24 stundir - 24.05.2008, Blaðsíða 26

24 stundir - 24.05.2008, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 24stundir Í gær, 23. maí, var ár liðið frá því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var formlega mynd- uð. Í tilefni þess kynnti hún stefnu- yfirlýsingu sína á Þingvöllum við mikla viðhöfn. 24 stundir ákváðu á þessum tímamótum að að rýna í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar og sjá hverju hefur þegar verið komið til leiðar, hvaða umbætur eru í ferli og hverjar þeirra virðast hafa dott- ið á milli sprungnanna. Frjálslynd umbótastjórn Í stefnuyfirlýsingunni segir að myndun ríkisstjórnarinnar endur- spegli „sögulegt samstarf tveggja stærstu stjórnmálaflokka landsins. Hvað hefur Beita átti sér fyrir markvissum að- gerðum í þágu barna og barnafjöl- skyldna á Íslandi og móta átti heildstæða aðgerðaáætlun í mál- efnum barna og ungmenna. Strax í júní 2007 var samþykkt aðgerða- áætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna þar sem tilkynnt var meðal annars að fæð- ingarorlof yrði lengt í 12 mánuði á kjörtímabilinu og að stuðningur við langveik börn yrði aukinn. Þar var þó sérstaklega tekið fram að aðgerðirnar myndu miðast við „ástandið í efnahagsmálum á hverjum tíma“. Meðal annarra atriða í þessum kafla var aukin tannvernd barna, hækkun barnabóta og að fram- haldsskólanemendur myndu fá stuðning til að kaupa námsgögn. Nú býðst þriggja ára börnum ein skoðun hjá tannlækni foreldrum þeirra að kostnaðarlausu. Í aðgerð- um ríkisstjórnarinnar vegna gerðar kjarasamninga var tilkynnt að skerðingarmörk barnabóta yrðu hækkuð úr 100 þúsund krónum á mánuði fyrir einstaklinga í 120 þúsund krónur árið 2008 og 150 þúsund krónur árið 2009. Þá er grein í frumvarpi til nýrra framhaldsskólalaga sem segir að „í fjárlögum ár hvert skal tilgreind sú fjárhæð sem veitt er til að mæta kostnaði nemenda vegna náms- gagna. Ráðherra setur reglur um skiptingu fjárins og fyrirkomulag þessa stuðnings.“ Frumvarpið hef- ur enn ekki verið afgreitt. 5. Barnvænt samfélag Aðgerðaáætlun fyrir börnin „Eitt brýnasta verkefni nýrrar rík- isstjórnar er að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu í þágu heimila og atvinnulífs. Markmið hagstjórn- arinnar er að tryggja lága verð- bólgu, lágt vaxtastig, betra jafnvægi í utanríkisviðskiptum, jafnan og öruggan hagvöxt og áframhaldandi trausta stöðu ríkissjóðs,“ segir í stefnuskránni. Þar var einnig lofað að settur yrði á laggirnar samráðs- vettvangur milli ríkisins, aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaga um aðgerðir og langtímamarkmið. Í maí fyrra var verðbólgan 4,7 pró- sent og stýrivextir 14,25 prósent. Í 1. Traust og ábyrg efnahagsstjórn Lág verðbólga og lágir vextir apríl síðastliðnum var hún 11,8 prósent og stýrivextir eru í dag 15,5 prósent, þeir hæstu í heimi meðal þróaðra þjóða. Þegar ríkis- stjórnin tók við völdum var við- skiptajöfnuður við útlönd nei- kvæður um 48,6 milljarða. Á fjórða ársfjóðrungi ársins 2007 var hann orðinn neikvæður um 90,6 milljarða króna. Varðandi fyrir- hugaðan samráðsvettvang þá hitt- ust þeir sem að honum áttu að koma í júlí í fyrra. Síðan var engin fundur haldinn fyrr en fyrir um tveimur vikum síðan. Næsti fund- ur hefur ekki verið boðaður. Meðal þess sem átti að gera var að efla Rannsóknar- og Tækniþróun- arsjóð. Framlög til Rannsókn- arsjóðs voru 659 milljónir á nú- virði í fyrra. Á fjárlögum ársins 2008 er áætlað að 750 milljónir renni til sjóðsins og framlög því aukist um 91 milljón að raungildi. Tækniþróunarsjóður fékk samtals 558 milljónir á núvirði í fyrra en ætlunin er að láta 600 milljónir renna í sjóðinn í ár. Þá ætlaði ríkisstjórnin að leggja áherslu á að efla Fjármálaeftirlitið (FME). Engin ný lög hafa verið sett sem snúa að FME en framlög til stofnunarinnar hafa verið aukin töluvert. Þau voru um 667 millj- ónir árið 2007 ef miðað er við nú- virði en eru áætluð tæplega 936 milljónir á fjárlögum í ár. Síðar í kaflanum segir: „tímabært er að leysa úr læðingi krafta einka- framtaksins svo að íslensk sérþekk- ing og hugvit fái notið sín til fulls í útrás orkufyrirtækja“. Orku- frumvarp iðnaðarráðherra, sem tekur meðal annars til þess að skilja samkeppnisrekstur orkufyr- 2. Kraftmikið atvinnulíf Styrkja opinbert eftirlit irtækja frá sérleyfisrekstri, hefur verið lagt fram en hefur ekki verið afgreitt sem lög. Þá átti að efla Samkeppniseftirlitið. Forstjóri stofnunarinnar hefur viðrað hug- myndir um víðtækari heimildir til handa því til að geta beitt sér fyrir uppskiptingu fyrirtækja þar sem lögbrot hafa verið framin. Engar breytingar á samkeppnislögum þess efnis hafa verið kynntar. Framlög á fjárlögum og -aukalög- um árið 2007 til eftirlitsins voru samtals 287 milljónir, eða um 321 milljón á núvirði. Á fjárlögum árs- ins í ár eru