24 stundir - 24.05.2008, Page 20
20 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 24stundir
Ágætu Skagamenn.
Mér þykir nauðsynlegt að leið-
rétta þær „staðreyndir“ sem Magn-
ús Þór Hafsteinsson hefur að und-
anförnu lagt á borð fyrir bæjarbúa
á Akranesi.
Bakgrunnurinn
Áður en formleg beiðni um
móttöku flóttafólks barst bæjaryf-
irvöldum, þá hafði borist óformleg
beiðni til að gefa sveitarstjórnum
svigrúm til þess að kynna sér mál-
ið. Haldnir voru óformlegir kynn-
ingarfundir sem Magnús Þór Haf-
steinsson sat. Hann tjáði sig ekkert
um málefnið á þessum fundum
eins og komið hefur fram opinber-
lega. Magnús Þór var mér ósam-
mála í þessu máli og vildi ekki gera
neinar málamiðlanir. Því fór sem
fór. Í málflutningi Magnúsar Þórs
Hafsteinssonar hafa komið fram
margar villandi og rangar upplýs-
ingar og verður reynt að leiðrétta
hluta þeirra hér.
Samsetning hópsins
Strax á fyrsta fundi með starfs-
manni félagsmálaráðs, var sagt að
hingað til lands myndu koma ein-
stæðar mæður. Ástæðan fyrir því
að sá hópur varð fyrir valinu er að
vel er búið að einstæðum mæðrum
hér á landi. Er þar átt við bæði fé-
lagsleg viðhorf og opinbera aðstoð,
ólíkt mörgum öðrum löndum.
Einstæðar mæður eru konur í
barneign og aðeins eldri. Við get-
um gert ráð fyrir að þessar konur
séu á aldrinum u.þ.b. 20-45 ára.
Fjölskyldustærð er ókunn þar
sem það á eftir að velja þær konur
sem hingað koma. Þær sem hljóta
stóra „lottóvinninginn“, ef svo má
að orði komast, eru þær konur sem
líklegt er að aðlagist hér á landi.
Um fjölda barnanna er ekki vitað
enn.
Á öðrum kynningarfundi, sem
m.a. starfsmaður félagsmálaráðs,
félagsmálastjóri Reykjanesbæjar og
framkvæmdastjóri Flóttamanna-
hjálpar Rauða krossins mættu á,
kom það skýrt í ljós að samningur
yrði gerður við sveitarfélagið um
móttöku á flóttafólki, ef til þess
kæmi. Þessi samningur fæli í sér að
ríkið myndi greiða þann kostnað
sem fellur til við að hjálpa þessum
konum og börnum að verða full-
gildir íbúar. Gert er ráð fyrir að
þetta ferli taki tvö ár.
Skólamál og fleira
Akraneskaupstaður er að byggja
6 deilda leikskóla og því munum
við hafa næg leikskólapláss. Gert er
ráð fyrir að bygging nýs grunnskóla
hefjist sem fyrst og fyrsti áfangi
verði tekinn í notkun 2010. Verið
er að fara í aðgerðir til þess að
koma upp bráðabirgðahúsnæði
sem mun leysa húsnæðisþörfina
þangað til.
Þess má geta að sá stuðningur
sem þessar konur og börn þurfa er
atvinnuskapandi, sér í lagi fyrir
konur. Ástæðan fyrir þeim rök-
stuðningi er sú að konur sækja
meira í störf sem snúa að félagsleg-
um, kennslu- og umönnunarmál-
um.
Í dag, þegar þetta er skrifað, eru
Akurnesingar orðnir 6500 talsins.
Okkur hefur fjölgað um 500
manns síðan í febrúar 2007. Þrátt
fyrir það hefur Akraneskaupstaður
sinnt sínum skyldum við þessa
nýju íbúa af sömu skyldurækni og
aðra Akurnesinga. Því skyldum við
ekki geta haldið því góða starfi
áfram þó svo að íbúafjöldi aukist
um 30 manns til viðbótar?
Eða ætlum við að nota þau rök
að velferðarkerfi Akraneskaupstað-
ar sé virkilega svo útþanið að við
verðum að setja skilti við afleggj-
arann sem stendur á: „Því miður
þá getum við ekki tekið á móti
fleira fólki. Vinsamlegast flytið
annað“?
Húsnæðismál
Í upphafi ferlisins leigir ríkið
íbúðir á hinum almenna leigu-
markaði fyrir þessar fjölskyldur.
Það er enginn á götunni hér á
Akranesi. Allir eiga sér samastað og
ég veit ekki um neinn sem þarf að
búa í tjaldi eins og þessir flótta-
menn þurfa að gera.
Sá biðlisti sem er eftir félagslegu
húsnæði er vegna þess að Akranes-
kaupstaður á mjög fáar íbúðir til
útleigu. Það er og hefur verið stefna
sveitarfélagsins í mörg ár að eiga
ekki nema lágmark af slíkum íbúð-
um vegna mikils rekstrarkostnaðar
við þær. Það hefur verið talið hag-
kvæmara að leigja slíkar íbúðir á
almennum markaði.
