24 stundir - 24.05.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 24.05.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 24stundir Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás - Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur - Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður - Fáskrúðsfjörður - Höfn Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður www.lyfja.is - Lifið heil ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 4 23 25 0 5. 20 08 HÆTTU Í ALVÖRU Skynsamleg leið til að hætta því þú hættir á eigin hraða. NicoBloc hindrar allt að 99% af nikótíni og tjöru í filternum. Þú venur þig af nikótíni áður en þú drepur í. TILBOÐ MÁNAÐARINS 25% afsláttur Verð 2.990 kr. í Lyfju. Verð áður 3.990 kr. Eftir Frey Rögnvaldsson freyr@24stundir.is Daníel Þór Bjarkason er sextán mánaða og greindist með sjúkdóm í ónæmiskerfi þegar hann var ellefu mánaða. Hann hefur litla sem enga mótstöðu gegn veikindum og Hildur Axelsdóttir móðir hans verður því að sinna honum á heim- ili þeirra. Þrátt fyrir það fékk hún höfnun um greiðslur fyrir umönn- un hans. Heimurinn hrundi Hildur sótti um greiðslur vegna umönnunar Daníels í mars síðast- liðnum. „Við fengum svar í byrjun apríl þar sem umsókninni var hafnað. Við erum ekki fólk sem hefur kvartað yfir okkar hlutskipti. Við elskum strákinn okkar og hann er algjör himnasending. Þegar við fengum höfnunina hrundi heimur- inn í höfuðið á okkur. Í fyrsta skipti vorum við algjörlega ráðalaus og vissum ekki hvað við ættum að gera í framhaldinu.“ Einu tekjurnar sem Hildur hefur eru umönnunarbætur upp á 26 þúsund krónur á mánuði. Súrrealískur fundur Foreldrar Daníels leituðu þegar hér var komið til ráðgjafarmið- stöðvarinnar Sjónarhóls. Þar fengu þau fjölskylduráðgjafa sér til ráð- gjafar. Síðasta þriðjudag funduðu þau síðan ásamt fjölskylduráðgjaf- anum með fulltrúa og lögfræðingi Tryggingastofnunar. „Svörin sem að við fengum voru óskiljanleg. Við vildum fá skýring- ar á því hvers vegna umönnun okkar samrýmist ekki hjúkrun í heimahúsi. Svarið var: „svona eru bara lögin“. Möguleikar okkar væru þó betri ef við fengjum hjúkr- unarkonu heim. Við þurfum ekki neina hjúkrunarkonu, ég er fullfær um að gefa honum lyfin hans, hugga hann og vagga honum á daginn. Hann þarf samt umönnun heima við allan sólarhringinn. Okkur var sem sagt sagt að við stæðum okkur of vel við að sinna barninu okkar. Það er súrreallískt að heyra sagt við mann að ef við færum út með barnið okkar og gerðum það veikt svo að það lendi inni á sjúkrahúsi þá fengjum við hjálp. Ég brotnaði saman og fór bara að hágráta. Maðurinn minn varð svo reiður að ég hélt að hann ætlaði upp úr þakinu.“ Lögin allt of þröngt túlkuð Inga Birna Sigfúsdóttir fjöl- skylduráðgjafi hjá Sjónarhóli stað- festir frásögn Hildar. „Svörin sem fengust á umrædd- um fundi voru afar fátækleg. For- eldrunum var einungis sagt að það væri skortur á sjúkrahúsvistun eða hjúkrun í heimahúsi sem stæði í vegi fyrir því að þau fengju jákvætt svar. Þetta eru hins vegar foreldrar sem eru að reyna að forða barninu sínu frá sjúkrahúsvist. Það virðist sem þessi lög séu afar þröngt túlk- uð og það sé fullt af gráum svæð- um sem fólk lendir úti á.“ Þvo sér með spritti Ástand Daníels er með þeim hætti að hann er nánast algjörlega einangraður. Hann fer nánast aldr- ei út úr húsi nema til að fara til læknis. Foreldrar hans spritta á sér hendur áður en þau faðma dreng- inn sinn og móðir hans segist vera kominn með þráhyggju fyrir þrif- um á heimilinu. Þegar veikindi og pestir ganga í leikskóla Kolbrúnar Lífar systur hans verður að kippa henni heim til að reyna að fyrir- byggja að hún verði veik og smiti þar með bróður sinn. Veikindi líklegri í dagvist Þrátt fyrir þessi miklu veikindi Daníels er ekki útilokað að hann geti náð bata. Það er þó ljóst að það mun ekki gerast alveg á næstunni. Ásgeir