24 stundir - 24.05.2008, Page 53
Hátíðardagskrá 25. maí 2008
BLÓMSVEIGUR LAGÐUR VIÐ STYTTU SR. FRIÐRIKS
Í LÆKJARGÖTU.
Við styttu sr. Friðriks verður stutt athöfn þar sem tvö ungmenni leggja blómsveig fyrir hönd KFUM og
KFUK á Íslandi við fótskör styttu sr. Friðriks. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup flytur bæn og blessun.
GUÐSÞJÓNUSTA Í HALLGRÍMSKIRKJU
TILEINKUÐ MINNINGU SR. FRIÐRIKS
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prófastur og fyrrum formaður KFUM þjónar fyrir altari ásamt sr. Guðna Má
Harðarsyni. Sr. Sigurður Pálsson fyrrum formaður KFUM predikar með áherslu á líf og starf sr. Friðriks.
Í messunni verða sungnir sálmar með textum sr. Friðriks. Félagsfólk í KFUM og KFUK, Skátum, Val og
Haukum tekur þátt í guðsþjónustunni. Karlakórinn Fóstbræður syngur lög eftir sr. Friðrik. Á meðan á
guðsþjónustu stendur mun KFUM og KFUK sjá um sunnudagaskóla fyrir börnin.
HÁTÍÐARSAMKOMA KFUM OG KFUK
Hátíðarsamkoman verður í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Þar flytur biskup Íslands, Hr. Karl
Sigurbjörnsson, hugvekju og Kristín Möller, heiðursfélagi KFUM og KFUK, hefur upphafsorð. Þórarinn
Björnsson verður með sögulegt innlegg um sr. Friðrik og Rannveig Káradóttir syngur einsöng. Und-
irleik annast Bjarni Gunnarsson. Eftir samkomuna verður boðið upp á kaffi og veitingar. Þá verður
einnig hægt að skoða minningarherbergi sr. Friðriks sem hefur meðal annars að geyma orgelið hans,
persónulega muni og bókasafn.
Stjórn KFUM og KFUK á Íslandi hvetur alla sem vilja heiðra minningu sr. Friðriks til að taka þátt í hátíð-
ardagskránni á afmælisdegi hans.
kl. 10:00
kl. 11:00
kl. 20:00
Þann 25. maí eru liðin 140 ár frá fæðingu sr. Friðriks Friðrikssonar. Sr. Friðrik var
einn merkasti æskulýðsleiðtogi 20. aldar en hann stofnaði KFUM og KFUK árið 1899.
Íþróttafélögin Valur og Haukar, skátafélagið Væringjar og Karlakórinn Fóstbræður
rekja einnig upphaf sitt til hans. Þegar sr. Friðrik sneri heim til Íslands eftir nám í Kaup-
mannahöfn var félags- og íþróttastarf fyrir íslenska æsku afar fábrotið og varð köllun
hans og ævistarf að bæta úr því. Allt til hinstu stundar vann sr. Friðrik æsku landsins
til heilla, bað fyrir henni og vann að því markmiði sínu að efla einstaklinga til líkama,
sálar og anda. Fjölmargir Íslendingar eiga góðar minningar frá kynnum sínum af sr.
Friðriki og er þeim sérstaklega boðið að taka þátt í afmælishátíðinni.
KFUM og KFUK • Holtavegi 28 • Reykjavík • Sími 588 8899 • www.kfum.is