24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 19
Líkamshár vaxa ekki aftur þykk,
gróf og í meira magni ef leggirnir
eru rakaðir. Hrein og klár mýta,
leiða nýjustu rannsóknir í Banda-
ríkjunum í ljós. Hárin líta hins
vegar út fyrir að vera þykkari vegna
þess að skorið er þvert á þau. Sé
notað vax er allt hárið fjarlægt, því
er það svo að þegar hárið vex aftur
í eðlilegri mynd virðist það fín-
gerðara vegna þess að hárendinn er
spírallaga.
Vísindamenn í Háskólanum í
Indiana hröktu nokkrar mýtur er
hrella fólk í daglegu lífi. Þeirra á
meðal mýtuna um að meinhollt sé
að drekka 8 glös af vatni á dag.
Nóg af vatni fæst með neyslu
ávaxta, mjólkur, kaffi og tedrykkja.
Þá leiddu niðurstöður í ljós að það
sé jafnvel skaðlegt líkamanum að
drekka of mikið af vatni, það skapi
óþarfa álag á líffæri líkamans, þar á
meðal þvagblöðruna.
Þá var hrakin mýtan um að léleg
birta hafi slæm áhrif á sjón, þrátt
fyrir að slæm birtuskilyrði skapi
tímabundið álag á augun séu áhrif-
in alls ekki til langs tíma. Ástæður
hrakandi sjónar séu allt aðrar.
Syfjaður af osti?
Þá er rangt að maðurinn noti
aðeins 10% heilans. Það hafa rann-
sóknir á fólki með heilaskaða leitt í
ljós. Heilaskemmd hvar sem er í
heilanum hefur þau áhrif að færni
manns á einhverju sviði er skert.
Þá sýna myndir af heilanum að
virkni í heila er ekki staðbundin og
ekkert svæði hans hafði enga
virkni.
Farsímar hafa hverfandi áhrif á
segulsvið innan sjúkrahúsa og eng-
inn ætti að verða syfjaður af kal-
kúnaáti. Í kalkúnakjöti finnst að
vísu efni er kallast tryptophan sem
er þekkt fyrir að valda syfju. Magn-
ið er hins vegar fremur lítið meðan
mun meira magn efnisins finnst í
svínakjöti og osti.
Það er í góðu lagi að raka leggina og ekki hollt að sturta í sig vatni!
Hreinar og klárar mýtur!
24stundir FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 19
Engiferrót er talin hafa lækn-
ingamátt og góð áhrif á heilsu.
Hún hefur verið einn af horn-
steinum austurlenskra nátt-
úrulækninga í þúsaldir. Jurtin
hefur verið notuð til þess að örva
meltingu og til að lækna maga-
kveisur, lina höfuðverk (þ. á m.
mígreni), slá á bólgu og gigt-
arverki, meðhöndla nýrnakvilla,
lina hálsbólgu og hósta og önnur
einkenni kvefs.
Engifer er allra
meina bót
Eitt af megineinkennum skamm-
degisþunglyndis er að missa kraft
og áhuga á áhugamálum og verk-
um. Hins vegar er það svo að ef
þrjóskan er notuð sem vopn og
fólk pínir sig áfram og ákveður að
lesa bók, fara á tónleika, í kvik-
myndahús eða í göngutúr hefur
það snör og góð áhrif á hið mein-
lega þunglyndi sem allt líf drepur.
Þeir þrjósku og einbeittu ráða
betur við skammdegisþunglyndið.
Þrjóskan er
góður eiginleiki
Á nýju ári er tilvalið að brydda
upp á nýjungum í mataræðinu.
Allir festast í fari hvað mataræðið
varðar og eiga það til að velja allt-
af sömu vörurnar í matarkörf-
una. Eitt af því sem hægt er að
gera er að bæta möndlum, hesli-
hnetum, graskersfræjum, sólbló-
mafræjum eða hörfræjum í mat-
aræðið. Þá er góð hugmynd að
eiga til á heimilinu gott hnetu-
smjör án sykurs og aukafitu.
Möndlur, fræ
og hnetur