24 stundir - 01.03.2008, Síða 43
24stundir LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 43
Leður sófasett
Hornsófasett
Sófasett með skemli
Tungusófar
Tungu hornsófar
Stakir sófar
Borðstofuborð og
stólar
Skenkar
Sófaborð
Eldhúsborð
Rúmgaflar
Leðursófasett áður 239,000
Nú 119,900
Hornsófar tau áður 198,000
Nú 103,000
Hornsófar leður áður 249,000
Nú 149,000
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
HÚ
SG
AG
NA
-
LA
GE
RS
AL
A HÚSGAGNA
LAGERSALA
VERÐDÆMI
Opnunartími
mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00 sun 13.00-17.00
ALLTAF EINHVAÐ NÝTT
,,Ég drekk það þegar ég er hamingjusöm og þegar ég er döpur. Stundum drekk ég það þegar ég er
ein. Ég lít á það sem skyldu mína í félagsskap. Ég fitla við það ef ég er ekki svöng og drekk það þegar
mig hungrar. Annars snerti ég aldrei á því - nema mig þyrsti.“ - Mme. Lilly Bollinger
Magnþrunginn ilmur af hunangi, ristuðu brauði, möndlum, heslihnetum og per-
um svo eitthvað sé nefnt. Ríkt í munni með einkennandi sítrus-, epla-, apríkósu- og
smjörtónum ásamt suðrænum ávöxtum og rjómakenndri áferð. Löng ending ör-
fínna loftbóla og fíngerðri sýru kitla bragðlaukana jafnvel fram að næstu ára-
mótum.
Gífurlega stórt vín með ennþá stærri persónuleika sem hægt er að para
með skelfiski, öllum mögulegum fiskiréttum hvort sem fiskurinn er magur
eða feitur, og hvítu kjöti. Að sjálfsögðu má ekki gleyma hinni sígildu pör-
un við kavíar eða jarðarber sem ætti að vera greypt í stein.
Flestir kannast við nafnið Bollinger, eða Bolly fyrir okkur strangtrúuðu.
Síðan húsið var stofnað í bænum árið 1829 af Jacques Bollinger og Paul
Rebaudin hefur það verið viðurkennt sem eitt fremsta kampavíns-
hús heims. Kraftur, tign, áreiðanleiki og forysta eru
helstu einkenni vörunnar líkt og hjá einum helsta
neytanda þess, Bond… James Bond.
Vín vikunnar
Elísabet Alba Valdi-
marsdóttir vínþjónn Bollinger Special Cuvée
Bollinger Special Cuvée
Elísabet Alba mælir með Ayala Rich Majeur Demi-Sec. Þrosk-
aðir ávextir og þurrkaðar apríkósur í nefi með léttum stein-
efnatónum. Fínlegur sætleiki í munni ásamt ferskjum og væg-
um sultukeim í bakgrunninum. Meðalfylling með mjúkri sýru
og löngum rúnuðum endi.
Volg súkkulaðikaka með bitum af
hvítu súkkulaði fyrir fjóra
Ofn 170°C
Hráefni:
90 g suðusúkkulaði
80 g smjör
2 egg
4 msk. sykur
3 msk. möndlumjöl (möndlur
sem eru malaðar í duft í mat-
vinnsluvél)
70 g saxað hvítt súkkulaði
Hráefni:
Bræðið súkkulaðið og smjörið sam-
an í potti við lágan hita og hrærið
stöðugt í á meðan. Kælið aðeins.
Léttþeytið egg og sykur og blandið
varlega saman við súkkulaðið.
Blandið möndlumassanum og
hvíta súkkulaðinu saman við. Hell-
ið í lítil kökumót (ég nota lítil sílí-
konmót) og bakið í u.þ.b. 25 mín-
útur eða þangað til kökurnar eru
lausar frá hliðunum. Berið fram
með þeyttum rjóma eða ískúlu.
EFTIRRÉTTUR
Volg og girnileg
súkkulaðikaka