24 stundir - 23.05.2008, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Ekki er hundrað prósent útilokað að
Logi Geirsson geti tekið einhvern þátt í
leikjum landsliðsins gegn Makedóníu þrátt
fyrir að hafa rifið magavöðva fyrir stuttu.
Hinn spænski þjálfariLiverpool, Rafa Bení-tez,
segir lykilinn
að farsælli leik-
tíð vera þann
að sigra Man-
chester United
minnst einu
sinni á leiktíð.
Þeir leikir séu í raun sex stiga
leikir en Liverpool endaði ellefu
stigum á eftir meisturunum nú
og þarf því aðeins meira til.
Benítez veit vel að fyllist ekki
einhverjir skápar félagsins af
silfurlituðum dollum að ári er
framtíð hans hjá liðinu orðin
afar veik.
Forráðamenn Real Madrideru meðal þeirra hundr-aða þús-
unda sem naga
nú neglur með-
an beðið er eft-
ir yfirlýsingu
Cristiano Ro-
naldo varðandi
framtíð sína.
Lofaði hann ákvörðun eigi síð-
ar en um þessa helgi og þykir sá
tími sem hann hefur tekið sér
benda sterklega til að hann fari
frá United hvað sem menn þar
á bæ segja. Meirihluti þátttak-
enda í nokkrum netkönnunum
hjá stórum erlendum fjöl-
miðlum eru þó sannfærðir um
að hann fari hvergi. Aðeins
Barcelona eða Real Madrid
koma til greina verði brottför
raunin. Fari hann er þó víst að
hann sprengir alla skala hvað
varðar dýrasta knattspyrnu-
mann veraldar.
Kampakátir tóku leikmenn Manchester United við
Meistaradeildarbikarnum í vikunni og flóðu gleðitárin
og kampvínið í svipuðu magni hjá þeim og stuðnings-
mönnum þeirra. Ekki síður glaðir voru eigendur og
stjórnarmenn liðsins sem hefur halað inn tæpa tólf
milljarða króna í verðlaunafé á tímabilinu.
Sú tala á eingöngu við um fé vegna sigurs í Meist-
aradeildinni og í ensku úrvalsdeildinni auk tekna fyrir
sjónvarpsrétt sem greiddar eru út í byrjun ágúst en
hækka hlutfallslega eftir því sem fleiri leikir eru valdir
til beinna útsendinga. Þannig gefur sigurinn í deild-
inni auk tekna fyrir flesta leiki í sjónvarpi 7,1 milljarð
króna og rúmir fjórir milljarðar fást fyrir sigur í Meist-
aradeildinni. Á þá enn eftir að reikna aðra tekjustofna
félagsins sem gefa mun meira í aðra hönd eins og aug-
lýsingasamningar, aðgangseyrir og tekjur af sölu varn-
ings.
Til marks um mikilvægi þess fyrir félagslið að halda
sér í efstu deild má taka afar öfgafull dæmi af Fulham
og Derby. Derby endaði í neðsta sætinu og féll sem
kunnugt er og áhugi á leikjum liðsins var takmark-
aður. Heildartekjur liðsins þessa leiktíðina námu að-
eins 909 milljónum króna að meðtöldum greiðslum
fyrir sjónvarpsrétt. Tekjur Fulham sem bjargaði sér frá
fallinu á lokametrunum nema hins vegar 4,5 millj-
örðum króna. Það er fjárhagslegur munur þess að
enda í tuttugasta sæti eða slefa í það sautjánda.
Allmargir spekingar í Bretlandi hafa og bent á og
gagnrýnt að mikil fylgni sé milli tekna félags og þeirra
sæta sem þau á endanum lenda í. Þannig séu tíu rík-
ustu félagslið Englands í tíu efstu sætum nýliðinnar
leiktíðar þó röðin sé ekki alveg kórrétt. Aston Villa sem
endaði í sjötta sæti er til dæmis aðeins ríkara félag en
Everton sem endaði í því fimmta. Langur vegur sé þó
frá tekjum þeirra fjögurra efstu og næstu liða og engin
tilviljun að ellefu stiga munur var á Liverpool í fjórða
sætinu og Everton í því fimmta. Átta stig skildu að
Arsenal og Tottenham í þessum sömu sætum fyrir ári.
Tímabilið verið afar gjöfult Manchester United
Tólf milljarðar í verðlaunafé
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Ég vil engu spá á þessu stigi en veit
að strákarnir vita hvað þarf að gera
og við munum gefa allt sem við
eigum til að ná hagstæðum úrslit-
um,“ segir Guðmundur Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari karla í
handknattleik. Landsliðið hélt af
landi brott í gær áleiðis til Spánar
þar sem liðið leikur tvo æfingaleiki
við Spán um helgina. Frammistaða
leikmanna þar ræður því hver end-
anlegur hópur verður fyrir þrjá
leiki í forkeppni Ólympíuleikanna
og tvo umspilsleiki að auki um sæti
á heimsmeistaramótinu á næsta
ári.
