24 stundir - 04.01.2008, Page 39

24 stundir - 04.01.2008, Page 39
Badmintonstjarnan Ragna Ingólfs- dóttir færðist hvorki upp né niður á nýjum heimslista Alþjóða badminton- sambandsins sem birtur hefur verið. Situr hún enn í 53. sæti listans en þar hefur hún verið undanfarna tæpa tvo mánuði. Fyrir utan heiðurinn er mikilvægt fyrir Rögnu að komast ofar til að tryggja sér endanlega þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Kína í sumar en það verður í raun ekki ljóst fyrr en í maí, aðeins þremur mánuðum áður en leikarnir hefjast. Hæst reis stjarna Rögnu fyrr á árinu þegar góðir sigrar á erlendum mótum auk Íslandsmeistaratitils komu henni í 37. sæti þessa sama lista. Hún varð um áramótin í þriðja sæti yfir íþrótta- menn ársins og aldrei áður hefur bad- mintonspilari náð svo ofarlega. Óbreytt staða hjá Rögnu á nýbirtum heimslista í badminton Númer 53 í heiminum  Leikmannaglugginn opnaður á ný í Evrópu  Margir stjórar hugsa gott til glóðar  Ýmis teikn á lofti um sviptingar liða á milli Engar útsölur í boltanum 24stundir FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 39 ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Þá er Eiður Smári Guðjohnsen sem fyrr orðaður við ensk fé- lagslið og þar virðist nú Manchester City fremst í flokki áhugasamra. Graeme nokkur Sounesskemur sterklega tilgreina sem næsti þjálfari Skot- lands sam- kvæmt þar- lendum miðl- um. Souness hefur mikla reynslu af öskri og látum af hliðarlínunni sem þjálfari liða á borð við Rangers, Liverpool, Southampton, Benfica og Tor- ino en oftar en ekki hefur ráðn- ing hans og stjórnun verið harðlega gagnrýnd enda fáir með jafn stuttan þráð og Sou- ness. Hinn nígeríski Yakubahjá Everton sendirfyrr- um félagi sínu Middlesbrough kaldar kveðjur og segist hafa farið vegna allsherjar metnaðarleysis forráðamanna þess. Kemur lítt á óvart enda Middlesbrough ekki náð neinum hæðum í Eng- landi í áraraðir þrátt fyrir kistur af seðlum, þrautseiga aðdá- endur og á köflum fínan mann- skap. Ítalska dagblaðið Gazzettadello Sport upplýsir að for-ráðamenn AC Milan hafi fengið reisu- passa fyrir ára- mót þegar þeir mættu á skrif- stofu Laporta, forseta Barce- lona, með boð í Ronaldinho. Stemmir það við yfirlýsingar Laporta sjálfs en er í ósamræmi við allar aðrar fréttir sem herma að hann eigi fimm mín- útur eftir af ferli sínum í Kata- lóníu. Ekki er langt síðan LukasPodolski var næstastjarna þýska boltans og mikið með hæfileika hans látið. Nú er svo komið að hann veit vart hvern- ig gras lítur út enda eytt þessum vetri að mestu á bekk Bayern München á eftir Luca Toni og Miroslav Klose í goggunarröðinni. Fregnir um að Þjóðverjarnir ætli sér enn ein framherja- kaupin fljótlega hafa gert hann enn órólegri og segist fara verði það raunin. Hvað varð um gömlu tugguna að leggja aðeins harðar að sér? Dagar Dida milli stang-anna hjá AC Milan erusenn taldir. Hefur hann tekið Jens Lehmann til fyrirmyndar í síðustu leikj- um, meðal annars gegn erkifjendunum í Inter, og þykja það ekki góðar tvíbökur í Míl- anó. Ancelotti þjálfari hefur varað hann við að fleiri mistök í leikjum verði ekki liðin. Stórkostlegur árangur hjáDeportivo á Spáni. Liðiðhefur ekki unnið heima- leik í tæpa fimm mánuði. Allir helstu kylfingar heims taka árið snemma á Mercedes- meistaramótinu sem hófst í gær. Allir, það er að segja nema Tiger Woods, Phil Mic- kelson, Adam Scott og Padraig Harrington, og munar um minna fyrir minni spámenn. Vijay Singh hefur þar titil að verja og kann ágætlega við sig á Havaí þar sem mótið fer jafnan fram. Hefur karl aldrei lent neðar en í áttunda sæti. Tímabilið hafið Framkvæmdastjóri Íshokkí- sambands Íslands, Hall- mundur Hallgrímsson, ítrekar kröfu um að fleiri yfirbyggð skautasvell verði byggð hið fyrsta í áramótapistli sínum. Segir hann skort á slíku standa frekari eflingu starfs- ins fyrir þrifum og nóg sé komið af boltamannvirkjum. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem slík krafa kemur fram en lítið virðist gerast. Fleiri svell Lögfræðingar hlaupastjörn- unnar fyrrverandi, Marion Jones, sem nýlega var sakfelld fyrir lyfjanotkun og fyrir að ljúga eiðsvarin fyrir eig- inmann sinn fara nú fram á að dómarar krefjist ekki fangels- isvistar heldur gefi henni skil- orð í staðinn. Hafi hún þegar mátt sæta hræðilegum örlög- um og eigi ekki meira skilið. Hennar bíður annars sex mánaða fangelsi. Næg refsing Fleiri lið en Boston Celtics eru brennheit í NBA-boltanum þessi dægrin. Detroit vann sinn tíunda sigur í röð í gær- nótt og hafa þeir leikir unnist að meðaltali með tæplega sautján stiga mun hvorki meira né minna. Tíu í röð SKEYTIN INN Tvö stærstu nöfnin varðandi hugsanleg leikmannaskipti hjá enskum félagsliðum eru nöfn Di- mitar Berbatov og David Villa. Bæði Alex Ferguson og Avram Grant horfa löngunaraugum á Búlgarann sem er ósáttur hjá Tott- enham. Nýja stjórann þar, Juande Ramos, blóðlangar í Villa frá Val- encia en Rafa Benítez er ekki laus við áhuga heldur. Báðir gætu notað einn frábæran framherja í viðbót. Þá er Eiður Smári Guðjohnsen sem fyrr orðaður við ensk félög, Manchester City þar fremst í flokki. ➤ Aston Villa er að íhuga WesBrown og Jermain Defoe ➤ Breytingar verða hjá Derby,Fulham og Bolton til að bjarga leiktíðinni ➤ Abramovich dreymir enn umRonaldinho og Micah Rich- ards líka. ➤ Liverpool er óþekkt stærðenda enn ekki ljóst hve mikla peninga Benítez fær HELST NEFNDIR ÍTALÍA Ítalirnir eru enn að jafna sig eftir áramótin og að AC Milan frátöldu er ekki stórfrétta að vænta af þar- lendum félögum í janúar. Milan þarf hins vegar eitthvað að gera. Stórveldið er í tómu miðjumoði á alla kanta. Amauri hjá Palermo þykir einn vænsti bitinn á mark- aðnum en honum svipar reyndar mjög til Berbatov. Amauri hefur skorað sjö mörk í vetur. Þá er ekki loku fyrir skotið að mikil meiðsli sendi Inter á markaðinn. Annar leikmaður Palermo, Fabio Simpli- cio, er í uppáhaldi þar. Ólíklegt að önnur félög hreyfi sig mikið. ➤ Ancelotti þjálfari Milan þarfað gera vorhreingerningu. Ronaldinho er draumurinn en fleiri leikmenn eru nefndir. þar á meðal nýr markvörður og ánnar framherji. ➤ Forráðamenn Juventus eru íArgentínu að skoða minnst þrjá leikmenn o g haf a gert fyrirspurnir um Javier Mac- herano hjá Liverpool og Flamini hjá Arsenal HELST NEFNDIR Meira er rætt um brottfarir leik- manna á Spáni en komur nýrra að- ila. Mikill flótti er frá Valenciu þar sem Koeman þjálfari er að ger- breyta hópnum og hver leikmaður af öðrum fær lausn frá starfi. David Villa er fúll með það og gæti farið en Real Madrid hefur áhuga komi til þess. Eiður Smári og Ronald- inho eru báðir ítrekað orðaðir við önnur félög en það verður að telj- ast langsótt að það gerist eitthvað þar í janúar. Real Madrid heldur að sér höndum nema ef Sevilla gefur sig með Daniel Alves sem fjölmörg félög eru á höttunum eftir. ➤ Daniel Alves hjá Sevilla erundir smásjá Chelsea og Real Madrid en það var hann reyndar einnig í haust. ➤ Stórt spurningamerki er meðBarcelona en við þá eru jafn- an kenndir hinir og þessir leikmenn ➤ Valencia hefur þegar keyptBanega frá Argentínu og Ko- eman mun bæta tveimur við til viðbótar hið minnsta. HELST NEFNDIR SPÁNN ENGLAND

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.