24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 42

24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 24stundir Feim-Lene Bjerre Bæjarlind 6 www.feim.is Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-16 ÚTSALA 10-60% afsláttur 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Fjölmenningarsamfélagið hefur auðgað okkar menningu og ætti að skilja húmorinn. Undanfari Óskarsverðlaunanna, Golden Globe verðlaunin, er nú í uppnámi sökum verkfalls hand- ritshöfunda í Hollywood. Hátíðin er dagsett þann 13. janúar og höfðu skipuleggjendur vonast til að semja sérstaklega við höfunda líkt og spjallþáttakóngarnir Jay Leno og David Letterman. Hand- ritshöfundar standa þó fast á sínu og virðast hvergi gefa eftir. Engin Golden Globe í ár? Hinn brostna Broadway-stjarna Liza Minnelli má muna fífil sinn fegri. Hún hefur þó haldið sér við með ótal lýtaaðgerðum, en þær komu ekki í veg fyrir að hún hnigi niður á sviði í Svíþjóð fyrir stuttu. Hin 61 árs Minnelli segist þó hafa náð sér að fullu, án þess að gefa upp nákvæmlega hvað angraði hana. Hún er bókuð í Bandaríkjunum þann 12. janúar. Liza Minnelli öll að hressast Módel í Bretlandi, sem vill leyna nafni sínu, hefur kært skartgripa- fyrirtæki fyrir að birta auglýsingu sem hún lék í á Szul.com. Mód- elið, sem segist annt um ímynd sína, sést þar leika fullnægingu og finnst módelinu auglýsingin klámfengin, en auglýsingin ber nafnið „Rock her world“. Kærir klám Tvífarar vikunnar að þessu sinni eru herramennirnir William H. Macy og Árni Finnsson. Svo sterk- ur er svipurinn með þessum tveimur mætu mönnum að vart má á milli greina hvor þeirra er heimsþekktur Hollywood leikari og hvor er formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands. Macy hefur gert garðinn frægan í myndum á borð við Fargo, Magnolia, Jurassic Park 3, Sahara og Thank You for Smoking og er hann einn af þeim leikurum sem allir vita hver er án þess að þekkja endilega nafn hans. Ekki er vitað til þess að Árni hafi leyft leiklist- arhæfileikum sínum að njóta sín, á innlendum eða erlendum vett- vangi. vij Náttúruverndarsinninn og stórleikarinn Tvífarar vikunnar Angelina Jolie rétti fram sátt- arhönd til föður síns, Jon Voight, á jóladag, en þau hafa ekki talast við eftir að Jon lét ljót orð falla um dóttur sína í sjónvarpsþætti árið 2002. Allar götur síðan hefur andað köldu á milli feðginanna, en um jólin hringdi leikkonan í föður sinn eftir að hafa virt að vettugi beiðni hans um sættir í mörg ár. Heimildarmaður Nat- ional Enquirer segir Angelinu hafa afráðið að hringja þegar hún eyddi jólunum með Brad Pitt og börnum þeirra í New Orleans um jólin, en að sögn vinar þeirra var um stutt símtal að ræða. hþ Réttir fram sátt- arhönd til pabba Snobbkryddið Victoria Beckham hefur útbúið lista yfir þá óvini hennar sem ekki fá inngöngu á tónleika Spice Girls í London sem haldnir verða næstu daga. Að mati Victoriu hafa ákveðnir ein- staklingar reitt hana til reiði í gegnum tíðina og hefur hún ákveðið að finna þá í fjöru með þessu sérstaka uppátæki sínu. Listinn mun hanga frammi í móttöku tónleikanna og verða hinir óvelkomnu vinsamlegast að hverfa á braut láti þeir sjá sig. Meðal þeirra sem eru á listanum eru Peter Andre og Jordan, Lily Allen, Sophie Ellis Bextor og Denise Van Outen. hþ Setur óvinina á bannlistann „Við erum búnir að taka upp sex grunna [að nýjum lögum] og erum á leiðinni að taka upp fleiri,“ segir Þormóður Dagsson, trommuleikari hljómsveitarinnar Jeff Who? Hljómsveitin vinnur nú að nýrri breiðskífu sem verður líklega með 12 lögum. Aðdáendur sveitarinnar bíða í ofvæni eftir nýju efni frá strákunum, en nýjasta lag Jeff Who? She’s Got the Touch, náði töluverðum vinsældum á öldum ljósvakans. Þormóður segir að meðlimir hljómsveitarinnar ætli að einangra sig á næstunni og klára að ganga frá seinni hluta nýju laganna. Jeff Who? stefnir á að gefa út nýju plötuna seinna á þessu ári, sem virðist ætla að verða óvissuár í íslenskri tónlist. 