24 stundir


24 stundir - 24.05.2008, Qupperneq 58

24 stundir - 24.05.2008, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 24stundir Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@24stundir.is Þeir sem fylgjast með fréttum frá Hollywood hafa vafalaust tekið eft- ir því hversu tvíburafæðingar hafa færst í aukana undanfarið. Þrjú vel þekkt Hollywood-pör hafa þegar eignast tvíbura og ekki nóg með það, heldur er um að ræða strák og stelpu í öllum tilvikum. Þetta eru pörin Dennis Quaid og Kimberly Duffington, Julia Roberts og Dani- el Moder og Jennifer Lopez og Marc Anthony. Þá eiga Brad Pitt og Angelina Jolie einnig von á tví- burum, þó ekki sé vitað enn hvort kynjaskiptingin sé jafn femínísk og hjá hinum pörunum. Náttúran eða mannleg íhlutun? Margir eru sammála um að draumur hvers pars sé að fá strák og stelpu, þegar von er á tvíburum á annað borð. Spurningin er hvort öll þessi dæmi séu hrein tilviljun, eða hvort um mannlega íhlutun sé að ræða í krafti auðs og frægðar paranna. Tæknin fyrir hendi „Það er vel framkvæmanlegt að margfalda líkur á tvíburafæð- ingum með tæknifrjóvgun, en þá eru settir upp 2-3 fósturvísar. Þó ber að taka fram að slíkar aðgerðir bjóða hættunni heim, því slík að- gerð margfaldar einnig líkurnar á fósturláti og fyrirburafæðingum. Þá er mjög erfitt, en framkvæm- anlegt, að velja kynið, en slíkt er víða bannað með lögum,“ segir Reynir Tómas Geirsson, læknir á Landspítalanum. Ekki skal fullyrt hér hvers kyns er með tvíburafæðingar Holly- wood-paranna, en ekki má gleyma því að ímynd og hégómleiki standa slíkum Hollywood-stjörnum býsna nærri. Frjósemi Hollywood-para hefur verið með mesta móti undanfarið Tvíburar tóm tilviljun eða tíska? Þrjú Hollywood-pör hafa eignast tvíbura með stuttu millibili og í öllum tilfellum er um jafna kynjaskiptingu að ræða, strák og stelpu. Er þetta tóm tilviljun eða enn ein undarleg tísku- bólan frá Hollywood? ➤ Líkurnar á að eignast tvíburaeru 1 á móti 80. ➤ Líkurnar á fósturláti eru 4-5sinnum meiri þegar tvíburar eiga í hlut. ➤ Algengasta tvíburasamsetn-ingin er tvíeggja strákur og stelpa, eða í 40% tilfella. TVÍBURAR Foreldrafrægð Þau Jennifer Lopez og MArc anthony eiga tvíburana Emme Marbiel Muniz og Maximilian Muniz. Erfiðir tímar Dennis Quaid og Kimberly Buffington eiga saman Thomas Boone og Zoe Grace, sem fengu of stóran lyfjaskammt við fæðingu. Þeim heilsast nú vel. Þriggja barna móðir Julia Roberts og Daniel Moder eiga saman þrjú börn, þar af eitt tvíburasett, þau Hazel Patriciu og Phinnaeus Walter. Komin með bumbu Angelina Jolie og Brad Pitt eiga von á tvíburum. Með barni Jessica Alba er ólétt, en ekki er talið að hún gangi með tvíbura. Hún á það kannski bara eftir. Tónlist hlynur@24stundir.is Biðin eftir þriðju hljóðverskskífu Portishead var lengri en góðu hófi gegnir. Þegar platan, sem ber heitið Third, kom út fyrir skemmstu, voru liðin ellefu ár frá því sveitin sendi frá sér sína aðra hljóðvers- plötu og tíu ár frá því hún sendi frá sér nokkuð yfir höfuð. En það tekur tíma að gera það sem er gott, og Portishead-liðar höfðu lýst því yfir að þau ætluðu að taka sér tíma í plötuna; ekki væri ætlunin að fara auðveldu leiðina og gefa út franskt kaffihúsapopp, eins og þau orðuðu það í einhverju við- talinu. Og útkoman er svo sannarlega góð, og langt frá því að geta kallst kaffihúsa-popp. Flest laga Third eru þung og drungaleg. Platan krefst þess af hlustandanum að hann taki sér góðan tíma í að hlusta, og ekki síður að hann sé rétt stemmdur. Þá hentar platan ekki við hvaða tækifæri sem er; t.d. er líklega ekki vænlegt til árangurs að skella henni á fóninn þegar heim er komið til að klára samning eftir vel heppnaða næturstund á knæpum bæjarins (nema viðsemjandinn sé í sjálfsmorðshugleiðingum). En ef þig langar að leggjast upp í sófa, hlusta á virkilega vel samda og frábærlega útsetta tónlist og hugsa um hvað sumarið sé óþolandi bjart, henta fáar plötur betur en Third. Drungaleg og frábær Alls ekki lík því sem við eigum að venjast, en þó stórkostleg. Third TÓNLIST Portishead 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Það er vel framkvæmanlegt að margfalda lík- ur á tvíburafæðingum með tæknifrjóvgun, en þá eru settir upp 2-3 fósturvísar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.