24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@24stundir.is
„Þó að tölfræðin fyrir banaslys sé
auðvitað allt of há er hún það lág
að lítið þarf til svo að hún rokki um
tugi prósenta,“ segir Einar Magnús
Magnússon hjá Umferðarstofu.
„Eitt slys þar sem þrír látast getur
þýtt tugprósenta mun frá árinu áð-
ur. Það er því erfitt að segja hvort
þessar tölur bera vott um aukinn
árangur í umferðaröryggismálum
fyrr en tölur yfir alvarleg umferð-
arslys liggja fyrir.“
Árið 2007 létust 15 einstaklingar
í umferðinni. Meðaltal síðustu
fimm ára á undan er 24 einstak-
lingar á ári en árið 2006 lést 31.
Einar segir fækkunina gleðiefni en
að ekki sé endilega útlit fyrir að töl-
ur yfir alvarleg umferðarslys feli í
sér jafnjákvæða þróun. Þær tölur
munu liggja fyrir innan nokkurra
vikna.
Sé litið til þróunar síðustu ára
sést að bifhjólaslysum hefur fjölgað
verulega. „Það veldur okkur mikl-
um áhyggjum og er samfara því að
umferð bifhjóla hefur stóraukist. Á
fáum árum hefur fjöldi þeirra tvö-
faldast,“ segir Einar.
„Banaslysin á síðasta ári, og stór
hluti þeirra alvarlegu slysa þar sem
bifhjól koma fyrir, urðu vegna þess
að ökumaður sá ekki bifhjólið og
ók í veg fyrir það.
Hins vegar hefur slysum þar sem
ekið er á gangandi vegfarendur
fækkað stórlega. Það er ekki síst að
þakka því að hámarkshraði hefur
verið lækkaður í íbúðahverfum og
við skóla.
Ég held að við hljótum að sjá
núna, og á næstu misserum, árang-
ur af mjög markvissu átaki stjórn-
valda, lögreglu, Umferðarstofu,
Vegagerðarinnar og fleiri aðila sem
hafa undanfarið tekið á umferðar-
öryggismálum af meiri krafti en oft
áður,“ segir Einar og nefnir meðal
annars stóraukna löggæslu sem
hann telur að beri mikinn árangur.
Spurður um leiðir til að fækka
slysum enn meira segist Einar telja
tvennt mikilvægara en annað.
„Ábyrgðin er alltaf okkar öku-
manna. Við getum ekki kennt lé-
legum vegi um þegar slys verður
því ef vegurinn er slæmur verðum
við bara að haga akstri eftir því.
Það er því mikilvægt að ökumenn
líti sér nær og axli ábyrgð.
Á hinn bóginn er það mannlegt
að gera mistök. Það er í raun ekki
hægt að komst hjá því og við verð-
um að búa vegina okkar þannig að
þeir þyrmi okkur ef okkur verða á
mistök. Vegirnir séu til dæmis með
vegriðum og aðskilnaði umferðar
úr gagnstæðum áttum. Þannig að
ef ég geri mistök verði afleiðing-
arnar ekki eins alvarlegar.“
BANASLYS Í UMFERÐINNI
Banaslys 2007
Fjöldi látinna
2007
15
2006
31
2005
19
2004
23
2003
23
2002
29
2001
24
2000
32
Fimmtán einstaklingar létust í umferðinni árið 2007
Helmingsfækkun
banaslysa milli ára
Þrátt fyrir að færri hafi
látist í umferðarslysum á
síðasta ári en oft áður er
ekki víst að þær tölur
endurspegli heildar-
slysatölur fyrir árið.
➤ Banaslys á síðasta ári voru 15og kostuðu jafnmarga lífið.
➤ Þar af voru 7 útafakstrar, 7framanákeyrslur og í einu til-
felli var ekið á gangandi veg-
faranda.
BANASLYS Í UMFERÐINNI
Við sögðum frá hugmyndabíln-
um Mazda Furai fyrir skemmstu en
bíllinn verður til sýnis á bílasýning-
unni í Detroit sem hefst 13. janúar.
