24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 48

24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 48
24stundir RitstjórnSími: 510 3700ritstjorn@24stundir.isAuglýsingarSími: 510 3700auglysingar@24stundir.is  Byrjaður að undirbúa þig fyrir Serbíu? „Já, minn undirbúningur felst aðallega í því að æfa vöðv- ana. Ég þarf að vera mjög skorinn og verð að líta vel út ber að ofan,“ svarar Cerez 4 sem syngur ásamt fríðum hópi listilega vel lagið Ho, ho, ho we say hey, hey, hey sem keppir um að taka þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd í ár. „Hver og einn er í sínu horni að hlusta á lagið öðru hverju. Maður verður að setja það í endrum og eins svo það gleymist ekki. Að vísu hitti ég Barða um daginn þegar hann var að fara á Hvolfs- völl í slökun til að undirbúa sig andlega og hvíla sig fyrir loka- sprettinn.“ Tilbúinn í Eurovision  Hvernig í ósköpunum datt þér í hug að fá Tommy Lee í Burn- partí? „Þetta er ein af þessum klikkuðu hugmyndum sem maður fær og sem betur fer lætur maður þær ekki allar verða að veruleika, en við fiskum stöðugt eftir spenn- andi atriðum,“ svarar Margeir Ingólfsson sem starfar hjá við- burðafyrirtækinu Jóni Jónssyni. „Tommy og Aero voru að spila í sama klúbbi og ég í Stokkhólmi fyrir um hálfu ári og þar fékk ég hugmyndina. Tommy spilar á trommur og fer hamförum á ef- fektum á meðan Aero snýr plöt- um. Það verður brjálað klúbba- kvöld á Nasa.“ Klikkuð hugmynd Umsjón: Ellý Ármanns elly@svidsljos.is  Ertu að toppa sjálfan þig? „Nei, nei, nei alls ekki. Fyrst og fremst er ég bara að ögra sjálfum mér. Ég er að gera eitthvað sem stendur mér kannski ekki næst að gera en ég hef alltaf reynt að staðna ekki, heldur fara leiðir sem liggja ekki alveg beint við. Að klæða sig í smóking og syngja með stórsveit er ekki alveg það sem fólk sér fyrir sér að Bubbi geri.“ segir Bubbi Morthens. Ögrar sjálfum sér Gunnar Sigurðsson og Viðar Pétursson velja ís- lenskan útlending ársins á X-inu á laugardag- inn í þættinum Hljóðvakinn Grútvarp milli klukkan 12 og 14. Þeir óttast ekki viðbrögðin. Allt í gríni gert «42 Samkvæmt heimildum 24 stunda hafa ein- hverjir af íslensku auð- mönnunum leitað til heilags Antóníusar í við- leitni til að finna millj- arðana sem hafa týnst í Kauphöllinni. Séra Jörg- en Jamin staðfestir þetta ekki, en segir fólk leita til heilags Antóníusar í leit að týnd- um hlutum. Týndu milljarðarnir «46 Svokallað hjákonuball verður haldið með pompi og prakt í Draugabarnum á Stokkseyri í kvöld. Aðstandendur staðarins segja ljóst að ballið muni mælast vel fyrir. Hjákonum boðið «46 Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.