24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 25

24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 25
24stundir FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 25 Janúar er tíminn til þess að fara að huga að heilsunni á nýjan leik eftir óhóf desembermánaðar. Margir setja sér ákveðin markmið fyrir árið og löngun í holla fæðu gerir vart við sig hjá flestum eftir allan jólamatinn. Á þessum tíma er um að gera að endurskoða mataræðið. Tími til að breyta til Notið tímann og breytið til. Prófið ykkur áfram í matargerð- inni og kynnið ykkur nýjar græn- metis- og ávaxategundir í hverri verslunarferð. Gluggið í mat- reiðslubækur og bjóðið fjölskyld- unni upp á nýja og spennandi hollusturétti. Dagana er gott að byrja á næringarríkum og orku- miklum morgunmat eins og hafragraut og nýkreistum ávaxta- söfum. Þá er um að gera að eiga til heimatilbúið snakk sem hægt er að narta í á milli mála. Það er bæði hægt að nota til þess að narta í og eins út á ab-mjólkina á morgnana. Bragðgott og hollt 2 bollar haframjöl 1/3 bolli möndlur 1/3 bolli gróft kókosmjöl 1/3 bolli pekanhnetur 1/3 bolli trönuberjasafi 1/3 bolli hrásykur 2 matskeiðar olía 1 teskeið kanill 1 bolli þurrkuð sæt trönuber Hitið ofninn að 160 gráðum. Blandið saman höfrum, kók- osmjöli, möndlum og pek- anhnetum í skál. Setjið trönu- berjasafa, hrásykur, olíu og kanil á pönnu og hitið að suðu og hrærið í þar til sykurinn er bráðinn. Hell- ið þessu yfir hafrablönduna og hrærið í. Dreifið á bökunarplötu og bakið þar til gullið í um 20 mínútur. Setjið þurrkuðu trönu- berin út í og setjið aftur inn í ofn þar til ljósbrúnt í um 12 mínútur. Heimalagað hafrasnakk Hollt og gott á milli mála Hollusta Heimalagað snakk sem hentar bæði út á morg- ungrautinn og er til- valið til þess að narta í á milli mála. Með aldrinum fer líkaminn að láta á sjá og lítið hægt að gera til þess að stöðva þá þróun. Hins vegar er hægt að draga úr áhrifum um- hverfisins á húðina og mæla sér- fræðingar með nokkrum einföld- um ráðum til þess. Gamla kremið burt Sérfræðingar mæla gegn því að sama andlitskremið sé notað lengur en í ár eftir að það er opnað og í sumum tilfellum skemur vegna þess að bakteríur af höndum berast í kremin. Það getur valdið bólum og öðrum óþægindum. Þeir sem eru viðkvæmari í húðinni ættu að gæta vel að því að nota góð krem. Hættið að reykja Reykingar auka hrukkumyndun og draga úr ferskleika húðarinnar. Reykingar gera það einnig að verk- um að litarháttur húðarinnar verð- ur sjúklegri. Látið bólurnar í friði Húðlæknar leggja blátt bann við því að fólk kreisti bólur þar sem verið sé að ýta meiri óhreinindum inn í húðina fremur en út úr henni. Það skapar aukna hættu á sýk- ingum og getur einnig valdið ljót- um örum. Meiri svefn, minna stress Streita hefur áhrif á varnir húð- arinnar en streita og þreyta gera það að verkum að húðin verður við- kvæmari fyrir bakteríusýkingu og hvers kyns húðsjúkdómar og hárlos geta einnig gert vart við sig búi ein- staklingar við langvarandi streitu. Notið sólarvörn Sólarvörnin ver húðina gegn geislum sólar og dregur úr hætt- unni á húðkrabbameini og minnk- ar hrukkumyndun. Einfalt er best Húðlæknar segja að ekki fari vel með húðina að nota of mikið af sterkum efnum á hana. Góður and- litsþvottur á kvöldin hreinsar húð- ina af óhreinindum sem hafa safn- ast saman yfir daginn og dregur úr líkum á bólumyndun. Má draga úr áhrifum umhverfisins á húðina Einföldu leiðirnar duga best 24 stundir/Golli Afslöppun Streita og þreyta hafa áhrif á varnir húðarinnar og því ættu allir að einbeita sér að því að fá næga afslöppun á árinu. GÖN GUG REIN INGA R INNL EGGJ ASM ÍÐI SÉRSMÍÐAÐIR SKÓR SKÓBREYTINGAR ALMENNAR SKÓVIÐGERÐIR STOÐTÆKNI Jón Gestur Ármannsson Sjúkraskósmiður Lækjargata 34A - Hafnarfjörður 533 1314 - 533 1516 jon@stodtaekni.is - www.stodtaekni.is Dreifing: Yggdrasill ehf. Sími: 544 4270

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.