Enn laus sæti í landsliðinu
Guðmundur tilkynnti í vikunni
hópinn sem fór til Spánar en hann
segir þann hóp þó ekki endanleg-
an. „Ég mun taka stöðuna í leikj-
unum tveimur um helgina og það
eru þar tvær stöður sem ég gæti
hugsað mér að fá aðra í ef einhverj-
ir skila ekki sínu eins og til er ætl-
ast. Hópurinn er því ekki endan-
legur ennþá.“
Nýir hlutir
Guðmundur ætlar sér að prófa
nýja hluti og leikskipulag gegn
Spánverjunum. „Ég verð óhræddur
við það enda eru úrslitin í þeim
leikjum ekkert aðalatriði. Fyrst og
fremst ætla ég að fínpússa liðið en
við erum líka að æfa nýja vörn og
nokkur ný leikkerfi sem liðið hefur
ekki notað áður og ég mun nota
tækifærið úti á Spáni til að fara vel
gegnum þau.“
Logi ekki kulnaður
Ekki er loku fyrir það skotið að
Logi Geirsson taki þátt með lands-
liðinu í leiknum gegn Makedóníu.
Reif hann magavöðva og þarf að
hvílast í fjórar vikur en rúmar þrjár
vikur eru enn í síðasta leikinn og
landsliðsmenn vona það besta
enda missir að Loga gegn þeim
stórliðum sem liðið mætir næstu
vikur.
Stórir leikir framundan Guðmundur
ætlar að reyna nýjar áherslur og taktík
gegn Spánverjum um helgina.
Gefum allt
sem við eigum
Næstu vikur verða strangar fyrir karlalandsliðið í handbolta
Árangurinn á þeim tíma mun ráða hvort Ísland keppir á Ólymp-
íuleikunum í sumar eða á heimsmeistaramótinu á næsta ári
➤ Tveir æfingaleikir þessa helgina
24. maí Spánn - Ísland
25. maí Spánn - Ísland
➤ Forkeppni ÓL30. maí Ísland - Argentína
31. maí Ísland - Pólland
1. júní Ísland - Svíþjóð
➤ Undankeppni HM 20098. júní Makedónía - Ísland
15. júní Ísland - Makedónía
LEIKIR ÍSLANDS
Gunnlaugur Júlíusson lang-
hlaupari tekur öðru sinni þátt
í hinu árlega danska últra-
maraþoni um helgina en mót-
ið er sérstakt að því leyti að
hlaupið er stanslítið í 24
klukkustundir og síðan mælt,
en fyrir ári varð Gunnlaugur
þriðji í hlaupinu. „Ég hef nú
ekki sett mér nein sérstök
markmið nú heldur ætla ég að
reyna mitt besta og ég verð
sáttur við útkomuna hver sem
hún verður ef það tekst. Þetta
er Danmerkurmót í greininni
og margir af helstu köpp-
unum í greininni taka þar
þátt. Ég náði þriðja sæti síðast
og hljóp 197 kílómetra og við
sjáum til hvað gerist nú.“
24 stundir
Stærsta og öflugasta fim-
leikadeild landsins, fim-
leikadeild Ármanns, heldur
sínu árlegu vorsýningu á
morgun í Laugardalshöllinni
en þar sýna alls 500 krakkar
sem stundað hafa fimleika í
vetur listir sínar og dansa.
Fimleikadeildin fær á sama
tíma afhenta fyrirmynd-
arfélagsviðurkenningu frá
Íþróttasambandi Íslands. Sýn-
ingin hefst kl. 18 og stendur í
tæpa tvo tíma.
Vorsýning
SKEYTIN INN
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Súpersól til
Búlgaríu
9. júní
frá kr. 49.995
Kr. 49.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn í hótelherbergi / íbúð í viku. Súpersól
tilboð, 9. júní. Aukavika kr. 15.000.
Kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. 2 í hótelherbergi /
íbúð í viku. Súpersól tilboð, 9. júní.
Aukavika kr. 15.000.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Aðeins örfá sæti í boði!
Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Terra
Nova býður nú síðustu sætin í júní á ótrúlegum kjörum. Gríptu tækifærið og
skelltu þér til þessa vinsæla sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra
strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika, fjölbreytta veitinga-
staði og fjörugt næturlíf. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú gistir.