24 stundir - 23.05.2008, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
Yfirvélstjóri
Óskum eftir að ráða yfirvélstjóra (1000 hö) á nýja línu -og
netaskipið okkar sem er 760 brúttótonn að stærð. Skipið
kemur til með að stunda línuveiðar með beitingavél og
netaveiðar. Skipið er útbúið með öflugri frystingu og er
áætlað að frysta aflann um borð hluta úr ári.
Nánari upplýsingar í síma 893 5458 og 892 5374
og á www.fiskkaup.is
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á
netfangið halldor@fiskkaup.is
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Magnús Halldórsson
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Skilaboð stjórnarflokkanna um breytt fyrirkomulag Íbúðalánasjóðs
hafa ekki verið skýr. Á meðan samfylkingarfélagsmálaráðherrann Jóhanna
Sigurðardóttir lofar að standa vörð um Íbúðalánasjóð, eins og hún orðar
það í frétt 24 stunda á þriðjudag, benda orð sjálfstæðisfjármálaráðherrans
Árna Mathiesen á félagsfundi Samtaka iðnaðarins á þriðjudag til annars.
„Það þarf ekki að orðlengja að ríkið hefur á undanförnum árum verið
að losa sig út úr hvers konar atvinnu- og fjármálastarfsemi á þeirri for-
sendu að einkaaðilar sem eiga beinna hagsmuna að gæta geta oftast gert
hlutina betur en hið opinbera. Íbúðalánasjóður er nánast eina fjármála-
stofnunin sem eftir situr í eigu ríkisins.“
Forysta Alþýðusambands Íslands túlkar orð Árna sem svo að hann vilji
hið opinbera út af íbúðalánamarkaði og er áhyggjufull.
Jóhanna heldur þó fast í það í frétt blaðsins að breyttur Íbúðalánasjóð-
ur sé einungis til að mæta kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), en hjá
stofnuninni liggur kæra vegna ríkisábyrgðar Íbúðalánasjóðs, sem er sögð
skekkja samkeppnisstöðuna á markaði.
„Sú grunnregla yrði þá í heiðri höfð að ríkið sé ekki í samkeppni við
einkaaðila á markaði,“ benti Árni á.
Málið ber með sér að stjórnarflokkarnir gangi ekki í takt.
Jóhanna heldur því fram að þrátt fyrir að félagsleg lán sjóðsins lúti öðr-
um lögmálum en markaðslánin sé síður en svo öruggt að vextirnir á al-
mennum lánum hækki.
„Fullyrðingum um það má svara með því að það
ræðst meira af þróun hagkerfisins og hvernig vextir á
verðtryggðum lánum almennt þróast, heldur en af
skipulagsbreytingum í kerfinu.“
Það dregur Hallur Magnússon, ráðgjafi og fyrrver-
andi sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði, í efa og segir: „Ef
þeir [vextirnir] hækkuðu ekki við það gengi gagnrýni
þeirra sem segja að ríkisábyrgð Íbúðalánasjóðs
skekki samkeppnisstöðuna ekki upp. Og þá þyrfti
ekki að afnema hana.“
Hvort ræður Jóhanna eða Árni? Það þarf fólk sem
sýslar með aleigu sína að vita.
Íbúðalánasjóður,
Árni og Jóhanna
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Nokkrar íslenskar stuðnings-
fjölskyldur höfðu gefið kost á sér
og tóku hlutverk sitt alvarlega.
Eftir nokkurra
mánaða dvöl
hafði einn flótta-
maður samband
við tengilið sinn
hjá Rauða kross-
inum og var allur
hinn vandræða-
legasti. Allt gekk
vel, skólaganga
barnanna, aðlögun fjölskyld-
unnar og öllum leið vel. En flótta-
maðurinn vildi þó vekja máls á
einu ,,vandamáli“. Vandamálið
reyndist helst vera það að hinar
íslensku stuðningsfjölskyldur
voru að kæfa hina landflótta fjöl-
skyldu í umhyggju og vinahótum
og þau báðust vægðar.
Oddný Sturludóttir
oddny.eyjan.is
BLOGGARINN
Gestrisni
Héraðsdómur Reykjavíkur sann-
aði í hundraðasta skipti, að hann
er skipaður óhæfum dómurum. Í
þetta sinn var
róni dæmdur fyr-
ir að stela mat úr
búðum fyrir sam-
tals 1000 krónur.
