24 stundir - 23.05.2008, Side 30

24 stundir - 23.05.2008, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is „Yfir hásumarið hugsa ég að næt- urnar okkar fyrir austan séu fleiri en í bænum. Bústaðurinn er fullbúið heilsárshús með öllum þægindum en það sem okkur finnst mesti ávinningurinn við húsið er sú hvíld og tímaleysi sem þar ríkir. Maður slakar á um leið og maður er kominn upp á Sandskeið á leiðinni austur,“ segir Sigþrúður sem starfar sem fram- kvæmdastjóri hjá Landsvirkjun. Rækta skjólbelti Þau hjónin stunda trjárækt fyr- ir austan sem Sigþrúður segir af- ar gefandi þar sem uppsveitir Suðurlands séu jú með gróð- ursælustu sveitum landsins. Þau hafa ræktað birki, blágreni og víðiplöntur en einnig sjaldgæfari plöntur eins og sýrenu og körfuv- íði. Segir Sigþrúður að þau séu rétt lögð af stað í ræktinni og sé margra áratuga starf framundan. „Við lögðum áherslu á að byrja á því að mynda skjól þar sem að það getur orðið dálítið kalt og hvasst hjá okkur í norðan- og norðaustanátt og erum nú farin að velta fyrir okkur restinni af lóðinni,“ segir Sigþrúður. Gestagangur allt árið „Við lítum á húsið sem okkar annað heimili og vinnum stund- um í sveitinni sem er mjög hent- ugt þegar maður þarf góðan vinnufrið. Það er gestagangur hjá okkur allan ársins hring og gaman að taka á móti fjölskyldu og vinum enda er ég ekki frá því að maður njóti samvistanna bet- ur í sveitinni betur þar sem af- slappandi aðstæður skapast. Síð- an njótum við þess að lesa, elda góðan mat og hlusta á tónlist,“ segir Sigþrúður. 24stundir/Einar Falur Í Biskupstungum með Heklu í baksýn Á fallegum sumardegi. Fleiri gistnætur í sumarhúsinu en heima við yfir sumarið Njóta hvíldarinnar og tímaleysisins ➤ Stutt er í alla þjónustu oggolfvelli á Suðurlandi frá bú- staðnum. ➤ Samskipti við heimamenn ísveitinni segir Sigþrúður skemmtileg og góð. LÍFIÐ Í SVEITINNI Sigþrúður Guðmunds- dóttir og eiginmaður hennar Birgir Guðjónsson létu byggja sér sum- arbústað í Bláskógabyggð fyrir rúmum sjö árum. Þau nýta sér nálægðina við höfuðborgina og sækja gjarnan vinnu í bæ- inn úr sveitinni. Hilton Golf Academy er skipu- lagt fyrir þá sem vilja læra golf í góðu veðri og hafa það virkilega notalegt á meðan. Skólinn er stað- settur á fjórum stöðum í Phoenix & Tucson, Arizona, Myrtle Beach, South Carolina og Santa Fe, Nýju Mexíkó. Námskeiðin eru seld í pakka með mat og gistingu innifal- ið. Á Myrtle Beach stendur nám- skeiðið til að mynda í eina viku og er meðal annars innifalið í því gist- ing á svítu á Hilton hótelinu, morgunverður, tveir kvöldverðir, par af golfskóm og geymsla og þrif á golfsettinu. Afslappandi vika Námskeiðið sjálft stendur í þrjá daga en að því loknu gefst fólki færi á að spila meira golf eða skoða sig um á svæðinu. Þannig geta þeir sem vilja spilað helling af golfi en hinir geta auk þess sólað sig eða slappað af. Þægileg lausn fyrir mis- munandi mikla golfaðdáendur. maria@24stundir.is Golf, strönd og lúxusfrí Gaman er að hoppa á trampól- íni í góðu veðri en fara verður varlega þar sem margir krakkar hafa slasað sig á slíku. Algengustu slysin verða á handlegg, olnboga, öxl, hné, ökkla og tám en Sjóvá Forvarnahúsið hefur í samvinnu við Fimleikasamband Íslands tek- ið saman góð ráð um það hvern- ig megi spyrna við slíkum slys- um. Aðeins eitt barn í einu Í fyrsta lagi er mikilvægt að einungis eitt barn í einu hoppi á trampólíninu. Eins að læra að stoppa með því að fjaðra rólega 3 sinnum og beygja síðan hnén eða hoppa kröftuglega og beygja hnén. Hoppa skal í miðjunni, ekki hoppa af og alltaf hafa hend- ur fyrir framan sig þegar hoppað er. Þá er mikilvægt að fullorðnir meti færni barnanna og fylgist með þeim þegar þau leika sér á trampólíninu. Frekari ráð má fá á www.forvarnarhusid.is maria@24stundir.is Fara verður varlega á trampólíni Mikilvægt að fylgjast með Nú er tíminn til að dusta rykið af gítarnum og gítargripunum. Þeir sem geta gripið í gítar og spilað nokkur lög við varðeldinn eru allt- af vinsælir partígestir. Síðan er náttúrlega enn betra ef viðkom- andi getur sungið líka og þá er góð hugmynd að taka með sér nokkra góða texta eða söngbók og fá alla til að syngja með. Meðal sívinsælla laga má mæla með Þytur í laufi og og Fyrir átta árum. Gítarspil við varðeldinn Alvöru garðyrkjufólk er jafnan úti í beði með hanska á sér og bograr yfir því með skóflur eða klórur. Síðan hringir síminn og þá þarf að henda öllu frá sér í grasið og hlaupa inn. Þessi sniðuga taska leysir algjörlega það vandamál en hana setur fólk utan um sig mitt og hleður síðan þeim tólum og tækj- um sem það þarfnast í vasana. Það mætti jafnvel setja farsímann í einn vasann. Þægilegt fyrir garðyrkjufólk Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 www.rumgott.is Gel/ethanOl aRineldStæði í SumaRbúStaðinn eða heimilið. ReyKlauS OG lyKtaRlauS byltinG í SVefnlauSnum tilbOðSdaGaR - VaxtalauS lán í 6 mánuði 55 ára Húsgagnavinnustofa rH Frí legugreining og fagleg ráðgjöf um val á heilsudýnum. 20-50% afSláttuR

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.