24 stundir - 24.05.2008, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 24stundir
Ný sending
Glæsileg
sumardress
og -kjólar
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Á barmi heimsfrægðar
Eins og hver Íslendingur veit er
Selma sá listamaður sem hefur náð
bestum árangri fyrir hönd þjóðar-
innar í Eurovision en árið 1999
hafnaði hún í öðru sæti með lagið
All Out Of Luck. Ári síðar kom út
fyrsta sólóplata hennar, I Am, sem
gefin var út á heimsvísu og heims-
frægðin var handan við hornið.
„Ég fékk þetta einhvern veginn
allt upp í hendurnar. Ég stökk til í
þetta Eurovision-ævintýri og mig
óraði ekki fyrir hvað það myndi
hafa í för með sér. Ég hélt að ég
væri bara að fara að syngja lag í
þrjár mínútur, en ég er enn þann
dag í dag beðin um að troða upp
sem þessi „Eurovision-Selma“. Ég
var úti í Svíþjóð bara fyrir þremur
vikum að syngja, þannig að það má
segja að þetta séu ofboðslega þraut-
seigar þrjár mínútur í mínu lífi,“
segir Selma, sem hefur komið fram
víða um Evrópu í tengslum við
Eurovision, enda er hún í miklu
uppáhaldi hjá aðdáendum keppn-
innar.
I Am varð metsöluplata á Íslandi
en utan landsteinanna fór minna
fyrir henni en vonir stóðu til. „Það
var auðvitað frábært að fá svona
tækifæri. Fljúga á Saga Class, gista á
fimm stjörnu hótelum og láta
koma fram við mann eins og prins-
essu í eitt og hálft ár. En ég er líka
alveg ótrúlega sátt í minni 70 fer-
metra risíbúð í Hlíðunum. Ég þarf
ekki svona umstang til að gera mig
glaða.“
Góð og slæm áhrif Eurovision
Í kjölfar velgengninnar í Euro-
vision 1999 var ákveðið að tefla
Selmu aftur fram í keppninni í
Úkraínu árið 2005 þegar klára átti
dæmið í eitt skipti fyrir öll. Veð-
bankar töldu hana sigurstranglega
með lagið If I Had Your Love, en
allt kom fyrir ekki og hún komst
ekki upp úr forkeppninni. Selma
segir að Eurovision hafi mótað feril
sinn á bæði góðan og slæman hátt.
„Þó að það megi ýmislegt mis-
jafnt segja um þessa keppni þá er
auðvitað svakalega góð reynsla að
fara þarna út og syngja í 10-20 þús-
und manna höll fyrir hundruð
milljóna sjónvarpsáhorfenda. Það
er bara meira en að segja það. Það
var gríðarlegt stress og pressa á mér
þegar ég labbaði inn á sviðið í
Úkraínu 2005 þar sem maður er
svo fullkomlega meðvitaður um að
ef maður klúðrar þessu mun það
fylgja manni alla tíð. Þetta kemur
upp á hverju einasta ári og ef mað-
ur er rammfalskur, gleymir textan-
um eða dettur á sviðinu þá er þetta
komið á netið og YouTube og út
um allt. Ég var eiginlega einum of
meðvituð um það þegar ég labbaði
inn á sviðið. En að drulla sér samt í
gegnum það er hollt öllum lista-
mönnum,“ segir Selma.
Henni gremst þó að fólk skuli
telja að hæfileikar þeirra sem taka
þátt í Eurovision takmarkist við
það. „Ég finn fyrir svolítilli þröng-
sýni hjá ákveðnum hópi fólks. Þó
að maður hafi tekið þátt í Eurovisi-
on er maður ekki eitthvað grunn-
hygginn eða lélegri listamaður. Ég
finn svolítið fyrir þeim hugsunar-
hætti hjá þessu ofurfullorðna fólki
að ég sé „bara Eurovision-söng-
kona … hvað er hún að leikstýra
eða leika?““
Hún segist sjálf ekki vera sérstak-
ur aðdáandi keppninnar, en þykir
leitt að sjá hvernig komið er fyrir
henni. „Ég sagði nú árið 2005 eftir
að ég tók þátt að þessi keppni væri
að breytast í sirkus og það er miður.