Hann var á skil-
orði og því
dæmdur í fimm
mánaða fangelsi.
Mánuð fyrir
hvern 200-kall. Dómarar skilja
ekki samanburð glæpa. Fara enn
eftir gildismati fyrri alda, þegar
snærisstuldur frá yfirstéttum var
verstur allra glæpa. Þeir láta of-
beldismenn og nauðgara sleppa
ódýrt, en ráðast af öllum þunga á
róna og ritstjóra. [...] Héraðs-
dómur árið 2008, ekki 1708.
Jónas Kristjánsson
jonas.is
Óhæfir dómarar
Ríkisstjórnin virðist enn eiga eft-
ir að ákveða sig um framtíð
Íbúðalánasjóðs ef marka má um-
mæli nokkurra
ráðherra að und-
anförnu. Því
eykst furðan yfir
ótímabærum um-
mælum forsætis-
ráðherra og utan-
ríkisráðherra um
„fyrirhugaðar“
breytingar á
Íbúðalánasjóði á dögunum, um-
mæli sem hafa skaðað og munu
enn skaða fasteignamarkaðinn og
mögulega efnahagslífið í heild!
Félagsmálaráðherra reyndi að
bjarga því sem bjargað varð með
því að koma fram með ítarlegri
skýringar á framtíðarsýn sinni …
Hallur Magnússon
hallurmagg.blog.is
Orð sem skaða
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@24stundir.is
Nokkur umræða hefur orðið í kjölfar um-
fjöllunar 24 stunda í gær um óánægju flug-
farþega með breytingar á flugi vegna yfirbókana í kjöl-
far sameiningar flugferða. Talsmanni neytenda ber
lögum samkvæmt að standa vörð um hagsmuni og
réttindi neytenda og kynna þeim réttarreglur (sjá
www.talsmadur.is) en í því skyni hefur embættið sett
upp Leiðakerfi neytenda (www.neytandi.is). Flug-
farþegar hafa ýmis réttindi samkvæmt alþjóðareglum,
lögum og reglugerðum, sbr. nánar á heimasíðu Flug-
málastjórnar sem fer með málaflokkinn (sjá
www.caa.is) s.s. vegna dauða eða slyss, glataðs eða
skemmds farangurs og ef flugi er aflýst eða seinkað.
Reglur um seinkun fela í sér að flugfarþegar eiga oft –
en þó ekki alltaf – rétt á bótum ef flugáætlun raskast;
hefur flugfélagið sönnunarbyrði fyrir því að það beri
ekki ábyrgð. T.d. er kveðið á um að ef flugrekandi hefur
ástæðu til að ætla að flugi seinki fram yfir áætlaðan
brottfarartíma um 3 klst. eða lengur fyrir algengar flug-
lengdir þá skuli bjóða farþegum máltíðir og hressingu,
hótelgistingu ef með þarf, flutning milli flugvalla og
samskiptaaðstöðu. Þegar töfin er 5 klst. eða lengri
verður flugrekandinn einnig að bjóðast til að end-
urgreiða farmiða – með ókeypis flugi til upphaflegs
brottfararstaðar farþega ef svo ber undir.
Þá skal áréttuð sú mikilvæga regla að flugfélagi ber að
upplýsa neytanda um rétt hans í nánar tilgreindum at-
riðum, t.d. um frest til að gera kröfu. Breytingar má þó
aðeins gera samkvæmt samningsskilmálum svo ekki er
opið veiðileyfi fyrir flugfélög að breyta áætlunum,
seinka flugi, sameina ferðir o.s.frv. Þar sem flugfélög
komast undan kröfum ef meiri háttar tilvik (fr. force
majeure) valda því að þau geta ekki
staðið við skuldbindingar sínar verð-
ur hins vegar því miður að líta svo á
að ekki sé heldur beinlínis bannað að
breyta áætlunum – þó að meginreglan
sé að sjálfsögðu, sem endranær, að
samninga við neytendur beri að virða.
Kjarni málsins er hins vegar sennilega
sá að eðlilegt er að flugfélög gefi neyt-
endum rúman fyrirvara ef þau þurfa
að breyta áætlunum.
Höfundur er talsmaður neytenda
Neytendur þurfa fyrirvara
ÁLIT
Gísli
Tryggvason
gt@tn.is