Þrátt fyrir að orðið Furai þýði
„hljóð vindsins“ er líklegt að vélin í
bílnum, 450 hestafla hjámiðjuvél,
muni minna meira á fellibyl en
hafgolu. Bílnum er ætlað að brúa
bilið á milli brautarbíla og götu-
hæfra ofursportbíla á notenda-
vænni hátt en áður hefur þekkst.
Við vissum ekki einu sinni að það
væri vandamál!
Fleiri myndir birtar af Mazda Furai
Vindgnauð til sýnis
Tímaritið Car and Driver útnefn-
ir á hverju ári tíu bíla sem bestu
sportbíla heims. Ekki er raðað á
listann eftir sætum en ritstjóri
tímaritsins segir um Mazda MX-5
að hann sé draumabíllinn. „Þessi
vélknúna ánægjusprauta er bíll
við allra hæfi vegna þess hve
verðið er gott. Mazda MX-5 fram-
kallar ánægjusvip á sérhvern ein-
stakling sem með honum
ferðast,“ er haft eftir honum á
brimborg.is
MX-5 drauma-
sportbíllinn
Bæði Ford og indverski bílafram-
leiðandinn Tata staðfestu í vik-
unni að fyrirtækin hefðu hafið
samningaviðræður um kaup Tata
á Land Rover og Jaguar. Áhersla
hefur verið lögð á að sem flestir
af hinum 15.300 bresku starfs-
mönnum deildanna haldi störf-
um sínum og búist er við að Ford
muni áfram sjá framleiðslunni
fyrir vara- og íhlutum.
Ford vill selja
Tata tvö merki
Ingvar Helgason býður nú kaup-
endum Opel-bifreiða svokallaða
Opel-vernd sem samkvæmt
heimasíðu fyrirtækisins er nýj-
ung á íslenskum bílamarkaði.
Innifalið í verði bílsins eru allar
þjónustuskoðanir og viðhald í
þrjú ár eða upp að 60.000 km.
Meðan á skoðun eða viðhaldi
stendur fá eigendur bíl til afnota
sér að kostnaðarlausu. Enn-
fremur hafa kaupendur 30 daga
skiptirétt á bílnum.
Opel-vernd nýj-
ung á Íslandi
Fyrsta myndin af nýjum Ford Fo-
cus RS hefur verið gerð opinber.
Þótt ekki sjáist mikið af smáat-
riðum á myndinni segir Ford að
bíllinn verði „einstakur á sína
vísu“ og „konungur veganna“.
Þar lætur Ford við sitja og gefur
ekki frekari upplýsingar í bili.
Nýr Focus RS
árið 2009
ÚR BÍLSKÚRNUM
Hefur þú nýlokið há-
skólanámi? Langar þig að
prófa að vinna í bílaiðn-
aðinum? Audi hefur tilkynnt
að framleiðandinn ætli sér að
ráða 800 nýliða á þessu ári,
200 fleiri en í fyrra. Þriðj-
ungur nýliðanna verða verk-
fræðingar sem koma til með
að vinna við nýjungar í véla-
framboði Audi. Hvernig er
þýskan þín?
Viltu vinna hjá Audi?
Audi ræður
800 manns
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@24stundir.is a
Eitt slys þar sem þrír látast getur þýtt tugprósenta mun
frá árinu áður. Það er því erfitt að segja hvort þessar töl-
ur bera vott um aukinn árangur í umferðaröryggismálum fyrr
en tölur yfir alvarleg umferðarslys liggja fyrir.
Láttu okkur sandblása og pólýhúða
felgurnar í hvaða lit sem er með Epoxy
grunn, Polyester lit og Acryl glæru.
Þær verða eins og nýjar!
Smiðjuvegi 1 • s. 544-5700 • www.polyhudun.is
Eru felgurnar orðnar ljótar?
SÍMAR:
AX:
Alhliða bi
réttingar
GRÆNUMÝRI 3 - SÍMI 587 7659 - WWW.BILAPARTAR.IS
BÍLAPARTAR
VIÐ HÖFUM ÞAÐ SEM ÞÚ LEITAR AÐ