24 stundir - 23.05.2008, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
„Mig langar að mæla með Karin
Herzog Siluette-kreminu, ef ykk-
ur langar að laga slit eða appel-
sínuhúð. Það gerir kraftaverk,
sérstaklega eftir barnsburð ef
borið er á brjóst, maga, rass eða
læri 1-2 á dag. Húðin strekkist og
þéttist, slitin sléttast og hverfa
nánast á nokkrum dögum!“
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
asdisran.blog.is
„Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur sýknað karlmann af ákæru fyr-
ir að hafa haft í frammi skag-
firska sveiflu á almannafæri.
Bann við skagfirskri sveiflu var
bundið í lög árið 1997 eftir að
rannsóknir höfðu sýnt sterk
tengsl milli skagfirskrar sveiflu
og heilabilunar.“
Brjánn Guðjónsson
brjann.blog.is
„Naglinn massaði byssurnar í
gær, ekki veitir af að pumpa
þessar spírur. Æfði með Jóhönnu
svo það var vel tekið á því og
spottað alveg grimmt í þyngstu
settunum. Enda eru komnar
góðar sperrur í tribbann, og
vonandi tekur bibbinn við sér í
dag líka.“
Ragnhildur Þórðardóttir
ragganagli.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
„Ein ástæða þess að við gerum
þetta í kvöld er að þetta er á milli
Eurovision-keppna,“ segir Ben
Frost sem undrar sig á þeim menn-
ingardoða er kemur yfir íslensku
þjóðina í kringum söngvakeppn-
ina. „Okkur var sagt að það þýddi
ekkert að gera neitt annað kvöld,
því að enginn myndi mæta. Þetta
er svolítið óhugnanlegt.“
Ben kom hingað til lands fyrir
þremur árum og hefur síðan þá
unnið með mörgum af merkileg-
ustu tónlistarmönnum landsins.
Þar á meðal Björk, Sigtryggi Bald-
urssyni og Valgeiri Sigurðssyni er
hann starfrækir listahópinn Bed-
room Community með.
Minna er betra
Verkið sem hann flytur í kvöld
er samið í byrjun árs í fyrra og hef-
ur þegar verið flutt þrisvar áður
hérlendis og sjö sinnum erlendis.
„Ég er að reyna spyrna gegn
þeirri þróun að allt þurfi að vera
stærra til að vera betra. Mér finnst
það fáránlegt og þess vegna ætla ég
að flytja verk sem hefur aðeins ver-
ið flutt á stórum stöðum og flytja
það í svona litlu rými. Ég held að
það muni vera áhugaverðara.“
Verkið er um fjörutíu mínútna
langt og aldrei nákvæmlega eins.
Það getur þó ekki talist spuni þar
sem gítarleikararnir þurfa að fylgja
stífum en einföldum reglum.
„Það tekur á fyrir gítarleikarana
að spila þetta. Þeir þurfa að spila
allan tímann án þess að stoppa.
Þetta endar oft með blóði og
brotnum hlutum. Þetta snýst um
það. Ég samdi verkið með það í
huga að gera tilraun um þanþol
þeirra sem spila. Það veldur oft
spennu hjá gítarleikurunum að
þeir mega ekki fara út fyrir það
sem ég set þeim að spila.“
Laus staða
Það er misjafnt hverja Ben hefur
fengið til þess að spila verkið en á
morgun verður hópurinn sam-
settur af þeim Guðmundi og
Hauki úr Reykjavík!, Gunnari og
Steinari úr Coral og svo Berki
Magnússyni kontrabassaleikara.
Athygli vekur svo að staða sjötta
gítarleikarans er enn opin.
„Það er opið að hafa samband ef
einhver vill sækja um,“ segir Ben
að lokum. Þeir sem vilja baða sig í
gítarflóði mæti kl. 21:30.
Ben Frost gerir skemmtilega tilraun í kvöld
Býður upp á gítar-
súpu á barnum
Ben Frost er ástralskur
tónlistarmaður í miðju ís-
lensku jaðarsenunnar. Í
kvöld flytur hann sér-
stakt verk á Kaffibarnum
spilað af sex gítarleik-
urum.
Ben Frost Tilraunaglaður.
Sexlógía Sex gít-
arleikarar, sex gítarar
allir með sex strengi.
HEYRST HEFUR …
Óskar Jónasson, leikstjóri Svartra engla, leitaði á
dögunum til blaðamanna um þátttöku í myndinni.
