24 stundir - 23.05.2008, Page 23
24stundir FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 23
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Grunnnámskeið í köfun eða
Open Water Diver Course er
skilgreint sem réttindanámskeið til
köfunar á allt að 18 metra dýpi
með félaga. Námskeiðið er upp-
byggt þannig að í fyrri hluta taka
nemendur bóklegt próf í hlutum á
borð við virkni búnaðarins, eðl-
isfræðilögmál köfunar og áhrif
öndunar. Að prófi loknu tekur við
verkleg þjálfun í sundlaug og
loks í sjó en venjulega tekur námið
tvær til þrjár vikur.
Sérstæðar íslenskar aðstæður
„Það er um að gera fyrir fólk
sem langar að kafa erlendis að
koma til okkar fyrst og nýta tím-
ann hér á landi þar sem við kenn-
um fyrir alþjóðleg samtök. Íslensk-
ar aðstæður eru sérstæðar að því
leyti að hérlendis notum við þurr-
búning sem lætur þér finnast þú
dálítið stífari og innilokaðri en
þegar kafað er erlendis. Fyrir þá
sem hafa lært erlendis myndi ég
því mæla með aukanámskeiði í
köfun í íslenskum aðstæðum til að
læra að kafa í slíkum búningi,“
segir Matthías Bjarnason köf-
unarleiðbeinandi.
Þingvellir einna þekktastir
Matthías segir köfunina kennda
á hentugum kennslustöðum þar
sem leiðbeinendur þekkja vel til.
Hann segir mikilvægt að fara á
námskeið til að læra hlutina í réttri
röð og blessunarlega sé nær alveg
dottið upp fyrir að fólk sé að fikta
sjálft við köfun sem hafi dregið úr
óhöppum. Kafað er á fjölda staða
hérlendis en Silfurgjáin á Þingvöll-
um er einn þekktasti köf-
unarstaður heims og segir Matt-
hías tíðkast að skrifa í það minnsta
eina grein á ári um gjána í virtum
köfunarblöðum erlendis.
Margt sem hrífur
„Það er ótal margt sem hrífur
við köfunina, til að mynda sú stað-
reynd að það er ótrúlega fjölbreytt
lífríki neðansjávar og mun fjöl-
breyttara dýralíf neðansjávar en of-
ansjávar á Íslandi. Eftir 15 ár finnst
manni ótrúlegt að maður eigi eftir
að upplifa enn stórfenglegri daga
en þá sem maður hefur þegar upp-
lifað en það gerist þó aftur og aftur.
Ég hef kafað við Garðsbryggju með
höfrungum, með selum sem synda
þétt upp við mann og inni í loðnu-
torfum. Fyrir mér er þetta útivist,
ákveðið jaðarsport og gríðarlega
skemmtileg útivist auk þess sem
gaman er að fylgjast með þróun
köfunartækja,“ segir Matthías.
Hann hefur lokið öllum sínum
námskeiðum í köfun erlendis og
einnig starfað við kennslu utan
landsteinanna. Hann segist yfirleitt
kafa þegar hann fari í frí á sólar-
strönd en enginn staður sé þó jafn
eftirminnilegur og Ísland. Þó hafi
hann farið í margar eftirminnileg-
ar ferðir til útlanda og sú eft-
irmannilegasta hafi verið ferð sem
hann fór í til Noregs og synti þar
með háhyrningum sem áður hafði
verið reynt að nálgast við Íslands-
strendur með misjöfnum árangri. Í
Noregi kafaði hópurinn hins vegar
í firði sem heitir Tysfjord, en þar
safnast háhyrningarnir saman þar
sem síldarstofninn syndir inn í
fjörðinn á haustin. Þarna fékkst því
mikil nálægð við háhyrningana
sem Matthías segir að hafi verið
sérstök upplifun.
Krakkar fá að prófa
Fólk á öllum aldri kemur á köf-
unarnámskeiðin en þau eru kennd
eftir kerfi sem gerir leiðbeinendum
kleift að leyfa krökkum frá 8 ára
aldri að prófa köfun í sundlaug.
