu sína. Það er því ekki nauð-
synlegt að fara út að hlaupa fimm
sinnum í viku heldur getur það
bætt heilsuna töluvert að fara í
góðan göngutúr á kvöldin. Þeir
einstaklingar í rannsókninni sem
stunduðu mjög erfiða líkamsrækt
í stuttan tíma bættu heilsuna ekki
eins mikið og þeir sem stunduðu
hæfilega líkamsrækt í lengri tíma.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru
því að einhver hreyfing er betri en
engin, meiri hreyfing er betri en
minni og hreyfingarleysi býður
hættunni heim.
Ný bandarísk rannsókn
Hreyfingarleysi býður hættunni heim
Röskur göngutúr Það getur
gert gæfumuninn að fara í rösk-
an göngutúr sex sinnum í viku.
Ávextir í áskrift
er einhver besta
fjárfesting sem þú gerir
í starfsmannamálum.
www.avaxtabillinn.is
Er fyrirtækið
þitt vaktað?
ÞRJÚ RÁÐ KOLBRÚNAR