24 stundir - 05.07.2008, Blaðsíða 21
24stundir LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 21
„Það er samveran við hestinn og fé-
lagsskapurinn sem fólk sækir í. Hesturinn
er svo einstök skepna í samveru og að
vera með honum gerir þetta enn meira
spennandi,“ segir Sigurbjörn Bárðarson
hestamaður þegar hann er spurður hvað
geri landsmót hestamanna sérstök.
Gleði og léttleiki
Sigurbjörn ber félögum sínum einnig
vel söguna. „Hestamenn eru upp til hópa
söngelskt og skemmtilegt fólk þannig að
það skapast yfirleitt mikil gleði, léttleiki
og kátína í kringum þessi mót,“ segir Sig-
urbjörn sem tók fyrst þátt í landsmóti ár-
ið 1966. „Það er margt sem hefur breyst.
Markmiðin og gildin eru samt alltaf þau
sömu. Þau eru að ná sem mestum árangri
á íslenska gæðingnum á sem jákvæðastan
hátt. Það breytist í sjálfu sér ekkert.“
Hestar spenntir í roki
„Landsmótið byrjaði með svolitlum
hamagangi sem keppnir utandyra mega
alltaf eiga von á,“ segir Sigurbjörn Bárð-
arson hestamaður og vísar þar til hvass-
viðrisins sem lék um mótsvæðið fyrstu
dagana. Sigurbjörn bendir á að hvass-
viðrið þurfi ekki að vera svo slæmt.
„Hestar verða spenntir í roki og það getur
peppað þá upp. Á hinn bóginn getur það
verið ólán fyrir hesta sem eru mjög heitir
fyrir því að þeir verða of heitir,“ bætir
hann við.
Sigurbjörn Bárðarson hefur sótt mörg landsmót
Hesturinn einstök skepna
Gæðingar Sigurbjörn
kann að meta samveru
við hestinn.
Um 6.000 manns voru við
formlega setningu Landsmóts
hestamanna á Gaddstaðaflöt-
um á fimmtudag. Öll hesta-
mannafélög landsins tóku þátt
í glæsilegri hópreið þar sem
einir fimm ráðherrar, þar á
meðal forsætisráðherra, Geir
Haarde, voru í broddi fylk-
ingar.
Ráðherrar
leiða hópreið
Hápunktar Landsmóts hesta-
manna verða um helgina og
búast mótshaldarar við mikl-
um fjölda gesta enda veð-
urútlit gott. Úrslit í öllum
flokkum fara fram í dag og á
morgun og verður mótinu
slitið á sunnudag kl. 16. Dag-
skrá mótsins og helstu upplýs-
ingar má nálgast á síðunni
www.landsmot.is.
Hápunktar
Landsmóts
Landsmót hestamanna var
fyrst haldið á Þingvöllum árið
1950. Lengst af voru mótin
haldin á fjögurra ára fresti en
árið 1995 var samþykkt að
halda þau á tveggja ára fresti.
Fyrsta mótið sem var haldið
eftir þeim reglum var Lands-
mót í Reykjavík árið 2000.
Saga mótsins