24 stundir - 05.07.2008, Blaðsíða 13

24 stundir - 05.07.2008, Blaðsíða 13
Vegagerðarinnar sem komið var upp í samráði við þá sjálfa. „Það er skrýtið ef hægt er að banna sumum bíl- um að leggja í opinbert stæði en leyfa öðrum,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustu. Ferðaskrifstofur greiða komugjöld í Þórs- mörk, en sem renna til Ferðafélagsins og Útivistar til viðhalds göngustígum og allri aðstöðu í Þórsmörk. „Ferðaþjónustufyrirtækin sætta sig við þetta, enda leggja félögin sannarlega í kostnað í Þórsmörk, við að bæta aðstöðu og gæta umhverfisins,“ segir Þórir. „Þetta snýst um fleira en Kerið, hvað kemur næst, ef þetta verður leyft.“ Samkvæmt náttúruverndarlögum er almenningi heimill aðgangur að óræktuðu landi án takmarkana svo fremi sem umgengni er góð og engu spillt. Treyst á klósett við Dettifoss „Kerið er klassískt dæmi um þessi eilífu almanna- gæði og hver á að greiða fyrir þau. Þeirri umræðu er ekki lokið hvað varðar uppbyggingu á ferðamanna- stöðum,“ segir Elías Gíslason, hjá Ferðamálastofu. Margir koma að ferðaþjónustu á Íslandi, en Ferða- málastofa leggur til um 60 milljónir á ári í uppbygg- ingu á ferðamannastöðum. „Það dugar ekki og við höfum lagt til að upphæðin verði meira en þrefölduð.“ Kári Jónasson, fararstjóri, áður fréttastjóri sagði út- varpinu mikla klósettsögu frá Dettifossi í vikunni. Á þriðja hundrað ferðamenn sumir á vegum Kára þurftu að ganga örna sinna bak við þúfur og steina nærri foss- inum, því fimm kamrar höfðu verið lokaðir í viku. Elí- as Gíslason vonast til að bæði Kerið og kamrarnir hleypi krafti í umræðu um almannagæði og ferðaþjón- ustu. Hann er ekki trúaður á að Kerfélaginu sé lagalega stætt á að rukka fólk fyrir að ganga um. beva@24stundir.is aBjörg Eva Erlendsdóttir Ekki kom fram hvað þeir ætluðu að láta fótatak ferðamanna við Kerið kosta, en giskað er á 3-500 krónur. Magnaðast við þessa fjáröflun hlýtur þó að vera að Kerfélagið vildi rukka fyrir aðstöðu sem opinberir aðilar höfðu komið upp. 24stundir LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 13 Nýlega náðist mikilvægur áfangi í mannréttindabaráttu fatl- aðra, þegar tenging við tekjur maka var afnumin. Síðar á kjör- tímabilinu gæti annar áfangi náðst því nú vinna íslensk stjórn- völd að fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun. Tuttugasta ríkið hefur þegar fullgilt samninginn sem hefur þar með tekið gildi. Um er að ræða lagalega bindandi samning sem tryggir mannréttindi og mannfrelsi fatlaðra einstaklinga til jafns við aðra. Einhverjir kynnu að spyrja sem svo, hvort virkilega sé þörf á slíku á Íslandi. Svarið við slíkri spurningu er já, því þótt margt sé vel gert í málefnum fatl- aðra getum við alltaf gert betur. Við Íslendingar erum rík þjóð og eigum að setja markið hátt. Í stjórnarskrá lýðveldisins eru mannréttindi vissulega tryggð en fötlun er ekki tilgreind sérstaklega í upptalningu yfir þætti sem ekki megi mismuna vegna. Það er því full ástæða til þess að festa rétt- indi fatlaðra frekar í sessi. Ein- staklingar sem búa við fötlun eiga að geta tekið fullan þátt í sam- félaginu án hindrana og aðgrein- ingar. Slíkar hindranir eru því miður til staðar. Það er enn verið að reisa mannvirki þar sem að- gengi fatlaðra er ábótavant. Að- gengismál eru eitt stærsta baráttu- mál fatlaðra, því þau snúast líka um aðgengi að upplýsingum. Þar má t.d. nefna skort á táknmáls- túlkun, slæmt aðgengi blindra og sjónskertra að heimasíðum o.s.frv. Í orði og