Það sem mér finnst skemmtilegt
við Eurovision er að þetta er
skemmtileg stund fyrir Evrópu til
að setjast niður á sama tíma og
horfa á hvað er verið að gera í
hverju landi fyrir sig. En ég horfði á
undankeppnina á þriðjudaginn
með mömmu minni og við þurft-
um bara að pína okkur í gegnum
þetta. Þegar það er kominn kal-
kúnn á sviðið og verið að hengja
upp þvott þá verður þetta hreinlega
ekki miklu verra. Gæðin eru eig-
inlega í sögulegu lágmarki, en það
verður að segjast að seinni hluti
undanúrslitanna var töluvert betri
og það glæddist mikil von þegar
Regína og Friðrik stigu á svið. Þau
komu fram af heilindum með lag
sem þau trúa á og gerðu þetta
fantavel. Kraftmikil, með glampa í
augum og gleði í hjartanu.“
Vinnan og áhugamálin
samtvinnuð
Selma leikstýrði sinni fyrstu at-
vinnuleiksýningu í vetur en það var
barnaleiksýning Borgarleikhússins,
Gosi. Áður hafði hún leikstýrt
söngleik Verzlunarskólans, Sextán,
og gerði það á meðan hún var ólétt
að öðru barni sínu. Gosi hefur
fengið frábærar viðtökur; 25 þús-
und manns hafa barið verkið aug-
um og á dögunum var það tilnefnt
til þrennra Grímuverðlauna.
„Leikstjórastarfið togar dálítið í
mig núna. Það er gaman að víkka
sjóndeildarhringinn og takast á við
ögrandi verkefni eftir því sem árin
líða. Ég hef verið að leika og syngja
meira og minna í 13 ár í atvinnu-
leikhúsum þannig að þetta er
kannski eðlilegt stökk. Ég hefði
jafnvel áhuga á að mennta mig í
leikstjórafræðum,“ segir Selma.
Ef horft er yfir feril hennar virð-
ist sú staðreynd, að hún verður að-
eins 34 ára í næsta mánuði, ótrúleg.
Þrátt fyrir fjölda sigra þegar kemur
að söng, dansi og leik er hún hins
vegar rétt að byrja. „Mig langar t.d.
að leikstýra úti á stóru sviði. Ég
væri til í að fara á West End og leik-
stýra þar eftir 10 ár. Fá einhverja
stórsýningu og geta gert allt sem
mig langar til,“ segir hún spurð um
hvað hana dreymi um að ná langt í
starfinu. „Ég held að maður verði
að halda áfram að láta sig dreyma
alla ævi. Það er nauðsynlegt að gera
eitthvað nýtt, stefna hærra og fara
Selma Björnsdóttir tekst á við ögrandi verkefni
Fullkomið líf Selma
ásamt börnum sínum,
Gísla Birni og Selmu Rún.
24stundir/Golli
a
Regína og Friðrik
komu fram af heil-
indum með lag sem þau
trúa á og gerðu þetta
fantavel. Kraftmikil, með
glampa í augum og gleði
í hjartanu.
Þrjár
örlaga-
mínútur
Selma Björnsdóttir á að
baki viðburðaríkan feril,
sem hefur að miklu leyti
mótast af Eurovision-
ævintýri hennar. Hún hef-
ur náð langt í leik og
söng, en hugur hennar
stendur nú til leikstjórnar.
Eftir Björn Braga Arnarsson
bjornbragi@24stundir.is
„Það var mjög mikið gleðiefni að
Ísland skyldi komast upp úr for-
keppninni núna. Í fyrsta lagi
vegna þess að þau áttu það full-
komlega skilið og í öðru lagi
vegna þess að breytt fyrirkomulag
á keppninni virðist vera að skila
sér á góðan hátt fyrir vestrænu
þjóðirnar. Til dæmis komust allar
Norðurlandaþjóðirnar upp úr
forkeppninni, en það hefur aldrei
gerst áður,“ segir Selma Björns-
dóttir, söngkona, leikkona, dans-
ari og mesta Eurovision-stjarna
Íslendinga fyrr og síðar. Að
minnsta kosti enn sem komið er.
„Ég hringdi í Regínu í gær eftir
að hún var búin að syngja til að láta
hana vita hvað ég væri stolt af þeim
og hvað þetta hefði verið flott. Mér
finnst eiginlega sorglega fá lög í ár
sem eitthvað er varið í, en íslenska
lagið er svo sannarlega á meðal
þeirra bestu. Ég ætla að vera bjart-
sýn og spá að þau lendi á meðal
fimm efstu.“