24 stundir


24 stundir - 23.05.2008, Qupperneq 34

24 stundir - 23.05.2008, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir Kjartan Þorbjörnsson veidi@24stundir.is Guðmundur Reynisson býr í Grundarfirði og segist oft veiða í Hraunsfirðinum enda sé mjög stutt að skjótast þegar veður er gott. „Þetta er fyrsta skiptið í vor sem ég kem hingað,“ segir Guðmundur. „Ég hef ekkert frétt af veiðibrögð- um hingað til en mér hefur gengið ágætlega,“ segir hann og sýnir fjór- ar fallegar sjóbleikjur í plastpoka. „Það er flott bleikja í þessu vatni. Yfirleitt veiði ég í sandfjörunni við garðinn hinum megin, en er að prófa í fyrsta skipti hérna við hraunkantinn. Bleikjan virðist vera smærri hinum megin en oft mikið af henni. Hér er hraunkantur úti í vatninu og dýpkar hratt fyrir fram- an hann. Þar fyrir framan er greini- lega sléttur botn sem hægt er að draga fluguna eftir.“ Guðmundur segist bara veiða hér á flugu. Hann er með tvö opin flugubox sem í eru púpur og marg- litar straumflugur. „Ég fékk þessar allar á Peacock, byrja alltaf á henni, en var að skipta og setti Prinsinn undir. Þessar tvær gefa mér alltaf best hér.“ Hann er með flotlínu með sökk- enda og segir þann búnað henta vel. Aðspurður hvort aðkoma Veiðikortsins að Hraunsfirði hafi breytt einhverju fyrir svæðið segist hann skreppa oftar en áður, nú þegar ekki þurfi að kaupa hvern dag fyrir sig. „Það hefur líka orðið gríðarleg fjölgun hérna á veiðimönnum þeg- ar kemur fram á sumarið. Það er tjaldvagna- og fellihýsaröð eftir allri hlíðinni hérna langt inn úr,“ segir Guðmundur og bendir yfir vatnið. „Sá bakki hefur alltaf verið vinsælli enda aðkoman auðveld. Annars er aðalveiðin þarna alveg inni í botni þegar fer að líða á sum- arið,“ segir Guðmundur að lokum og heldur áfram veiðum. „Ég vona að það lygni með kvöldinu. Vindurinn er búinn að snúa sér síðan ég kom. Ef hann dettur niður aðeins þá fer fiskurinn strax að sýna sig enda nóg af hon- um.“ Vor í Hraunfirði Sjóbleikja á Snæfellsnesi Vorið hefur bankað á dyrnar í Hraunfirðinum. Toppfluga og rykmý sett- ust á bílrúðuna um leið og blaðamaður lagði við hraunkantinn. Feluklætt rjúpnapar tók á móti honum er hann stikaði yf- ir úfið hraunið til að eiga smá spjall við eina veiði- manninn sem sjá mátti á svæðinu. Fallegt umhverfi Guð- mundur Reynisson lætur fara vel um sig. Vífilsstaðavatn er eitt þeirra vatna sem fyrst er opnað fyrir veiðimönnum á vorin. Það er bein- línis í kastfæri fyrir 80% þjóðarinn- ar þar sem það kúrir á mörkum Garðabæjar, Kópavogs og Reykja- víkur, flestir geta rennt upp eftir á 10-15 mínútum og verið komnir í bullandi silungsveiði á inniskóm. Gamli Hljómatrymbillinn og söngvarinn Engilbert Jensen þekkir vatnið vel og gaf okkur á flugur.is mikilvægar upplýsingar um vatnið sem mig langar til að dreifa til les- enda 24 stunda enda veiði hafin. ,,Ég byrja því á að lesta bílinn og skoða flugurnar sem setjast á fram- rúðuna meðan ég er að taka mig til. Og það bregst yfirleitt ekki, að sil- ungurinn er einmitt að taka þessar sömu flugur!