24 stundir


24 stundir - 24.05.2008, Qupperneq 6

24 stundir - 24.05.2008, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 24stundir „Ég fékk bílprófið á sautján ára afmælisdaginn en ég hlýt að hafa verið einn af þeim síðustu sem tóku bílprófið á meðan vinstri um- ferð var við lýði hér á landi, en það liðu ekki nema þrír mánuðir frá því að ég tók prófið og þar til ákveðið var að skipta yfir í hægri umferð.“ Þetta segir Sumarliði Guð- björnsson, ökukennari og þjón- ustufulltrúi hjá tjónasviði Sjóvár, í tilefni þess að á mánudaginn verða fjörutíu ár liðin frá því að hægri umferð var innleidd á Íslandi. Um- ferðarráð hyggst því í næstu viku halda daginn hátíðlegan með ýms- um viðburðum og umræðu um umferðaröryggi. Skemmtilegur dagur „Það er skemmtilegt fyrir okkur sem munum eftir þessum degi að líta til baka, því ég man hvað það ríkti mikil eftirvænting vegna breytingarinnar í samfélaginu á þessum degi, því ökumenn voru svo spenntir að fá að takast á við verkefnið. Þrátt fyrir spár manna um að skiptingin myndi ganga brösuglega, gekk allt ótrúlega vel enda voru ökumenn boðnir og búnir að láta allt ganga vel fyrir sig. Menn óku um bæinn með bros á vör á þessum degi.“ Sumarliði starfaði sem lögreglu- þjónn um árabil, en hann segir umferðarmenninguna hafa breyst mikið á þeim árum sem liðin eru síðan skipt var yfir í hægri umferð. „Ég efast um að það myndi ganga að ráðast í slíka breytingu í dag, enda hefur bílunum fjölgað margfalt og vegakerfið nú er mun flóknara en það var á þessum tíma. Í þá daga sýndu ökumenn hver öðrum umburðarlyndi og tillits- semi sem mér finnst hafa minnkað í umferðinni hér á landi undanfar- in ár, enda var ekki eins mikið af hörmungum í umferðinni þá.“ aegir@24stundir.is Hægri umferð á Íslandi í fjörutíu ár Einn af þeim síðustu Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is 07.00 Ég vakna yfirleittklukkan 7 á morgn- anna hérna í Serbíu og byrja á því að fara í tölvuna, svara tölvuskeyt- um og hringja nokkur símtöl. 09.30 Ég kallaði starfsfólkSjónvarpsins saman á morgunverðarfund. Við ræðum um verkefni dagsins og skipuleggj- um þau. 11.00 Fór út í höllina ogvar þar í tvo tíma að fara yfir tæknimál. Í kjölfarið fór ég aftur upp á hótel þar sem ég hitti hópinn og fór strax aftur með hon- um í höllina. Þau fóru í smink og undirbúning í búningsherberginu. Á meðan var ég á hlaupum að redda ýmsum málum. Þegar færi gafst tók ég myndir af hópnum fyr- ir vefsíðuna ruv.is. 14.15 Æfingar hófust enþeim hafði reyndar seinkað um korter. Íslenski hópur- inn var fyrstur á svið og þessi æfing gekk vonum framar, miklu betur en undanfarna daga. 15.00 Við vorum kominaftur niður á hótel og héldum smáfund. Við stilltum saman strengi okkar og ræddum um fyrirkomulag kvöldsins. Ég út- skýrði fyrir þeim hvað gerðist ef við kæmumst áfram og svo hvað við þyrftum að gera ef við kæmumst ekki áfram. 17.00 Ég skipaði öllum aðfara og fá sér eitt- hvað að borða, enda nauðsynlegt að fá orku fyrir kvöldið. Sjálfur hef ég verið gjarn á að gleyma að borða í öllu annríkinu síðan ég kom hing- að, en að þessu sinni fór ég með Grétari Örvarssyni og konu hans á veitingastað í miðborg Belgrad. 18.00 Vorum aftur mætt íhöllina. Það þurfti að gera allt klárt fyrir smink og hárgreiðslu, laga búningana, koma heyrnartækjum, hljóðsendibúnaði og míkrófónum fyrir hjá söngvur- unum. Þetta ferli stóð yfir í klukkutíma og í millitíðinni fór ég í útvarpsviðtal. Eftir undirbúning- inn fórum við baksviðs þar sem við héldum undirbúningnum áfram. 21.00 Átökin hófust ogsöngvararnir stigu á svið. Við hin horfðum á keppnina á skjá baksviðs og ég sá strax að út- koman var vonum framar. Um leið sannfærðist ég um að við myndum komast áfram í aðalkeppnina. 