Eins og í Pressunni mun fjölmiðlafólk koma til með
að leika sjálft sig til þess að gefa sögunni raunveru-
legri blæ. Í þeim hópi er Agnes Bragadóttir hjá Morg-
unblaðinu en allir fjölmiðlarnir sendu fulltrúa. Allir
voru þeir svo látnir skrifa undir þagnareið að tökum
loknum til að verja söguþráð þáttanna. bös
Þrír liðsmenn hljómsveitarinnar fyrrverandi Jak-
obínarínu eru byrjaðir að æfa sem ný hljómsveit.
Það eru þeir Hallberg, Heimir og Sigurður tromm-
ari en þeir félagar fengu vin sinn Andra á bassa.
Tónlistin er meira í ætt við surf-tónlist en sú er pilt-
arnir léku áður. Sveitin, sem enn hefur ekki hlotið
nafn, verður höfð í bílskúrnum út sumarið en ætlar
svo að hefja spilamennsku á fullu í haust. bös
Bob Dylan kemur hingað til lands á sunnudag og
stoppar stutt. Hann ætlar greinilega ekkert að skoða
sig um því hann flýgur af landi brott strax að tón-
leikum loknum á mánudagskvöldið. Það hefur svo
vakið þónokkra athygli að Dylan hefur harðbannað
allar ljósmyndatökur á tónleikum sínum í Laug-
ardalshöllinni. Það á líka við blaðaljósmyndara sem
eru heldur súrir vegna þessa. bös
Sigur Rós hefur leigt stórt hús-
næði í miðborg Reykjavíkur yfir
helgina þar sem þeir piltar æfa sig
undir væntanlega heimsreisu sína
er hefst í Mexíkó fimmta dag næsta
mánaðar. Sú ferð er til kynningar á
fimmtu breiðskífu sveitarinnar er
kemur út síðla næsta mánaðar.
Athygli vekur að liðsmenn hafa
ákveðið að veita engin hefðbundin
viðtöl fyrir plötuna. Þess í stað hef-
ur sveitin boðið fjölmiðlafólki í
heimsókn til þess að fylgjast með
æfingum. Blaðamenn frá tónlist-
arblöðunum Mojo og Q-Magazine
eru staddir hér á landi til þess að
fylgjast með gangi mála.
„Við erum alveg á milljón að
vinna og ákváðum að fara ekki í
nein hefðbundin viðtöl,“ segir Orri
Páll Dýrason, trommuleikari Sigur
Rósar. „Við erum orðnir svolítið
leiðir á þeim þar sem við segjum
aldrei neitt af viti hvort eð er. Þess í
stað ákváðum við bara að bjóða
blaðafólki á rennslisæfingu hjá
okkur þar sem hægt verður að
spyrja einhverra spurninga.“
Njósnavélin samstillt
Stúlkurnar í Amiinu taka einnig
þátt í æfingunum en þær munu
styðja strákana sem fyrr en aðeins
á fyrri parti heimsreisu þeirra.
Á æfingum sem þessum er það
ekki aðeins hljómsveitin sem æfir
lög sín heldur er einnig verið að
ganga frá umgjörðinni allri. Sam-
þættingu ljósa-, hljóð- og sviðs-
manna. Þetta er í fyrsta skipti sem
sveitin gerir þetta hérlendis en
venjan er að þessar æfingar fari
fram á fyrsta tónleikastað hverrar
reisu. biggi@24stundir.is
Sigur Rós þreytt á því að veita viðtöl
Opin æfing fyrir
blaðamenn
Sigur Rós Hefur leigt stórt húsnæði í
miðborginni yfir helgina fyrir æfingar.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
5 1 9 3 2 4 6 7 8
4 7 2 5 8 6 9 1 3
8 3 6 7 9 1 4 2 5
6 2 8 4 7 5 1 3 9
3 4 5 6 1 9 2 8 7
7 9 1 8 3 2 5 4 6
9 5 7 1 4 8 3 6 2
1 6 3 2 5 7 8 9 4
2 8 4 9 6 3 7 5 1
Er einhver á leiðinni til Kópaskers?
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Nei nei, sem skólastjóri er ég vanur
að taka menn á teppið
Guðmundur, ertu ekkert hræddur við að einhver taki þig á orðinu?
Guðmundur Sigurðsson er fyrrverandi skólastjóri í Borgarnesi
og núverandi listmálari. Hann heldur myndlistarsýningu í
Safnhúsi Borgarfjarðar undir nafninu „Finndu mig í fjöru“, en
þema verkanna fjallar um það sem finna má í fjörum landsins.
Ótrúlegt
úrval af
útskriftarkjólum
Útskriftarkjólar
Laugavegi 54
sími 552 5201