“ segir Engilbert við- mælendum sínum. Vatnið hlýnar fyrst þar sem það er grynnst. Þar tekur lífið fyrst við sér á vorin og þar er mesta veiðivonin. Þess vegna kjósa margir suðurenda vatnsins, þar sem mest er um grynningar og vesturbakkinn hefur einnig gefið ágæta veiði. Óþarft er að vaða langt, fiskurinn er oft alveg í harða landi. Þess vegna hentar vatnið vel til æfinga fyrir börn og fullorðna. Flugurnar í Vífó Í apríl og maí segist Engilbert mest veiða á margvísleg afbrigði mýpúpunnar, ,,enda eru stórir flákar í vatninu þaktir mýpúpu- hylkjum, þannig að veiðimaðurinn þarf ekki að veljast í neinum vafa um hvað fiskurinn er að éta. Mýið kviknar fljótt á grynningunum og þótt lofthitinn sé kannski ekki mikill má oft sjá flugu. Ef það er ís- brák á vatninu hefur mér oft reynst vel að kasta upp á ísinn og oft tekur hann þegar ég dreg fluguna fram af ísnum. Ástæðan fyrir því er sú að oft frjósa mýpúpurnar þegar vatnið leggur og bleikjan tekur þær síðan þegar þær losna úr klóm íssins þeg- ar hann bráðnar.“ Í byrjun júní færir Engilbert sig yfir í Peacock, Pheashant tail, Héraeyra og Caddis-flugur. „Ég mæli með því að menn séu dugleg- ir við að skreyta Peacock-púpuna og reyna til dæmis gulan lit í stað þess rauða. Mér hefur sýnst guli lit- urinn vera gjöfulli, ef eitthvað er,“ segir Engilbert sem bætir því við að Vífilsstaðavatn sé kjörið fyrir þá sem vilja æfa sig með þurrflugu og þá er farsælast að byrja þegar örlítil gára er á vatninu. Þá er þess ógetið sem er ekki síð- ur mikilvægt að fiskurinn í Vífils- staðavatni er pýðilegur matfiskur, ekki síður en í grannvatninu Elliða- vatni. Bleikjan er reyndar smá og leitun mun á stórum urriða, en hvað gerir það til? Létt flugustöng, inniskór og tvær þrjár mýpúpur er allt sem þarf til að ná sér í góða villibráð á borðið. Í miðri ,,stór- borg“. Hvernig getur lífið verið betra? Á flugur.is er sérstök grein um Vífilsstaðavatn með fleiri ráðlegg- ingum, kort og myndir af flugum við hæfi. Veiddu betur – í samstarfi við flugur.is Vífilsstaðavatn Stefán Jón Hafstein skrifar um veiði VEIDDU BETUR Áhugamaður um veiði Engilbert Jensen er dellukarl. Nú er rétti tíminn til þess að undirbúa næsta veiðitímabil. Veiðikortið veitir aðgang að rúmlega 30 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins 5000 kr. Frí heimsending þegar verslað er beint á www.veidikortid.is Tryggðu þér Veiðikortið í tíma! Á að veiða í sumar? Heimsferðir bjóða ótrúlegt sértilboð á allra síðustu sætun- um til Fuerteventura í maí og júní. Þessi skemmtilega eyja í Kanaríeyjaklasanum hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Njóttu lífsins á þessum vinsæla sumar- leyfisstað í fríinu. Þú bókar flugsæti og 4 dögum fyrir brott- för færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Fuerteventura 27. maí – 1 vika 3. júní – 2 vikur 10. júní – 1 eða 2 vikur 17. júní – 2 vikur Frá aðeins 29.990 Flug og gisting- allra síðustu sætin! Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 saman í íbúð í viku. Aukavika kr. 10.000. Verð kr. 29.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð íviku. Aukavika kr. 10.000. VORIÐVEIÐI veidi@24stundir.is a Það er flott bleikja í þessu vatni. Yfirleitt veiði ég í sandfjörunni við garðinn hin- um megin.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.