24 stundir - 29.05.2008, Blaðsíða 23
kröfur um nærþjónustu í sveitar-
félögum og í að styrkja samfélags-
innviði eða verið þáttur í byggða-
stefnu og viðspyrnu við
óæskilegum fólksflótta.“
Hópurinn metur það óhjá-
kvæmilegt að undirbúa stofnun
nýrra framhaldsskóla á höfuðborg-
arsvæðinu fyrir árið 2014 og leggur
til að annar þjóni nemendum með-
al annars í Grafarholti og við Úlf-
arsfell og hinn Elliðavatnssvæðinu
og suðausturhluta höfuðborgar-
svæðisins.
Fólksflótti við Eyjafjörð
Andstætt þeim sjónarmiðum
sem liggja að baki tillögum nefnd-
arinnar um nýja skóla á suðvest-
urhorninu telur hún stofnun nýs
framhaldsskóla í Ólafsfirði „nauð-
synlega ráðstöfun“ til þess að
sporna við fólksflótta frá svæðinu.
Telur hún rekstrargrundvöll
skólans lítinn og tekur fram að
VMA og MA gætu tekið við um 70
fleiri nemendum en útskrifast úr
grunnskólum svæðisins auk þess
sem stofnun skólans „myndi að
óbreyttu koma fremur illa við“ þá
skóla sem fyrir eru, „einkum af því
að rekstur þeirra hefur verið í járn-
um undanfarin ár“.
Hins vegar sé augljóst að jarð-
göng til Siglufjarðar séu tilgangslítil
nema aðrar ráðstarfanir séu gerðar
til þess að styrkja byggðina um leið
og þykir nefndinni nýr framhalds-
skóli í Ólafsfirði vera vænleg ráð-
stöfun til þess.
Skiptar skoðanir um fleiri skóla
Í skýrslunni segir nefndin ekki
forsendur fyrir skóla á Hellu eða
Hvolsvelli með þeim rökum að
báðir skólarnir á Suðurlandi, Fjöl-
brautaskóli Suðurlands á Selfossi
og Menntaskólinn á Laugarvatni,
geti tekið við fleiri nemendum en
þeir gera auk þess sem samgöngur
á svæðinu séu greiðar.
Elvar Eyvindsson, staðgengill
bæjarstjóra Rangárþings eystra,
bendir á að eins og staðan er í dag
þurfa krakkar að velja annað hvort
að búa heima og verja allt að þrem-
ur klukkutímum á dag í ferðalög í
skólann eða búa í heimavist, t.d. á
Selfossi, sem sé erfitt fyrir krakka á
þessum aldri.
Hvað varðar möguleika á nýjum
skóla á Reyðarfirði segir í skýrsl-
unni að þótt fyrirsjáanleg íbúa-
fjölgun á Fjörðunum muni leiða til
endurskoðunar á staðsetningu og
verkaskiptingu skóla á Austurlandi
útskrifist enn sem komið er of fáir
úr grunnskólunum á Reyðarfjarð-
arsvæðinu til að réttlæta nýjan
skóla þar. Er einnig bent á að bæði
Menntaskólinn á Egilsstöðum og
Verkmenntaskóli Austurlands geti
tekið á móti fleiri nemendum.
Helga Jónsdóttir, bæjarstóri
Fjarðabyggðar, kannast ekki við að
mikill áhugi sé fyrir nýjum fram-
haldsskóla á Reyðarfirði. Segir hún
að hins vegar hafi verið talað um að
þar verði sett upp aðstaða til að
kenna ákveðnar greinar í samvinnu
við verkmenntaskólann.
Nefndin telur ekki fýsilegt að
setja framhaldsskóla í Grindavík
því grunnskólaárgangurinn þar sé
of lítill og samgöngur á svæðinu
góðar auk þess sem Fjölbrautaskóli
Suðurnesja anni eftirspurn.
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri
í Grindavík, segir hins vegar FS
hafa sprengt allt utan af sér og telur
betra að byggja nýjan skóla í
Grindavík en að stækka hann frek-
ar. Þá telur hann það styrkja inn-
viði Grindavíkur að fá framhalds-
skóla.
Menntamálaráðherra
Vill leita annarra leiða en
að stofna fleiri skóla.
Framhaldsskólinn á Laugum
1.152.000 kr.
Framhaldsskólinn á Húsavík
933.000 kr.
Framhaldsskólinn í
Austur-Skaftafellssýslu
958.000 kr.
á
volsvelli
annaeyjum
Menntaskólinn á Akureyri
599.000 kr.
Menntaskólinn á Egilsstöðum
696.000 kr.
Hússtjórnarskólinn á
Hallormsstað
896.000 kr.
Framhaldsskólinn á Reyðarfirði
Verkmenntaskóli Austurlands
1.043.000 kr.
Væntanlegir
Í umræðu
Stofnaður eftir 1990
24stundir FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2008 23
a
Ég sé ekki fyrir mér fleiri fram-
haldsskóla heldur frekar að
styrkja starfsemi þeirra sem eru fyrir
LAGERSALA
síðustu dagar
Einstakt tækifæri til að eignast glæsileg heimilistæki
á frábæru verði. Takmarkað magn af sýningar- og
lagertækjum ásamt lítið útlitsgölluðum tækjum.
Verið velkomin í Eirvík og kynnið ykkur
heimilistæki á tækifærisverði.
Lagersala Eirvíkur að
Suðurlandsbraut 20
-hágæðaheimilistæki
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Verðhrun
VASKAR
HELLUBORÐ
MATVINNSLUVÉLAR
INNBYGGÐIR
ÍSSKÁPAR
FRYSTISKÁPAR
OFNAR
HÁFAR
VIFTUR
vi
lb
or
ga
@
ce
n
tr
u
m
.is
OPNUNARTÍMAR:
kl. 10-18 fimmtudag 29. maí
kl. 10-18 föstudag 30.maí
kl. 11-15 Laugardag 31. maí
30-8
0% A
FSLÁ
TTU
R