Haraldsson sérfræðingur í barnalækningum og ónæmisfræði hefur haft Daníel til skoðunar. For- eldrar Daníels veittu Ásgeiri leyfi til að fjalla almennt um veikindi Daníels. Ásgeir segir að Daníel sé með mælanleg frávik í ónæmis- kerfinu. „Þessi litli drengur er með mjög mikla sýkingasögu og hefur glímt við mikil vandræði undanfarinn vetur. Það eru tiltölulega góðar vonir til þess að hann nái bata en það er ekkert hægt að segja til um hvenær það gæti orðið. Það verður ekki hjá því komist að hann veikist en ef hann færi í dagvist með öðr- um börnum myndu líkurnar aukast umtalsvert á því að hann veikist oftar.“ Ásgeir segir að það sé vissulega mjög alvarlegt þegar börn veikjast ítrekað af lungnabólgum og þurfi að fá sýklalyf trekk í trekk. „Það er umtalsverður fjöldi barna sem er næmari fyrir sýkingum en önnur börn en þau þurfa ekki að vera með frávik í ónæmiskerfi.“ HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Fá ekki stuðning til að annast son sinn  Foreldrar fengu höfnun um greiðslur vegna umönnunar sonar síns sem er með galla í ónæmiskerfi  Hann hefur fengið lungnabólgu í á annan tug skipta á sextán mánuðum Fjölskyldan Kolbrún Líf, Bjarki, Daníel Þór og Hildur ætla ekki að gefast upp. ➤ Allt hefur verið gert til aðvernda Daníel gegn sýk- ingum og veikindum. ➤ Hann er á stöðugum sýkla-lyfjakúr, með rör í eyrum og búið að taka úr honum kirtla. Þrátt fyrir það veikist hann. VEIKINDI Öryrkjabandalags Íslands, ÖBÍ, efast um að raunhæft sé að taka upp nýtt örorkumat um næstu ára- mót eins og gert er ráð fyrir. Þess vegna vill bandalagið að ákvæðið um 100 þúsund króna frítekju- mark, sem taka á gildi 1. júlí næst- komandi, gildi lengur en til ára- móta. „Við fögnum þessu ákvæði en þetta er bara bráðabirgðaákvæði sem dettur út um áramótin. Við viljum heldur að það detti út þegar nýtt örorkumat tekur við,“ segir Halldór Sævar Guðbergsson, for- maður Öryrkjabandalags Íslands. Í umsögn bandalagsins um frumvarp um breytingar á lögum um almannatryggingar segir að miðað við þær upplýsingar sem bandalagið hafi virðist talsverð vinna vera eftir við að hanna og þróa nýtt örorkumatskerfi. „Við teljum vinnuna það skammt á veg komna að þetta haf- ist ekki fyrir áramót. Að öllum lík- indum þyrfti svo að meta um 14 þúsund öryrkja upp á nýtt í nýja kerfið. Það þarf líka að kenna fólki að vinna eftir því. Ekki má varpa ábyrgð á lífeyrisþega.“ ibs Efasemdir ÖBÍ um nýtt örorkumat Óraunhæfur tími Alls sóttu 22 um starf fram- kvæmdastjóra Sambands ís- lenskra sveitarfélaga sem aug- lýst var til umsóknar fyrr í þessum mánuði. Á lista yfir umsækjendur, sem lagður var fram á fundi stjórnar sambandsins í gær, eru meðal annarra Drífa Jóna Sigfúsdóttir í Keflavík, Gísli Tryggvason, talsmaður neyt- enda, Gunnlaugur A. Júl- íusson sviðsstjóri, Karl Björnsson sviðsstjóri og Svav- ar Halldórsson fréttamaður. Núverandi framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfé- laga, Þórður Skúlason, hefur gegnt starfinu í tæp 18 ár. Hann hefur beðist lausnar frá störfum frá og með 1. ágúst en samkvæmt upplýsingum frá sambandinu er hann tilbúinn til að endurskoða þá tímasetn- ingu geti nýr framkvæmda- stjóri ekki hafið störf strax í ágústbyrjun. ibs Samband sveitarfélaga 22 sækja um stjórastarfið Gert er ráð fyrir að um ein milljón farþega fari um fyr- irhugaða samgöngumiðstöð á ári í fyrstu, þar af um 600 þús- und flugfarþegar, að því er Ragnar Atli Guðmundsson, verkefnisstjóri samgöngu- miðstöðvarinnar, greindi frá á fundi Flugmálafélags Íslands í vikunni. Ragnar kvaðst vona að unnt yrði að hefja framkvæmdir um næstu áramót en gert er ráð fyrir að samgöngu- miðstöðin verði fullbúin árið 2010. Hugsanlega verður hægt að taka fyrri áfanga í notkun á næsta ári, að því er Ragnar greindi frá. ibs Samgöngumiðstöð 600 þúsund flugfarþegar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.