24 stundir - 24.05.2008, Side 43

24 stundir - 24.05.2008, Side 43
24stundir LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 43 Elísabet Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með Giroud Vins Ballerine 2004. Hreinn ilmur af ferskjum, hvítum blómum, gulum eplum og kanil. Suðrænir ávextir, lychee og gular perur eru í full- komnu jafnvægi við áfengi með sæta fyllingu. Þrúga: Petit Arvine. Land: Sviss. Hérað: Valais. 3.290 kr. Hráefni: 1 stk. vatnsmelóna 1 stk. ferskja 2 stk. plóma 1 stk. mangó 1 box jarðarber 1 rautt epli vínber blá og græn bláber kíví 1 bolli gin Aðferð: Lok er skorið ofan af vatnsmel- ónunni og síðan er melónukjötið skafið úr, til dæmis með ísskeið. Ávextirnir eru skornir í litla bita og settir í vatnsmelónuna. Einnig er melónukjötið skorið og sett í vatnsmelónuna. Síðan er gininu hellt yfir. Látið standa í kæli í um það bil tvo tíma. Salatið er borið fram í mel- ónunni. EFTIRRÉTTUR Girnilegt ávaxtasalat Fyrir 2 Hráefni: 4 stk. humarhalar 16 stk. risarækjur 2 stk. hörpuskel ½ rauð paprika ½ græn paprika 6 hvítlauksrif lítill biti af engifer 1 stk. gulrót 8 stk. sveppir 10 stk. snjóbaunir 1 bolli hrísgrjón 1 stk. lime 2 bollar vatn salt og pipar Hvítlauksolía (hráefni): 3 hvítlauksrif ½ lítri af saltolíu 1 tsk. salt Aðferð: Allt sett í matvinnsluvél eða blandara og hrært saman í 2 mínútur. Pillið humarhalana og risarækjurnar og raðið á bambuspinna ásamt risa- hörpuskel og steikið á pönnu í hvít- lauksolíu í um það bil 4 mínútur á hvorri hlið. Sjóðið hrísgrjónin í vatninu í um það bil 12 mínútur. Skerið grænmetið í litla bita og brúnið á pönnu í hvít- lauksolíu í um það bil 4 mínútur. Hellið safa úr ½ límónu yfir. Sigtið vatnið af hrísgrjónunum og setjið hrísgrjónin út í grænmetið á pönnunni og steikið í um það bil 3 mín. Setjið hrísgrjónablönduna á disk og setjið sjávarréttaspjótin ofan á og kreistið hálfa límónu yfir. FORRÉTTUR Sjávarréttir á teini með hrísgrjón- um að hætti Ingvars á Salatbarnum Elísabet Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með Chablis Joseph Drouhin 0́4. Flókinn ilmur af steinefnum og kalki með undirliggjandi ferskju- og hunangstónum. Þéttur og þurr í munni með sítrus, melónu-, greip- og léttum kórían- dereinkennum. Meðallöng ending með góða dýpt. Þrúga: Chardonnay. Land: Frakkland. Hérað: Bourgogne – Chablis. 2.690 kr. Heilsuakademían stendur fyrir *sund- og leikjanámskeiðum í Egilshöll í Gravarvogi, Íþróttarhúsinu í Lækjarskóla í Hafnarfirði og Íþrótta miðstöðinni Lágafell í Mosfellsbæ í sumar. Námskeiðin eru fyrir hressa krakka sem vilja læra að synda og stunda aðrar íþróttir. Námskeiðið samanstendur af *sundkennslu undir stjórn menntaðra kennara, íþróttum, leikjum og fræðslu um heilbrigt líferni sem og mikilvægi hollrar fæðu. Í lok hvers námskeiðs verður haldin grillveisla þar sem allir fá afhend viðurkenningarskjöl! Aldur: 5-7 ára og 8-11 ára Tími: Hægt er að vera hálfan daginn frá kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00 eða allan daginn frá kl. 9:00-16:00. Gæsla er í boði á milli kl. 8:00-9:00 og 16:00-17:00 gegn auka gjaldi (2.000 kr. greiðist einu sinni). Skráning: Skráning í síma 594-9666 og á www.heilsuakademian.is. Greiðsla fer fram við skráningu. Foreldrar eru hvattir til að skrá börn sín tímanlega þar sem takmarkaður fjöldi kemst á hvert námskeið. Heilsuakademían kynnir Sund- og leikjanámskeið í Grafarvogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ Dagsetningar: 9. júní – 20. júní 23. júní – 4. júlí 7. júlí – 18. júlí 21. júlí – 1. ágúst 5. ágúst – 15. ágúst *Athugið að það er ekki sundkennsla í Egilshöll.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.