á borði Fullgilding samningsins ein og sér og hugsanlegar lagabreytingar sem hún hefði í för með sér duga þó ekki til að tryggja framkvæmd- ina í reynd. Þótt ólíklegt sé að einhver ákvæði íslenskra laga gangi beinlínis gegn markmiðum samningsins, þarf líklega að fara fram ítarleg skoðun á því. Einnig væri hægt að nýta tækifærið og setja fram áætlun um úrbætur í málefnum fatlaðra í tengslum við fullgildinguna. Sérstakri eftirlits- stofnun með samningnum verður komið á laggirnar og þannig opn- ast kæruleið fyrir einstaklinga sem telja á rétti sínum brotið. Það ætti að tryggja virkt eftirlit með fram- kvæmd samningsins og að orðum fylgi athafnir. Samningurinn tekur einnig á þáttum eins og viðhorfi til fólks með fötlun. Brýnt er að auka fræðslu og vekja almenning til umhugsunar um stöðu fatlaðra einstaklinga. Hafa verður í huga að fatlaðir eru eins ólíkir og þeir eru margir og þarfir þeirra mis- munandi. Hér er því um að ræða einstakt tækifæri til þess að tryggja með heildstæðum hætti réttindi allra þeirra sem búa við fötlun. Ekkert um okkur án okkar Samráð við hagsmunaaðila er nauðsynlegt við hvers konar stefnumótun. Það á sérstaklega við um vinnu eins og fullgildingu þessa samnings. Það eru engir betur til þess fallnir en fatlaðir og hagsmunasamtök þeirra, að benda á hvað betur mætti fara í þjón- ustu og hvar aðgerða sé þörf. Fulltrúar hagsmunasamtaka fatl- aðra eiga sæti í nefnd Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og trygg- ingamálaráðherra, sem vinnur að undirbúningi vegna samningsins. Þar að auki er nú unnið að frekari kynningu á samningnum meðal einstakra félaga og almennings. Það er löngu orðið tímabært að fólk með fötlun fái viðurkenningu sem fullgildir þátttakendur í sam- félaginu. Þessi samningur er vissulega skref í rétta átt en um leið þurfum við að passa okkur á að sofna ekki á verðinum. Tækni- framfarir eru sífellt að auðvelda daglegt líf okkar og það þarf að tryggja að fatlaðir sitji ekki eftir í þeirri þróun. Það má ekki ein- blína um of á kostnaðinn þegar kemur að bættri þjónustu við fatl- aða. Umræða undanfarinna miss- era hefur m.a. snúist um að auka þátttöku okkar á vinnumarkaði. Þar eru mikil sóknarfæri, bæði fyrir fatlaða og ófatlaða. Með því að tryggja fötluðum nauðsynleg hjálpartæki og endurhæfingu ger- um við þeim kleift að leggja jafn- vel enn meira af mörkum til sam- félagsins. Höfundur er alþingismaður Áfangi í baráttu fatlaðra VIÐHORF aHelgi Hjörvar Tækniframfarir eru sífellt að auðvelda dag- legt líf okkar og það þarf að tryggja að fatlaðir sitji ekki eftir í þeirri þróun. Það má ekki einblína um of á kostnaðinn þegar kemur að bættri þjónustu við fatlaða. Sumar- húsalóð -Friður og kyrrð í sveitinni- Lóð í landi Ásgarðs í Grímsnesi til sölu. Um 1.1 hektari að stærð. Lóðin er á fallegum stað með góðu útsýni. Nánari upplýsingar; Sími 660 7681 og netfang polg@islandia.is Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Laugardagur 5. júlí 2008 Litlu krúttin hennar Kristbjargar eru rottur. » Meira í Morgunblaðinu HIn blíðustu skinn Slæm er andúðin, en verri er viðurkenningin. » Meira í Morgunblaðinu Guðbergur Kvartmílan höfðar til fólks á öllum aldri. » Meira í Morgunblaðinu Með gjöfina í botni Hækkandi bensínverð kann að hafa áhrif á hrað- akstur á þjóðvegum. » Meira í Morgunblaðinu Færri teknir Guðmundur velur 19 fyrir Ólympíuleikana í Peking. » Meira í Morgunblaðinu Landsliðsval
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.