24 stundir


24 stundir - 04.01.2008, Qupperneq 26

24 stundir - 04.01.2008, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 24stundir Rannsóknir hafa sýnt fram á að ólífuolía er rík að A- og E-víta- mínum og andoxunarefnum, sem eru mikilvægasti þátturinn í að viðhalda eðlilegu rakastigi og þar með unglegu útliti húð- arinnar. Ólífuolían er þekkt fyrir að græða sár og endurnýja frumur og heldur því húðinni unglegri. Hún er einnig mjög góð fyrir hár, endurnærir og gerir það líflegt og fallegt. Einnig hefur notkun henn- ar lagað ýmsa kvilla eins og flösu, hárlos og kláða í hársverði. Ólífu- olía hefur verið notuð í gegnum aldirnar í húð- og hárvörur. Má nefna að ítalska leikkonan Sophia Loren þakkar fegurð sína og ung- legt útlit notkun á ólífuolíu á húð og hár. Ólífuolían er ennþá eitt náttúrulegasta efnið sem notað er í snyrtivörur. Fáanlegar eru hér á landi mjög virkar hágæðavörur frá Grikklandi sem unnar eru úr ólífu, Olivia. Þessar vörur hafa hjálpað fjöl- mörgum notendum að halda húð og hári í sínu besta formi og varið gegn veðri og vindum. Þá hafa þær reynst þeim vel sem eiga við húðvandamál að stríða eins og t.d. þurrk, exem o.fl. Einnig má nota þær á börn. Olivia er til í ýmsum vöru- flokkum og má þar nefna sjampó, næringu og djúpnæringu fyrir hár, húðkrem, handkrem og ein- stakt kornahreinsikrem sem unnið er úr kjarna ólífunnar og gerir hreint kraftaverk fyrir húðina. Lykillinn að unglegu útliti og fegurð Ólífuolía notuð gegnum aldirnar Hægt er að fá Olivia-vörurnar í verslunum Hagkaupa, Fjarðarkaupum og Sam- kaupum-Úrvali um land allt. Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Manneskja sem lifir heilsu- samlegu lífi þarf ekki að fasta,“ segir Birna og nefnir að föstur gegni þeim tilgangi að hvíla lík- amann á slæmu mataræði og séu upphaf á nýjum lífsstíl. „Fasta gegnir þeim tilgangi að rjúfa áskapaðan vítahring og ef fólk lifir heilbrigðu lífi hefur fasta ekki endilega tilgang til heilsu- bótar. Það er miklu betra að velja heilsusamlegan lífsstíl og sleppa því að fasta,“ bætir Birna við. Auglýsingaskrumið áberandi Spurð hvað henni finnist um það æði er skapast um föstur í janúarmánuði segist Birna lítið hrifin af því að fasta þá. „Ég er ekki heilluð af föstum á þessum árstíma. En æðið á sér sálrænar ástæður meðal fólks, það hefur borðað yfir sig, líður illa og þráir einhverja tiltekt. Auglýsingaskrum tengt föstu- kúrum er áberandi á þessum árstíma. Betra er að fasta á vorin og haustin og þá þarf að und- irbúa sig afar vel. Áður en fastan hefst þarf að minnka við sig í mat og borða léttara fæði í ein- hvern tíma og eftir að föstu lýkur þarf að byrja smátt. Það þýðir náttúrlega ekki að hlaupa til og fá sér pylsu og kók, þá er til lítils unnið. Fastan á að vera byrjun á nýjum og betri lífsstíl.“ Gott eftirlit er mikilvægt Birna nefnir að ekki allir geti fastað. Líkaminn þurfi að vera í góðu ástandi, fituforði nægur og enginn alvarlegur sjúkleiki má vera til staðar. „Góða þekkingu þarf til að rétt sé að málum staðið og ekki er rétt að ana af stað. Ég gæti mælt með því að fólk fasti ef það er uppfullt af sleni og slími, með háa blóðfitu og með ýmsa smák- villa og sé með það hugarfar að vilja gera góða breytingu á lífsstíl sínum.“ Aðspurð hvort þau auk- og eit- urefni sem hreinsist út séu ekki fljót til baka í líkamann segir hún svo vissulega vera. „En auðvitað aldrei í sama magni og áður ef einhver breyting er gerð á mat- aræðinu. Og þá má nefna að fasta er ekki endilega líkamleg, hún er gerð fyrir hugann líka og hugur og líkami starfa saman. Líkaminn áttar sig á því hvað hann nauð- synlega þarf og hvað hann þarf ekki í föstu.“ Fastan er orðin, eins og margt, brengluð og notuð í röngum til- gangi og Birna segir sérstaklega bera á því að fasta sé skyndilausn til þess fallin að léttast. Auðvitað léttist fólk við það að fasta. En þyngdin kemur fljótt til baka og á að gera það. Það að fasta er ekki góð leið til að grennast en það að breyta mataræði sínu hægt og ró- lega er það hins vegar. Þá má líka nefna að sumu fólki reynist hættulegt að fasta og þá sér- staklega þeim sem hafa engan fituforða. Þessir einstaklingar ættu alls ekki að fasta, við það ganga þeir á vöðva, leggja óþarfa álag á líkamann og svelta hann um efni sem hann þarfnast. 24stundir/Árni Sæberg Margir fasta af röngum ástæðum í heilsuæði Föstur eru ekki til heilsubótar fyrir alla Föstukúrar ýmsir virðast vinsælir í ársbyrjun þegar heilsuæði og megrunar- árátta grípur um sig með- al landans. En er hollt að fasta? Birna Ásgeirsdóttir, hómópati og næringarþerapisti, tal- ar um föstur og auglýs- ingaskrum. Þekking og rétt hugarfar Fasta getur verið góð sé hún gerð af kunnáttu Glæsileg undirföt frá Hamraborg 7 Kópavogi Sími 544 4088 Opið - Mán–fös 11-18 /Lau 11-14 Útsala 15-70% afsláttur LÍFRÆNIR SAFAR Fæst í heilsubúðum og helstu matvöruverslunum landsins

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.