24 stundir - 29.05.2008, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Henni tekst þó að hreyfa við viðkvæmum hjörtum,
sem sannaðist þegar roskin kona á sjötta bekk
þurfti frá að hverfa sökum ekkasoga og táraflóðs.
Skólavörðustíg 21 – Sími 551 4050 – Reykjavík
Sængur og koddar
Allar stærðir
Bítillinn Sir Paul McCartney
hefur hlotið enn eina rósina í
hnappagatið á glæstum tónlist-
arferli sínum, en hann hlaut í
fyrradag heiðursgráðu í tónlist frá
hinum virta Yale-háskóla í Banda-
ríkjunum.
Lofaður í bak og fyrir
„Þessi fyrrverandi Bítill vakti
heila kynslóð til meðvitundar og
færði rokkinu, rytma- og blústón-
listinni ferskan og nýjan hljóm,“
sagði Richard Levin, forseti Yale-
háskólaráðsins, og bætti við: „Þú
hefur fært út mörk hins kunn-
uglega til þess að skapa nýja sígilda
tónlist. Þú hefur snert við öllum
okkar tilfinningum og við dáumst
að snilligáfu þinni og rausn-
arlegum stuðningi þínum við hin
verðugustu málefni.“
Sir Paul, sem nú getur kallað sig
dr. Paul, hélt enga ræðu sjálfur við
athöfnina, en hann var einn af átta
afreksmönnum sem fengu heið-
ursnafnbót frá skólanum, en um
3000 nemar voru útskrifaðir einnig
frá Yale-háskóla. „Þetta var hálf-
óraunverulegt. Hann var bara eins
og einn af okkur, í sömu fötum og
svona. Svo gekk hann þarna innan
um okkur og ég náði meira að
segja að nuddast upp við hann,“
sagði Fiona Graham útskrift-
arnemi, í töluverðri geðshræringu
yfir því að hitta goðið.
Þarf ekki að óttast atvinnuleysi
McCartney er einn tekjuhæsti
tónlistarmaður sögunnar og þarf
eflaust lítið að flagga heið-
ursnafnbótinni sér til framdráttar.
Hann hefur þó átt erfitt ár, en
skilnaðurinn við Heather Mills tók
sinn andlega toll, eins og hann hef-
ur sjálfur sagt, svo ekki sé minnst á
fjárhagslegt tap vegna skilnaðarins.
traustis@24stundir.is
Paul McCartney sæmdur heiðursnafnbót í tónlist frá Yale
Sir doktor Paul McCartney
Kvikmyndir traustis@24stundir.is
Love in the time of Cholera er
byggð á metsölubók Gabriels
Garcia Márquez og fjallar um sím-
skeytamanninn Florentino Ariza
sem kolfellur fyrir ungmeynni for-
kunnarfögru Ferminu Daza við eitt
lítið augnatillit árið 1880.
Faðir Ferminu hefur þó feitari bita
í huga handa dóttur sinni en sím-
skeytamann og bannar samskipti
þeirra, sem fólust aðallega í ritun
langra ástarbréfa. Fermina flyst á
brott og giftist myndarlegum lækni á
meðan Ariza læknar hjartasár sitt í
faðmi föngulegra kvenna. Hann
vinnur sig upp í fyrirtæki föð-
urbróður síns og fyrr en varir er hann
orðinn mektarmaður í þjóðfélaginu.
Hann vantar þó það eina sem myndi
fullkomna líf hans, Ferminu.
Fylgst er með 50 árum í lífi þess-
ara fórnarlamba forboðnar ástar
þar sem dauði, svik, tryggð og losti
er helsta uppistaðan.
Bókin eflaust betri
Þar sem gagnrýnandi þessi hefur
ekki lesið bókina er engin hætta á
ósanngjörnum samanburði. Þó er
erfitt að gleyma reglunni að bókin
sé alltaf betri en myndin. Því verða
þeir sem lesið hafa bókina eflaust
vonsviknir en það breytir því ekki
að hér er á ferðinni hugljúf ást-
arsaga sem lætur engan ósnortinn.
Leikurinn er til fyrirmyndar, kvik-
myndatakan óaðfinnanleg og vel er
við hæfi að skreyta myndina með
frábærri tónlist kólumbísku dilli-
bossaþokkagyðjunnar Shakiru frá
því að hún var trúbador með app-
elsínuhúð og sveitt enni en ekki sú
sykursæta Barbie-dúkka sem hún
síðan breyttist í.
Ekki fyrir alla
Það er ljóst að slíkar myndir eiga
ekki upp á pallborð allra. Hún er
ofurhæg og róleg, ekkert sér-
staklega fyndin og frekar einhæf og
fyrirsjáanleg. Henni tekst þó að
hreyfa við viðkvæmum hjörtum,
sem sannaðist þegar roskin kona á
sjötta bekk þurfti frá að hverfa sök-
um ekkasoga og táraflóðs.
Myndin er því tilvalin fyrir þá
sem klárað hafa ritraðir Rauðu
seríunnar og vilja tilbreytingu og þá
sem vilja smá væmni og vasaklúta.
Ástarþráhyggja og uppáferðir í Suður-Ameríku
Fiskur á þurru landi Ariza kann illa við sig í húsum hóra, enda sór hann að halda sér
óspjölluðum fyrir Ferminu. Það gekk þó ekki sem skyldi.
Rapparinn LL Cool J hefur hafið
samstarf við verslunina Sears um
framleiðslu á fatalínu fyrir börn.
Fötin munu vera skreytt t.d. húð-
flúrum kappans eða brotum úr
rapptextum hans, sem eru ekki
alltaf við hæfi barna eða sið-
samra.
Aðspurður hvort hann hefði eitt-
hvert vit á tísku sagði rapparinn
að uppeldi hans og fjölskyldu-
hagir veittu honum góða innsýn í
hugarheim kvenna. „Ég ólst upp í
mæðraveldi, ég á eiginkonu og
þrjár dætur þannig að ég veit vel
hverju konur leita að þegar þær
kaupa föt.“ vij
Rappari hannar
tískuföt á börn
Leikstjóri: Mike Newell
Aðalhlutverk: Javier Bardem, Giovanna
Mezzogiorno, Benjamin Bratt
Love in the time of Cholera
Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
ÞÚ SKILD IR
GREINI LEGA EKKI
ORÐ AF ÞV Í SEM
ÉG SAGÐI?
JÚ ÉG SKILDI HVERT
E INASTA ORÐ SEM ÞÚ
SAGÐIR . ÞAÐ VAR AÐEINS Í
ÞEIRRI RÖÐ SEM ÞÚ SAGÐIR
ÞAU SEM RUGLAÐI MIG.
VIÐ ERUM EIN STÓR FJÖLSKYLDA ÉG HEF AUGU
MEÐ ÞEIM OG ÞAU ERU AUGU FYRIR MIG.
Bizzaró
Fyrst hélt ég að ég vildi fá
fólk til að hlæja en ég komst
að því að ég er betri í því
að hrella fólk.
MYNDASÖGUR