2007 þótti mjög gott og margar af stærstu hljóm- sveitum landsins gáfu út breið- skífur sem veltir upp spurningunni hver sé eftir til að sjá um að gera 2008 að góðu ári, fyrir utan Jeff Who? auðvitað. atli@24stundir.is Jeff Who? vinnur að skífu Flottir Margir bíða spenntir eftir nýju efni frá Jeff Who? Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@24stundir.is Íslenskur útlendingur ársins verð- ur valinn í miðdegisútvarpinu Hljóðvakinn Grútvarp á X-inu 97.7 á laugardaginn frá 12-14. Til- nefndir eru 29 þekktir ein- staklingar, sem eiga það sammerkt að hafa einhver tengsl við útlönd. Óttast ekki neikvæð viðbrögð „Fjölmenningarsamfélagið hef- ur auðgað okkar menningu og ætti að skilja húmorinn,“ segir Gunnar Sigurðsson útvarpsmaður, en hann óttast ekki viðbrögðin við uppá- tækinu. „Eflaust taka einhverjir þetta óstinnt upp. Við verðum líka með undirflokka. Líklegastur til leiðinda gæti orðið Salman Ta- mimi til dæmis, en hann er for- maður Félags múslíma. En við ótt- umst ekki jihad, við erum með Ara Edwald og 365 á bak við okkur. Það munaði reyndar litlu að Ari kæmist á listann, hann er með tvö- falt vaff í nafninu sínu.“ Listi Gunnars er hér til hliðar. Óvenjuleg og eldfim kosning á X-inu á laugardaginn Velur íslenskan útlending ársins Hvergi banginn Gunnar Sigurðsson segist ekki óttast jihad, enda sé um létt grín að ræða. Útvarpsmennirnir Gunn- ar Sigurðsson og Viðar I. Pétursson standa fyrir vali á íslenskum útlend- ingi ársins á laugardag- inn. Þeir óttast ekki nei- kvæð viðbrögð útlendinga. TILNEFNINGAR Í STAFRÓFSRÖÐ Ahn Dao Trahn kennari Alex eiginmaður Jónsa í Sigurrós Aron Pálmi Ágústsson íssölumaður og fyrrverandi stofufangi. Björgólfur Takefusa knattspyrnumaður Charlotte Böving leikkona Dorrit Moussaef eiginkona. Dóra Takefusa kaffihúsaeigandi Eivör Pálsdóttir söngkona Emilliana Torrini söngkona Hún-þarna-pólska-konan-í-sjálfstæðis- flokknum stjórnmálamaður. Ívar Webster körfuknattleiksmaður Jaliesky Garcia handkastsmaður Jógvan Hanson hárskeri Jón Gerald Sullenberger athafnamaður Jónas Sen dagskrárgerðarmaður Jónína Bjartmarz þingmaður Kalman Le Sage De Fontenay tæknimaður Leoncie listamaður. Nadia Banine sjónvarpsmaður Paul Aðalsteinsson/Ian Strachan fjárkúgari Paul Nikolov þingmaður Róbert Wessmann viðskiptajöfur. Rúnar Alexandersson fimleikamaður Salman Tamimi formaður Múslimaflokksins Séra Toshiki Toma prestur innflytjenda Sturla Gunnarsson leikstjóri Sigurður Pétursson ísmaður Teitur Þórðarson þjálfari Tomas Malakauskas innflytjandi Árni Finnsson Formaður Náttúruvernd- arsamtaka Íslands. William H. Macy Velkunnur Hollywood leikari og gæðablóð. Breska söngkonan Lily Allen seg- ist ekki hafa ráðgert barneignir á næstunni, en hún kunngjörði ný- verið að hún ætti von á barni með kærastanum Ed Simmons. Í þessu samhengi vekur sérstaka athygli að söngkonan, sem nú er 22 ára, viðraði skoðanir sínar á ungum mæðrum í desember og úthúðaði stelpum fyrir að eignast börn of ungar. „Stelpur eignast börn alltof ungar og ekkert er gert í málinu,“ sagði stjarnan. hþ Allen skammar ungar mæður

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.