Matthías segir árangur í köfun að-
allega snúast um andlegt og lík-
amlegt atgervi og þannig geti allir
kafað. Sem skemmtilegt dæmi um
slíkt segir hann frá ferð á Þingvelli
sem köfunarleiðbeinendur skólans
voru beðnir um að fara í með tvo
menn á vegum Össurar. Þegar
hópurinn var að klæða sig í bún-
ingana tekur leiðbeinandi eftir því
að á annan manninn vantar báða
fæturna en þarna var þá kominn
hlaupagarpurinn Oscar Pistorius.
Segir Matthías að leiðbeinandinn
sem kafaði með Oscari hafi lært
mikið um atgervi á þessari ferð og
ekki dottið í hug að bjóða Oscari
aðstoð með búnaðinn eftir köf-
unina eins og algengt er þegar
ganga þarf með hann upp gilið, svo
einbeittur og ákveðinn hafi hann
verið í að ljúka verkefninu. Allir
sem vilja kafa ættu því að vera full-
færir um slíkt.
Nokkur grundvallaratriði
„Í grundvallaratriðum þarf að
kenna fólki að bregðast rétt við og
búa sig rétt þannig að ekkert komi
upp á. Síðan þarftu að kunna atriði
eins og að tæma grímu, setja upp í
þig öndunarbúnað neðansjávar og
skipta yfir í öndunarbúnað fé-
lagans,“ segir Matthías. Allar frek-
ari upplýsingar má sjá á www.kof-
unarskolinn.is, en sérstök tilboð á
köfunarvörum eru nú í boði hjá
skólanum í tilefni af 15 ára starfs-
afmæli hans.
Köfun er ævintýri Allir
geta kafað ef þeir vilja.
Hvergi jafn spennandi að kafa og á Íslandi
Silfurgjáin þekkt um víðan heim
Köfunarnámskeið verða
vinsælli með hverju
árinu. Hjá Köfunarskól-
inn.is er hægt að sækja
allt frá grunnnámskeið-
um til björgunar-
kafaranámskeiða.
➤ Köfunarnámskeiðinu er skiptí bóklegan og verklegan
hluta í sundlaug og sjó.
➤ Meðal grundvallaratriða er aðkunna að bregðast rétt við,
tæma grímu og setja upp í sig
öndunarbúnað neðansjávar.
KÖFUN
Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum
nota Jahti Jakt fatnað með góðum árangri.
Icefin Noatuni 17 • S. 5343177 • úrvalið á www.icefin.is
Premium veiði og útivistarfatnaður
frá finnska framleiðandanum Jahti Jakt.
Hentar vel við Íslenskar aðstæður
-Premium Jahti Jakt Innifalið:
Vatnsheldur öndunarjakki og buxur,
ullarpeysa, microflís nærföt,
flísmillilag, flónelskyrta, derhúfa,
axlabönd, öryggisvesti, flugnanet,
sætisáklæði á bíslstjórasætið.
Allurpakkinn
kr35900
Velkomin að skoða www.weleda.is
Losar bjúg og léttir á liðamótum
Vatnslosandi Birkisafi
Ráðlagður dagskammtur eru 20-30 ml. Gott er að taka þriggja vikna kúr á
safanum. Blanda má safann með eplasafa eða vatni. Má einnig taka óblandað.
Birkisafinn frá Weleda hefur verið vinsæll undanfarin misseri enda er hann
einkar góður fyrir heilsuna. Birkisafinn hefur sérstaklega verið vinsæll hjá
þeim sem vilja léttast enda örvar hann vatnslosun og styður við náttúrulega
úthreinsun líkamans, en eins og margir vita er úthreinsun líkamans mikilvæg
fyrir líkamlega vellíðan og vert að hafa í huga núna í sumar. Birkisafinn
losar bjúg. Birkisafinn er unnin úr þurrkuðum birkiblöðum. Hægt er að fá
birkisafann með og án hunangs. Þrátt fyrir að safinn sé kenndur við birki
bragðast hann síður en svo eins og þessi ágæta trjátegund. Þetta er
bragðgóður drykkur sem gott er að blanda með vatni og eiga
tilbúinn í kæliskáp.
Útsölustaðir:
Heilsuhúsin, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi,
Heilsuhornið Akureyri, Blómaval, Lyfja og Apótekið,
Lyf og heilsa og Apótekarinn , Sólarsport Ólafsvík, Femin.is,
Náttúrulækningabúðin, Lyfjaver, Nóatún, Hagkaupum
Kringlunni og Holtagörðum, Lyfjaval, Barnaverslanir og
sjálfstætt starfandi apótek um allt land.