framlögin áætluð 277 milljónir. Þau hafa því ekki hækk- að milli ára. Ríkisstjórnin vildi líka leggja áherslu á mikilvægi öflugs landbúnaðar og hágæðafram- leiðslu á matvælum í landinu og vinna að endurskoðun landbún- aðarkerfisins með það fyrir augum að auka frelsi, bæta stöðu bænda og lækka verð til neytenda. Land- búnaðarráðherra hefur lagt fyrir nýtt matvælafrumvarp sem heim- ilar meðal annars innflutning á hráu kjöti. Stefna átti að lækkun skatta á ein- staklinga, meðal annars með hækkun persónuafsláttar. Í yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar frá því í febrúar síðastliðnum kemur fram að við vinnslu ramma fjárlaga næstu fjögur ár mun verða haft að markmiði að persónuafsláttur hækki um sjö þúsund krónur á næstu þremur árum umfram al- menna verðuppfærslu. Þá verður tekjuskattur fyrirtækja lækkaður úr 18 prósentum í 15 prósent. Lækkunin á að koma til fram- kvæmda á álagningarárinu 2009. Einnig segir að „fyrirtæki skulu búa við stöðugt og örvandi skatta- umhverfi“. Nýverið var frumvarp fjármálaráðherra um að fella niður skattgreiðslur af hagnaði hluta- bréfa samþykkt. Sá skattur var 18 prósent. Afnema átti stimpilgjald í fast- eignaviðskiptum á kjörtímabilinu. Samþykkt var á Alþingi nýverið að fella niður stimpilgjöld af lánum vegna fyrstu kaupa á íbúðar- húsnæði frá og með 1. júlí næst- komandi. Aðrir íbúðarkaupendur verða hins vegar, enn sem komið er, að greiða þau. Helsti rökstuðn- ingur þess að afnema ekki stimp- ilgjöld til þessa hefur verið sá að mikil þensla hafi ríkt á Íslandi og með því að afnema þau væru stjórnvöld að kynda undir henni. 3. Hvetjandi skattaumhverfi Stimpilgjöld og persónuafsláttur Stærsti hluti þessa kafla snýr að breyttri verkaskiptingu ráðuneyta og sumarið 2007 voru samþykkt lög um slíkt þar sem almanna- tryggingar voru fluttar til félags- málaráðuneytis frá heilbrigð- isráðuneyti, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti voru sam- einuð og Hagstofan gerð að stofnun. Þá hefur iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu verið skipt upp í tvö ráðuneyti. Einnig átti að einfalda og nútímavæða stjórnsýsluna. Forsætisráðuneytið kynnti fyrir stuttu stefnumótun sína um upplýsingasamfélagið þar sem miðað er að því. Eftirlauna- kjör alþingismanna og ráðherra áttu að vera endurskoðuð. For- 4. Markviss ríkisrekstur Nokkrum ráðuneytum skipt upp svarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa sagst ætla að breyta lögunum en ekkert hefur verið lagt fram í þeim efnum. Þá átti að gera rammafjárlög til fjögurra ára í senn og endurskoða tekju- og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Hvorugt hefur verið gert. um „framvindu aðgerða gegn kyn- bundnum launamun og að vinna eða láta vinna mat á raunveruleg- um árangri aðgerða.“ Þá voru ný lög um jafna stöðu karla og kvenna samþykkt í febrúar. Með þeim fékk Jafnréttisstofa auknar heimildir til gagnaöflunar auk þess sem þau tryggja að hlutfall kynja sé ekki minna en 40 prósent í opinberum nefndum, ráðum og stjórnum þar sem sitja fleiri en þrír. Þá var launaleynd afnumin í lögunum. Ríkisstjórnin lofaði einnig að veita trúfélögum heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra og frum- varp þess efnis hefur verið lagt fram en ekki hlotið afgreiðslu. Gera átti áætlun um að minnka óútskýrðan kynbundinn launa- mun hjá ríkinu og stefna að því að hann minnki um helming fyrir lok kjörtímabils. Þá átti einnig að reyna að jafna stöðu kynjanna í nefndum og stjórnunarstöðum á vegum ríkisins og tryggja rétt launafólks til að skýra frá launa- kjörum sínum ef það kysi að gera svo. Félagsmálaráðherra skipaði tvo starfshópa í október til þessara gjörða. Annar hópurinn átti að leita leiða til að eyða óútskýrðum launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði, en hinn er sjö manna ráðgjafahópur sem hefur það hlutverk að ráðleggja ráðherra 7. Jafnrétti í reynd Launaleyndinni aflétt Hraða átti byggingu 400 hjúkr- unarrýma, einfalda almannatrygg- ingakerfið, auka einstaklingsmiðaða þjónustu og færa ábyrgð á lögbund- inni þjónustu frá ríki til sveitarfé- laga. Í apríl var lagt fram frumvarp þar sem lagt var til að frá 1. júlí 2008 til 1. janúar 2009 geti öryrkjar valið um að hafa 100 þúsund króna frí- tekjumark á mánuði vegna atvinnu- tekna eða telja 60 prósent af at- vinnutekjum til tekna við útreikning tekjutryggingar. Þá tóku nýjar reglu- gerðir gildi í ár þar sem m.a. er mælt fyrir um hækkun frítekjumarks tekjutryggingar vegna atvinnutekna ellilíeyrisþega og frítekjumark ellilíf- eyris hækkað frá 1. apríl. 6. Aldraðir og öryrkjar Meiri tekjur  Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er orðinn eins árs  Æ  24 stundir kynntu sér hvaða stefnumálum hefur verið hrundið í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.