Enginn flóttamaður hefur for-
gang á biðlista eftir þessum fáeinu
félagslegu íbúðum sem Akranes-
kaupstaður á. Lagt er upp með það
að eftir aðlögun verði þeir þegnar
þessa samfélags og hlíti sömu
reglum og aðrir.
Atvinnumál
Með stækkandi sveitarfélagi
eykst fjölbreytni og störfum fjölgar.
Hví ætti Akranes að verða eitthvað
öðruvísi en önnur sveitarfélög í
þeim efnum?
Ríkið bindur svo um hnútana að
þessar einstæðu mæður verða ekki
á framfæri sveitarfélagsins.
Ég blæs á þau rök að þessar kon-
ur eigi að hafa forgang að störfum.
Hið rétta er að það er val hvers at-
vinnurekanda að ráða til sín þá að-
ila sem þeir kjósa.
Lokaorð og niðurstaða mín
Ég get ekki með nokkru móti
komist að sömu niðurstöðu og
Magnús Þór Hafsteinsson um
getuleysi Akraneskaupstaðar til að
taka á móti þessum flóttamönnum.
Því býð ég þá, þessar einstæðu
mæður og börn þeirra, velkomna
og er stolt af því að vera þátttak-
andi í því að bjarga nokkrum frá
vægast sagt ömurlegum ævidögum
og afhenda allt að 30 manns
stærsta „lottóvinning“ sem þau
geta nokkurn tímann fengið.
Akurnesingar, stöndum saman
og sýnum hversu megnug við er-
um. Gefum þessu fólki betra líf.
Höfundur er formaður
bæjarráðs Akraness
Um fyrirhugaða
komu flóttafólks
UMRÆÐAN aKaren Emilía Jónsdóttir
Ég blæs á
þau rök að
þessar konur
eigi að hafa
forgang að
störfum. Hið
rétta er að
það er val hvers atvinnu-
rekanda að ráða til sín þá
aðila sem þeir kjósa.
Sumum finnst þetta í lagi þar sem olíufélög-
in „stálu“ af fólkinu með sínu samráði, aðr-
ir segja að myndavélar ættu að vera á öðr-
um stað en þær eru núna og svo eru aðrir
sem segja þetta vegna þess að eldsneyti er
dýrt.
Margrét Össurardóttir á blog.is
Það er nú ekkert skrýtið að fólk skuli gera
þetta. Sumir líta svo á að þeir séu að ná til
baka því sem olíufélögin stálu af þeim með verðsamráði og með
óeðlilegum viðskiptaháttum.
Finnbogi Vikar á blog.is
Menn redda sér. Þegar orkan kostar of mikið byrja menn að stela.
Við þurfum almennilegan orkugjafa.
Jón Finnbogason á blog.is
Nú er ég hissa. Það þarf hugmyndaflug til að framkvæma svona fá-
ránlega hluti. Þarf maður að taka númeraplöturnar inn á kvöldin
og með sér í vinnuna á daginn?
Sigga Svavars á blog.is
BLOGGAÐ UM FRÉTTIR
Allt í lagi?
am í þj stu Barnahússt.d. læknisrannsókn á börnum eða
Undanfarna daga hafa starfsmennbensínstöðva orðið varir við að ábílum sem ekið er á brott án þessað greitt hafi verið fyrir bensín erunúmer sem tilheyra ekki viðkom-andi bílum. Þegar starfsmennSkeljungs hringdu í eiganda einsbílnúmersins brá honum í brún,samkvæmt heimildum 24 stunda.Hann fór og kannaði ástandið á bílsínum sem var í geymslu á vöktuðu svæði og komst þá að því að búið
var að stela númeraplötunum af bílnum.Brynjar Pétursson, sem sér um tjónamál hjá Olís, segir alltaf eitthvað
um það að ökumenn stingi af án þess að greiða fyrir bensín. ,,Það hef-
ur nýlega komið tvisvar fyrir að menn hafi verið á bílum með núm-
eraplötur sem passa ekki við bílana. Við sáum einnig sama númers-
lausa bílinn koma þrisvar sinnum fyrr í vetur og stinga af.“
Ómar Jóhannsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva hjá N1, segir menn
koma með stolnar númeraplötur til að stela eldsneyti en þó ekki í
miklum mæli.
ibs
Stela númerum og bensíni
Unnið að rann-
Eft
hly
Jak
inn
Rey
mill
þeim
í hús24stundir 23. maí
- kemur þér við
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744
pólitík heilsa
fréttir fé&frami
golf 24fólk veiði
neytendavaktin
golf dagskrá
menning viðtöl
ferðalög viðskipti
garðurinn grill
24lífið bílar
neytendur umræða
Lyf skipta sköpum!
„Lifnaði ekki við
fyrr en 2005!“
Kristín Guðmundsdóttir, nemandi við enskudeild Háskóla Íslands.
„Ég hef þjáðst af liðagigt frá því árið 2000. Frá þeim tíma stjórnaðist líf
mitt nær algjörlega af sjúkdómnum. Vegna sársauka gat ég hvorki mætt
í skólann né sinnt öðrum störfum.
Í júlí 2005 fékk ég loksins lyf sem gerbreyttu öllu. Það er þeim að þakka
að ég lifnaði við á ný og get nú stundað nám að fullu og lifað eðlilegu
og sársaukalausu lífi.“
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n