24 stundir - 29.05.2008, Page 48
24stundir Hrein nautn með réttri hlíf... Germany100-120 cm, þrjár stærðirkrómlitað eða hvítt, án botnsFrá kr. 25.900
SIMPLY CLEVER
FJÖLSKYLDUBÍLLINN
SEM EYÐIR SVO
MIKLU MIKLU MINNA
Skoda Octavia 1,9 TDI® - 4,9 lítrar á hundraðið
Skoda Octavia er vandaður og ríkulega útbúinn verðlaunabíll í fullri stærð með pláss
fyrir alla fjölskylduna og rúmgott farangursrými. Nýja TDI® dísilvélin skilar miklu
og jöfnu afli og býr yfir frábærum aksturseiginleikum (einnig fáanlegur með bensínvél).
Skoðaðu Skoda Octavia - bílinn sem eyðir svo miklu miklu minna.
Allir kaupendur Skoda Octavia fá frítt fyrir fjölskyldu sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í eitt ár.
Verð frá kr. 2.490.000
Verð fyrir lækkun: 2.730.000 kr.
Mánaðarleg afborgun: 29.900 kr.*
* Verð á Skoda Octavia 1,6
Miðað er við gengistryggðan bílasamning, útborgun 30% eða 747.000 kr. í 84 mánuði.
Árleg hlutfallstala kostnaðar er 11,65%.
? Með hverju árinu sem líður verð égnærsýnni en móðir mín fjarsýnni. Semer ekki í frásögur færandi nema sökumþess að nú er svo komið að haltur leiðirblindan þegar við förum um bæinn gler-augnalausar. Svo vill til að við erum með samastyrkleika, hvorug með neina sjón-
skekkju og eigum báðar gleraugu með
plastumgjörð. Mín kostuðu hins vegar
hvítuna úr augunum en hennar einungis
nokkra hundraðkalla. Móðir mín til-
heyrir nefnilega þeim hópi fólks sem
getur keypt ódýr lesgleraugu í apótek-
um, sjoppum og á flugvöllum: Fjarsýn-
isfólkinu. Hún þarf ekki að eyða tíma og
fé í að láta útbúa gleraugun fyrir sig en
kippir þeim heim með tyggjópakkanum
og tímaritinu og á raunar fimm gleraugu
í fallegum litum. „Kostar ekki neitt, elsk-
an.“ Mamma sér í plús og er í plús. Ég er
aftur á móti á blús – kaupi mín mín-
usgleraugu í gleraugnaverslunum og
þyrfti vænan yfirdrátt ef ég ætlaði að
hafa fimm slík í umferð. Lengi vel tók ég
því sem einu af lögmálum lífsins að mín-
usgleraugu væru dýrari en plúsgleraugu,
það væri örugglega bara ekki hægt að
búa til draslgleraugu fyrir nærsýna.
Þangað til að ég fann í eitt einasta sinn
slík gleraugu á slikk. Aha, það er sem sé
hægt að framleiða þau ódýrt, þau eru
bara ekki í búðunum! Mér er nær að
ætla að gleraugnaframleiðendur heims-
ins hafi sameinast um að halda nærsýn-
isfólkinu utan við ódýru lausnina. Af-
sakið mig, en ég er bara alveg í mínus
yfir þessu.
Plúsfólk og mínusfólk
Sigríður Víðis
Jónsdóttir
er í mínus
YFIR STRIKIÐ
Hvaðan komu
ódýru
gleraugun?
24 LÍFIÐ
Nýjar erlendar kannanir sýna að
stelpum fjölgar ört í heimi tölvu-
leikjaspilara. Velja öðru-
vísi leiki en strákar.
Stelpur spila líka
tölvuleiki
»40
Vefsíðan YouTube hefur lokað fyrir
nýtt myndband Sigur Rósar vegna
nektar. Skífan TV spilar
það ekki á daginn.
Myndband Sigur
Rósar bannað
»46
Fimmtán myndir keppa til úrslita á
Stuttmyndadögum í kvöld. Sig-
urvegarinn fer til Can-
nes á næsta ári.
Úrslit Stuttmynda-
daga í kvöld
»42
● Skagfirðingar í
New York
Króksara rak í
rogastans í haust
þegar söngkenn-
arinn Kristján
Valgarðsson aug-
lýsti í dag-
skrárhefti stað-
arins eftir söngfólki til að koma
fram í Carnegie Hall. Töldu sumir
að Kristján væri með stór-
mennskubrjálæði á háu stigi eða að
grínast. Svo var aldeilis ekki. „Það
fara sjö Skagfirðingar út, ásamt
kórum úr Reykjavík, og við syngj-
um Carmina Burana hinn 14. júní,
undir stjórn Garðars Cortes,“ segir
Kristján, sáttur með sitt.
● Ferð án fyr-
irheits. „Þetta er
hugmynd sem ég
er búinn að hafa í
maganum alveg
frá því að ég áttaði
mig á því að þetta
væri í uppsigl-
ingu,“ segir Jón
Ólafsson um minningartónleika til
heiðurs Steini Steinari sem eru
haldnir í Íslensku óperunni í kvöld
og annað kvöld. 100 ár eru liðin frá
fæðingu skáldsins en flutt verða
lög er hafa verið samin við ljóð
hans. Eldri lög eftir Torfa Ólafs,
Bergþóru Árna, Magnús Einars og
ný eftir Jón Ólafs og Sigurð
Bjólu. Tónleikarnir verða kl. 20.00
í kvöld.
● Alla leið heim
„Yfirskriftin er
Hafnfirðingar
bjóða heim og ég
ákvað bara að
bjóða alla leið inn
í svefnherbergi,“
segir Ólöf Björg
Björnsdóttir sem
setur upp listasýningu í svefn-
herberginu sínu í Engjahlíð 5 í
Hafnarfirði milli 18 og 22 í kvöld.
„Svefnherbergið er persónulegur
staður og ég hef breytt því í vinnu-
stofu. Í listsköpun þarf maður að
vera í góðum tengslum við sjálfan
sig og hvaða staður er betri til list-
sköpunar en svefnherbergið?“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is