23.00 Við vorum búin aðhorfa á keppnina úr Græna herberginu og úrslitin voru kunngjörð. Ég myndaði keppend- urnar þegar þeir fögnuðu og svo hlupu þau fram á svið. Í kjölfarið hittu þau fréttamann Sjónvarpsins fyrir utan höllina og við Friðrik og Regína vorum keyrð í blaða- mannahöllina þar sem við tóku viðtöl við þá sem komust áfram. Svo var farið aftur á hótelið og skálað í kampavíni við afganginn af hópnum. Síðan fundaði ég með fólki úr stýrihópnum hérna. 04.00 Ég sofnaði loksins ogvaknaði svo aftur þremur tímum síðar þegar nýr vinnudagur hófst. Á fullu í Serbíu 24stundir með Jónatan Garðarssyni, umsjónarmanni íslenska Eurovision-hópsins í Serbíu ➤ Þetta er í áttunda skipti semhann starfar með íslenskum keppendum í Eurovision. Að- stoðarkona hans er Linda Þórðardóttir. JÓNATAN Jónatan Garðarsson hef- ur í mörg horn að líta í Serbíu þessa dagana. Hann hefur yfirumsjón með íslenska Eurovision- hópnum og vinnur svo að segja allan sólarhringinn. Fimmtudagurinn var þar engin undantekning. Í símanum Ekki er óal- gengt að sjá Jónatan tala í síma í Belgrad. Nokkrir femínistar stóðu í gær fyr- ir því sem þær kölluðu hreingern- ingu í dómsmálaráðuneytinu. „Dómsmálaráðuneytið hefur tekið pólitíska ákvörðun um að leyfa nektardans á Goldfinger,“ segir Sóley Tómasdóttir femínisti. „Dómsmálaráðuneytið er búið að þvinga lögreglustjóra höfuðborg- arsvæðisins, sem veitti neikvæða umsögn um rekstur Goldfingers á sínum tíma, til að endurskoða umsögn sína. Umsögnina byggði hann á reynslu þeirra sem hafa komið að kynferðisofbeldi hér á landi.“ Ráðuneytið kvað nýverið upp þann úrskurð að sýslumaðurinn í Kópa- vogi, sem synjaði Goldfinger um rekstrarleyfi, skuli taka umsóknina til meðferðar á ný, að fenginni nýrri umsögn lögreglustjórans. hos Hreinsa til í dómsmálaráðuneytinu Náðst hefur samkomulag milli sveitarfélagana við Eyjafjörð um að nýr framhaldsskóli verði staðsettur á Ólafsfirði. Er stefnt að því að hann hefji störf haustið 2009, skv. vefriti menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðuneytið hefur ráðið Jón Eggert Bragason sem verkefnastjóra við undirbúning stofnunar skólans. Jón Eggert starf- ar sem kennari og fagstjóri í stærð- fræði við Menntaskólann í Kópa- vogi og hefur fengið tímabundið leyfi frá þeim störfum vegna verk- efnisins. Að sögn Jóns Eggerts er áætlað að í skólanum verði um 150 manns og er stefnt að því að samstarfs- samningur milli ríkis og sveitarfé- laga um stofnun skólans verði und- irritaður á Siglufirði í dag. þkþ Framhaldsskóli á Ólafsfirði hefur störf 2009 Ólafsfirðingar fá framhaldsskóla „Meirihlutinn er sprunginn miðað við bókunina á fimmtudaginn. Þetta er svolítið skrítið af því að engin ástæða er gefin heldur vilja menn breyta til að breyta,“ segir Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri í Dalabyggð, en síðastliðinn fimmtudag lögðu fulltrúar H-listans, annars tveggja lista í meirihlutanum, til að honum yrði sagt upp störfum og starfið aug- lýst laust til umsóknar. Segir í greinargerð tillögunnar að í aðdraganda seinustu kosninga hafi H-listinn viljað auglýsa starf sveitarstjóra en samþykkt þá kröfu N- listans að oddviti þeirra fengi starfið. Kveðið sé á um endurskoðun eft- ir tvö ár í samstarfssamningnum og H-listinn sé enn sömu skoðunar. Fulltrúarnir leggi þetta til því ólíklegt sé að um málið náist sam- komulag. Er málið á dagskrá aukasveitarstjórnarfundar sem boðaður hefur verið að viku liðinni. þkþ Meirihlutaskipti í Dalabyggð? A T A R N A Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Eldunartæki, kælitæki, uppþvottavél og ljós í eldhúsið þitt. Sannarlega góð hugmynd!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.