24 stundir - 04.01.2008, Side 27

24 stundir - 04.01.2008, Side 27
24stundir FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 27 Eftir Hildu H. Cortez hilda@24stundir.is Nú þegar árið er liðið og allsnægtir jólanna að baki ætla margir að taka heilsuna í gegn og hafa líklega fjöl- mörg áramótaheit verið strengd þess eðlis. Megrunarkúrar eru hjá mörgum daglegt brauð, fjöldi fólks telur hvern einasta bita sem innbyrtur er og margir fylgjast vel með fjölda ka- loría í hverri máltíð. Erfitt að telja kaloríur Talning hitaeininga er ofmetin að mati fjölda bandarískra sérfræð- inga ef marka má það sem kemur fram í dagblaðinu The New York Times. Er bent á að ómögulegt sé að fylgjast nákvæmlega með þeim fjölda kaloría sem líkaminn brennir eftir ákveðinn tíma við vissar æfing- ar. Claude Bouchard, sérfræðingur hjá Biomedical Research Center í Los Angeles, segir að aldrei sé hægt að segja með vissu hversu miklu einstaklingur brenni. Aðeins sé hægt að tala um meðaltalsbruna við vissar gerðir æfinga. „Ef því er hald- ið fram að manneskja brenni 100 kaloríum á hlaupabretti í vissan tíma þá verður í raun að gera ráð fyrir að bruninn liggi á bilinu 70 til 130. Þannig að fólk getur brennt meiru eða minna en það reiknar með.“ Jafn gamlir einstaklingar sem eru jafn háir og þungir í samskonar formi geta brennt mismörgum hitaeiningum við nákvæmlega sömu æfingar. Bæði hafa erfðir þar sitthvað að segja og það hversu oft vissar æfingar hafa verið gerðar, en því oftar sem ákveðin hreyfing er stunduð því færri kaloríum brennir líkaminn eftir skipti. Notkun tækja skiptir máli William Haskell íþróttasálfræð- ingur bendir einnig á að fæstir taki með í reikninginn kaloríur sem lík- aminn brennir við eðlilega líkams- starfsemi, en þær á að draga frá þegar bruni hitaeininga við æfingar er reiknaður út. Haskell segir einnig að það skipti máli hvernig þrektæki eru notuð. „Útreikningar eru ekki nákvæmir ef fólk hangir til dæmis á handriðum hlaupabrettanna en slíkt dregur verulega úr kaloríu- bruna. Fyrirtæki sem framleiða þessi þrektæki nota mismunandi leiðir til þess að reikna þetta út og formúlur þeirra gefa eingöngu upp hversu miklu meðalmanneskja myndi brenna við þessar æfingar. Það þarf alltaf að hafa í huga.“ Hreyfing Einstaklingar brenna misjafnlega mörgum hitaeiningum við samskonar þrekæfingar. Fólk brennir mismiklu við sömu æfingar Kaloríutalning ekki nákvæm Erfitt er að reikna út ná- kvæmlega hversu mörg- um kaloríum líkaminn brennir við ákveðnar æf- ingar. Aðeins er hægt að taka mið af meðaltölum hverju sinni. 24stundir/Sverrir Rannsakendur við Háskólann í Michigan spurðu hátt í 2.000 bandaríska foreldra barna á aldr- inum 6 til 11 ára út í heilsufar barnanna. Þrátt fyrir vaxandi of- fituvandamál í Bandaríkjunum svöruðu flestir foreldranna því til að börn þeirra væru heilsuhraust og í kjörþyngd. Tölurnar sýna annað Rannsakendur tóku einnig sam- an líkamlegar upplýsingar um börnin og sýndu þær tölur annað en foreldrarnir höfðu haldið fram, og reyndist stór hluti barnanna vera of feitur. Meira en 40% foreldranna virtust ekki nægilega meðvituð um heilsufar barna sinna og 25% barnanna reyndust vera of feit þeg- ar allt kom til alls. Aðeins 13% for- eldra of feitu barnanna lýstu börn- unum sínum sem of þungum í viðtölum við rannsakendur. Rannsakendur sögðu einnig að foreldrar virtust ekki hafa nægilega miklar áhyggjur af því að börnin væru of feit. „Ef foreldrunum stendur á sama þá er ekki hægt að ætlast til þess að börnin taki upp bættari neysluvenjur.“ Foreldrar ómeðvitaðir um holdafar barnanna Ekki áhyggjur af offitu Dansrá› Íslands | Faglær›ir danskennarar Borgartún 6 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is VI‹ BJÓ‹UM UPP Í DANS Innritun og uppl‡singar í síma 553 6645 e›a á dansskoli.is Mambó Tjútt Freestyle Break Salsa Brú›arvals Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámskei› fyrir hópa N‡justu tískudansarnir Börn – Unglingar – Fullor›nir Innritun hafin! Sjóðheitt dans- og púlnámskeið í boði fyrir 16 ára og eldri, bæði stelpur og stráka. Í boði er spennandi og krefjandi 9 vikna námskeið fyrir þá sem elska að dansa og hafa áhuga á að koma sér í form! • Kennt er í lokuðum hópum • Tímar fyrir byrjendur og lengra komna • Ýmsir dansstílar kynntir s.s. jazz – musical – street – lyrical og modern. Námskeið hefst 7. janúar. Vertu með! Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is D an ss tu d io J S B Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n DAN SSTUDIO J SB

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.